Leita í fréttum mbl.is

While my guitar gently weeps

While my guitar gently weeps spilað af Jake Shimabukuro

 

Geriði svo vel...


Já haldiði það virkilega?

selfoss"Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða að sögn lögreglunnar á Selfossi."

Hm... Annars er nú oft heit umræðan í mogganumBlush


mbl.is Kveikt í blaðagámi á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í fyrsta skipti á æfinni

BR433Við pöntuðum okkur nýja Hyundai Santa Fe í gær og fáum afhentan á föstudaginn. Ég hef átt yfir 1000 bíla á lífsleiðinni(var atvinnubraskari í 25 ár) en aldrei fyrr eignast nýjan bíl svo þetta er svona svolítið öðruvísi tilfinning. Ætlaði reyndar að kaupa ársgamlan og kom á einum slíkum heim svona til að skoða en fannst lítið til um og Helga mín rak mig með hann til baka og sagði mér að kaupa mér gullitaðan Land Cruiser eða Santa Fe, en það voru þeir tveir sem mér leist skást á. Og eins og alltaf þá hlýði ég konunniWink

Við völdum bensínbílinn fram yfir dieselinn svo ef einhver græninginn er að lesa þetta getur hann hæglega kolefnisjafnað fyrir einum svona til viðbótar frekar en að fussa... því örugglega gerum við það ekki.


Ef það stendur ekki LOOSER á enninu á þessum ljósmyndurunum.. ja þá hvað?

Fékk einu sinni pela í mig og er ekki frá því að ég eigi ennþá við afleiðingar þess að stríða. Hafði verið að gefa dóttur minni og hún slengdi honum utan í mig, að vísu tómum... Yeah right...

Djöfulsins aumingjar eru þetta sem kaninn ræður í að taka ljósmyndir. Það er þó alveg með ólíkindum hvað þeir ná mörgum bitastæðum myndum miðað við grenjurnar í þeim.... maður skyldi halda að þeir sæju ekki einu sinni sína nánustu fyrir öllum táraflaumnum... að ekki sé minnst á hvernig þeir hafa yfirleytt tíma til myndatöku... fyrir setu hjá lögfæðingum þar sem þeir virðast eyða lunganum af starfsferlinum í að lögsækja hvert celebrity-ið á fætur öðru ýmist fyrir kjafthátt eða pelakast. 


mbl.is Ljósmyndari segir Britney hafa hent í sig pela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrja dönsku grenjurnar

Fer ekki að styttast að milljarðadrengirnir okkar slái bara í púkk og kaupi þessa sjoppu og leggi hanna bara niður. Það hlýtur að vera einfaldara og ódýrara en að slást við skilningsleysi dananna...

eða hafa þeir kannski eitthvað til síns máls?


mbl.is Danske Bank varar við ástandi mála á nýmörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfull verður manni óglatt...

... að lesa um það að menn sem ekki uxu uppúr því að leika sér í fótbolta, fái 17 milljónir á viku fyrir það eitt að leika sér áfram...

Ég er með fullt af áhugamálum en þarf alltaf að borga fyrir dellurnarCrying


mbl.is Terry verður sá launahæsti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri andskotans frekjan í þessu NASA liði

Þetta er náttúruelega bara skerðing á persónufrelsi að þessir geimfarar megi ekki vera dauðadrukknir þegar þeim er skotið upp. Enda svo sem skiljanlegt að þetta lið þurfi að sulla í sig svona eins og einni og hálfri af hugrekki áður en það skjögrar útí þessar sjálfsmorðs-rakettur.

Ég var svo vitlaus fyrir lestur þessarar fréttar að ég helt að þessir geimfarar fengju ekki að innbyrða áfengi vikum saman fyrir brottför?


mbl.is Reglur settar um áfengisneyslu geimfara NASA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkara runnum en skógi

ScoutcatÓk þarna framhjá fyrir nokkrum árum og spurði eiginkonuna hvort við færum ekki að koma að þessum Galtalækjarskógi... "Þetta er Galtalækjarskógur" var svarið. Mér fannst þetta miklu líkara runnarjóðri en skógi.

En svo er þetta kannski bara lenska hér sunnanlands... kom til Eyja fyrir nokkrum árum og þar kalla þeir jú kvosina sína Herjólfsdal og tala um að Ísland sé stærsta eyjan í Vestmannaeyjaklasanum... svo hvað veit ég?

Og ofan á allt þá fluttist ég á Selfoss en bý í Árborg


mbl.is Galtalækjarskógur seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fucking Iceland væri réttnefni...

chainesFerlega fara svona "atvinnu" auðnuleysingjar með sýniþörf í taugarnar á mér.

Ef þetta lið er svona sólgið í hlekki... getur það þá ekki bara fundið sér leikföng í Adam og Evu til að stunda þetta blæti sitt?


mbl.is Átta mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband