Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
4.7.2007 | 13:38
Stórhættuleg þessi eldamennska
Skil bara ekkert í því hversu heilbrigður þessi ungdómur er í dag. Aldrei hefði hvarflað að manni að standa í einhverri eldamennsku á þessum útihátíðum sem maður sótti í gamla daga. Enda var maður í 'öðru'.
Vonandi að þeim batni fljótt og vel.
![]() |
Fjórar stúlkur slösuðust á Hróarskelduhátíðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.7.2007 | 13:25
Hvernig væri að nota PÚKANN blaðamenn
"Yfir 100 keppendur ... Valgerður Sigurðardóttir enaði í þriðja sæti... ...Næsta Hornafjarðarmannamót verður á Unglingalandsmót(i) UMFÍ á Hornafirði um verslunarmannahelgina. Þá verður reynt að setja Íslandsmet í þátttökufjölda á spilamóti. Ekkert þátttökugjald verður en áheit fyrir hvern þátttakanda mun renna til til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNECEF.(UNICEF)"
![]() |
Nýr heimsmeistari í Hornafjarðarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.7.2007 | 13:04
Það var mikið...
Hilary hyggur þó á "alvöru leikferil" á næstunni. "En það fer í taugarnar á mér að leikstjórar geti ekki hætt að sjá mig í þessu barnastjörnuljósi!"
Það hlaut að koma að því að hún hæfi leikferillinn. Við sem erum áskrifendur á SKY og eigum börn... könnumst ansi vel við þessa stelpuna og myndum sjálfsagt ekki sakna hennar þó hún tæki sér svona eins og aldarfjórðung í frí.
![]() |
Hilary á heljarþröm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2007 | 13:00
Enginn er verri þótt hann vökni... nema ég
![]() |
Þurrum góðviðriskafla að ljúka - skin og skúrir um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2007 | 12:52
Tær snilld
![]() |
Býður ódýrari lyf á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.7.2007 | 12:36
Þörf ábending
![]() |
Sjúkraflutningamenn oft einir á ferð með sjúklinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2007 | 12:28
Skyldu Elvis eftirhermurnar ekki hafa verið á lausu
Manni finnst einhvern veginnn að þeir sem líta á það sem aðalatriði hver dagsetningin sé... ja séu bara ekki með aðalatriðin á hreinu. Enda hefur oft komið á daginn að þar sem öllu púðrinu er eytt í umgjörðina hafa menn klikkað á innihaldinu og oftar en ekki er öruggara að vera ekkert að senda út gullbrydduðu boðskortin alltof snemma. Þau hafa í sumum tilfella verið komin fram yfir síðasta söludag áður en að jánkinu kom.
En vonandi hafa bara þessi pör sem hættu við daginn áttað sig á því að það er ekkert ofsalega spes að gifta sig á degi sem orðin er svona Multi-Marriage dagur. Ekki nema þau hefðu þá kannski látið framkvæma þetta klukkan 07:07 um morguninn
![]() |
Hætt við hjónavígslur 07.07.07 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.7.2007 | 12:09
Láttu Bullit í friði
Sumt á bara einfaldlega að láta í friði. Ég man ennþá eftir þessari bíóferðinni. Sat, 10 ára gamall, nálægt enda á öðrum eða þriðja bekk í Borgarbíó á Akureyri og fékk í magann af því að horfa á þennan einn frægasta eltingaleik kvikmyndasögunnar um hæðir San Fransiskó.
Á þessum tíma voru menn ekki vanir slíkum skotum enda lítil þjálfun af vídeóleikjum, sjónvarpi, tölvum og öðru og heilinn bara las þetta ekki sem best. En kikkið var geggjað. Og ekki síður töffarinn Steve McQueen og bílarnir.
Steve ók sjálfur í þessum eltingaleik og vildi alls ekki nota stuntara. Reyndar þurfti bara að nota tvo 390 Mustang GT fastback og tvo Dodge Charger R/T 440 Magnum í þennan eltingaleik svo þessir kallar gátu sannarlega keyrt. Það sem var líka sérstakt við þennan eltingarleik í annars dapurri sögu var sú snilld að vera ekkert að keyra einhverja tónlist yfir heldur leifa manni að fá hljóðin fá bílunum í æð.
Enda kom ekkert annað en Mustang til greina þegar maður fjárfesti í fyrsta ameríska bílnum nokkrum árum seinna. Sá vagninn þoldi að vísu ekki eins vel stökkin og hinn í Bullit en þó var mesta furða hvað hann hékk saman og ekki var eins og ekkert hefði verið reynt á hann.
![]() |
Pitt endurgerir Bullitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.7.2007 | 11:30
Paris á þing!
En koma yfirburðir bandaríkjamanna í ljós. Sú þjóð sem hefur efni á því að vera með slíkan hugsuð utan þings er sannarlega rík.
![]() |
Akstur og áfengisneysla eiga ekki samleið að sögn Parisar Hilton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2007 | 03:13
Sukk Festival '80
Þetta eru nú gömul vísindi og ég man að ég hélt smá veislu í húsnæði Bílasölu Norðurlands árið 1980, en þá stóð til að rífa húsnæðið. Til þessara veislu, sem bar nafnið Sukk Festival 80, var boðið hraustmennum í öllum skilningi og þeim bent á að það væri ekkert óskað sérstaklega eftir því að þeir gengju vel um, og mættu þess vegna brjóta allt og bramla.
Reyndar kom það að sjálfu sér eftir að hafa drukkið nokkra þvottabala af bollu sem var ca. 25% að menn fóru að ganga á veggi og gengu hratt um gleðinnar dyr, og það án þess að opna þær, og því leit þessi bílsalan ekkert sérstaklega professional út daginn eftir.
En það var nú svo sem ekkert sérstaklega hægt að hrósa útliti veislugestanna þann morguninn heldur. En þeir virtust þó sínu slakari en kvöldið áður.
![]() |
Óvenjuleg aðferð til að draga úr streitu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 203447
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar