Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

David the joker

joker

Geir... hættu að tala íslensku

Mér finnst það grátlegt hversu illa Geir svara spurningum íslenskra fréttamanna og fáranleg sú staðreynd að einu almennilegu svörin og upplýsingarnar sem koma fram á blaðamannafundunum komi fram í svörum ráherra til erlendu blaðamannanna.

Ef eitthvað er óþægilegt í spurningum íslenskra þá er svarað með styttingi og snúið sé að næstu spurningu. Nánast talað niður til þess sem spyr. Ráðherra hefur ekki efni á slíku og þjóðin á annað og meira skilið.

Svo ég segi: Geir - Hættu að tala íslensku


mbl.is Mjög óvinveitt aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við gætum virkjað okkar skuldaklukku

Málið væri bara að tenja hana við þokkalega rafstöð og þá mætti bæta áhyggjulaust við eins og einu álveri
mbl.is Skuldaklukkan sprakk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr seðill í umferð

milljon

 

 

 

 

 

 

 

Eftir því sem heimildir herma ætla Rússar að kaupa  fyrrum KB banka eftir helgina og hefur heyrst að hið nýja nafn bankans verði KGB. Í framhandi af þessu hefur Seðlabankinn látið prenta nýjan milljónkrónaseðil


Dýr dýralæknirinn

Ég endurtek bar það sem ég bloggaði um í gær:

Seðlabankastjórinn óðamála er lögfræðimenntað smásagnaskáld sem hefur aldrei praktiserað lög

Fjármálaráðherrann ósýnilegi er dýralæknir

Bankamálaráðherrann er með BA-próf í sögu og heimspeki.

Utanríkisráðherrann(starfandi) er sérfræðingur um kynlíf silunga

Er þetta kokteillinn sem við þurfum þessa dagana?


mbl.is Samtal við Árna réð úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir hafa greinilega horft á hryðjuverkamanninn í Kastljósinu

Pælið í einu... það þarf 4 ára sérnám  til þess að fá réttindi til að mála húsveggi.

Seðlabankastjórinn óðamála er lögfræðimenntað smásagnaskáld sem hefur aldrei praktiserað lög

Fjármálaráðherrann ósýnilegi er dýralæknir

Bankamálaráðherrann er með BA-próf í sögu og heimspeki.

Utanríkisráðherrann(starfandi) er sérfræðingur um kynlíf silunga

Er þetta kokteillinn sem við þurfum þessa dagana?

Geir Harde virðist eini maðurinn sem hafi menntun til að standa í þessum slag. Hann er þó með BA-próf í hagfræði frá Brandeis-háskóla, Bandaríkjunum, 1973. MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins-háskóla, Bandaríkjunum, 1975. MA-próf í hagfræði frá Minnesota-háskóla, Bandaríkjunum, 1977.  Og ofan á allt saman veitti Minnesota-háskóli honum síðan heiðursdoktorsnafnbót í fyrra.

En Geiri er bara ekki nóg - Það þarf að koma sérfræðingum til starfa og ákvarðanatöku í sSeðlabankann og það strax. Og það mætti eflaust skipta út víðar.


mbl.is Hryðjuverkalög gegn Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innlent eða ...

innlentFinnst það lýsandi fyrir ástandið í dag að sjá innlenda hluta fréttanna hér til hliðar á blogginu áðan og fréttirnar flestar á erlendri tungu.

En auðvitað borgar sig að þýða þetta ofan í útlendingana strax hér heima í héraði frekar en að bjóða þeim upp á að stauta sig í gegnum fréttirnar á ástkæra ylhýra.

Selur í fjörunni í Sandgerði gæti hæglega orðið: Selling at the beach in Grindavik

Veikur farþegi og flugdólgar í Keflavík gæti orðið: Weak passenger and fly knives in Keflavik

Ég fæ sennilega ekki vinnu við þýðingarBlush

 


Ísland er gjaldþrota - Fósturforeldrar óskast

Þeir aðilar sem ekki eiga fyrir sínum skuldbindingum eru gjaldþrota.(Davíð um bankana)

Ísland er því í raun, samkvæmt hans eignin kennngum gjaldþrota, og sjálfstæði landsins þar með fyrir bí.

Breska ríkisstjórnin hyggst fara í mál við Íslenska ríkið upp á margföld ríkisfjárlög. Flreiri þjóðir munu koma í kjölfarið. Yfirlýsingar um að ríkið ætli ekki að standa við lagalegar skuldbindingar sínar í útlöndum jafngildir þjóðagjaldroti og brátt hlaðast ábyrgðir vegna enn fleiri íslenkra banka erlendis, í þann pakka.

Við höfum verið sjálfstæð síðan 1944 en nú er svo komið að það eina sem getur bjargað okkur væri það að einhver þjóðin gæti hugsað sér að ættleiða krógann.Blush 


mbl.is Ekki hægt að halda gengi föstu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elska kaldhæðinn húmor...

safnaog það jafnvel þótt að snúi að mér sem aumum íslendingi. Þeir eru ekki margir sem mótmæla því í dag sem Danirnir sáu og rituðu um íslenskan efnahag á síðustu misserum.

Danskurinn á  fyrir þessu háðinu... skuldlaustWink


mbl.is Söfnun fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæfa og gjörvileiki

Djöfull er hann orðinn gamall... kominn á ellilífeyri... mér finnst svo örstutt síðan að hann var bara á mínum aldriBlush


mbl.is Nick Nolte slapp út úr brennandi húsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband