Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

The future so bright, you gotta wear shades...

Ok.. ég svo sem geri mér grein fyrir því að myrkrið er ekki svo algert að öll þjóðin þurfi að reiða sig á hvíta stafinn en það mætti nú samt segja mér að þessi væri ekki kallaður Nostradamus í sínu föðurlandi.

"En fjármál ríkisins eru í góðu ásigkomulagi," segir Martin Skancke 

Alvarlegt ástand hvað... Hér er allt í stakasta.

Martin minn sæll.... viltu ekki fara að hengja á þig rafsuðuhjálminn?Blush


mbl.is Ekki allt kolsvart á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki morgunkorn frá Nestlé

nesquikKeyptum okkur morgunkorn frá Nestlé þegar við vorum á Spáni eða Portúgal fyrir einum átta árum og fannst það hrikalega gott. Við kíkjum alltaf eftir þessu þegar við rekumst inn í nýjar verslanir  og seinast í gær var ég að kíkja eftir þessu sama korni þegar ég kom í nýja verlsun Krónunnar í bænum.

 

cookie-crisp

En öll þessi ár sem liðin eru höfum við aldrei rekist á morgunkorn frá þessum stærsta matvælaframleiðanda heims.

Djöfull erum við eitthvað eftiráBlush


mbl.is Tekjur Nestlé umfram væntingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er píramídinn að riðlast...

Þegar ekkert er spilað nema Matador, Dómínó, Fjárhættuspilið og Risk... getur varla verið við góðu að búastBlush
mbl.is Vara við Sterling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilega haldinn ofurbjartsýni

Mér er fyrirmunað að skilja að samdrátturinn verði ekki meiri en 10% og að spá því að atvinnuleysi verði ekki nema 6-8 prósent er ekkert annað en skortur á jarðtengingu. Þarna er kannski búið að draga frá alla útlendingana og hina sem flúnir verða land en rauntalan hlýtur að verða tvöfalt hærri hið minnsta.  


mbl.is Spá 10% efnahagssamdrætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig fer ráðning bankastjóranna fram

Mér er allskostar óskiljanlegt hvernig ráðningarferli nýju bankastjórnanna er. Hefði haldið, á eftir því sem undan er gengið, að vandað ferli færi í gang og óskað yrði efir fólki til að sækja um þessi störf.  Síðan yrði sá hæfasti ráðinn. En þrátt fyrir flatt nef af eilífri veggjagöngu sér stjórnin ekki ástæðu til þess. 

Og það þýðir ekkert að segja að ekki sé tími til slíkra hluta... það er nefnilega svo gott með tímann... að það kemur alltaf meira af honum.


Sjúkk... hélt þeir væru að dæma íslendinga

Þar sem allt er svo gott í útlandinu þá hélt ég kannski að danska dómskerfið væri þessu skilvirkara en hér á Fróni og því væru þeir nú þegar búnir að dæma landana til fangelsisvistar.

En auðvitað þarf Daninn ekkert að hafa fyrir því... við erum nú þegar dæmdir til langvarandi þrælkunarvinnu og sá dómur virðist, eins og kvótinn forðum, eiga að erfast.


mbl.is Fundnir sekir um hryðjuverkastarfsemi í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr einum gjaldþrota banka í annan

Kannski verður hann svo í framhaldinu settur yfir skilanefnd Icebank og getur síðan orðið bankastjóri þar aftur eftir yfirtökuna.Blush
mbl.is Nýr bankastjóri Nýja Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera á bísanum...

Það hlýtur að vera skemmtilegt hlutverk að sitja með símtólið í höndunum... og líða ekki ósvipað og Oliver Twist með súpuskálina forðum:

"Blessaður.... þetta er Engabjörg... áttu nokkuð aur á lausu?


mbl.is Ingibjörg ræddi við Norðmenn og Frakka um aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband