24.7.2007 | 11:43
Koníaksæði í Makedóníu
Blaðið segir, á forsíðu í dag, frá "Koníaksæði í Makedóníu". Mitt er náttúrlega örugglega löngu orðið "alcohol-free" eftir 16 ára edrúmennsku.
En þetta er auðvitað búbót fyrir portkonurnar
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.7.2007 | 00:10
Bara fleiri teknir...
Er ekki viss um að raunveruleg aukning hraðaksturs eigi sér endilega stað. Það eru bara fleiri teknir fyrir of hraðan akstur enda verið trend að undanförnu að vera hneykslaður á ofsaakstri og það virkar líka á löggæsluna, sem þá beitir sér af meiri hörku. Komnir með þyrlu í dæmið og alles.
Sá síðast í gær lögreglumann hanga utanvegar hér á Selfossi að skjóta á umferðina. Sjaldgæf sjón að sjá þá á skyrtunum híma á bak við hól í von um að sjást ekki. Minnir á gamla tíma.
![]() |
Umferðarlagabrotum fjölgar; mikil aukning á hraðakstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.7.2007 | 10:59
Fyrringin að verða algjör
Samkvæmt fréttinni lánaði dokksi manni símakort, talaði við einhvern og lánaði.. eða fékk lánaðan einhvern 15 þúsund kall fyrir nokkrum árum? Djöfuls krimmaskapur er þetta. Ja það er ekki flókið fyrir Ástralana að losa sig við útlendingana.
Ástralía fyrir Ástrala!
![]() |
Haneef vísað frá Ástralíu að réttarhöldum loknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2007 | 10:38
Þyrlu River Dance
Hérna gefur að líta ótrúlega færi í þyrluballett.
svona í tilefni þess að allir syntu heilir frá borði í Straumsvíkurslysinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2007 | 21:25
Bloggfrí og pallasmíðar
Jæja þá er maður komin í smá bloggfrí... ég kemst hvort eð er aldrei ofar en í 6. sætið á þessum vinsældarlista bloggsins og svo kemur aldrei mynd af mér í mogganum og svo....
En að öllu gamni slepptu á að fara í pallasmíðar um helgina og ég verð svo þreyttur af því að horfa á hann Víði tengdason minn vinna.. að ég kem örugglega ekki til með að nenna að blogga með því.
Við erum að setja niður einn 30 fermetra pall í viðbót svo grasið minnkar... hægt og bítandi.
Verið glöð og góð um helgina og njótið lifsins. Það er ekki brúklegt til annars.
13.7.2007 | 14:01
Gítarsnillingur
Ég hef verið að glamra á gítar frá því ég var krakki en aldrei svo sem kunnað neitt. Sjálfsagt þessvegna er ég heillaður af þeim sem kunna eitthvað og hér er einn snilli, Andy McKee sem tekur hér Africa með TOTO fyrir þá sem misstu af tónleikunum
Læt svo fljóta með annað ekki síðra og spilamennskan ekki beint hefðbundin hjá Andy McKee frekar en fyrri daginn, en hérna tekur hann lagið Drifting
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2007 | 19:52
Fullur á Ibiza
Eyddi hálfum mánuði þarna fyrir margt löngu og naut. Hafði eina nóttina skotist á næturklúbb og var enn hraustlega hífaður þegar ég renndi niður í bæ á Vespu sem ég var með á leigu. Ekki tókst betur til í einni beygjunni en að ég flaug á hausinn í hálfgerðri lausamöl sem keyrðist uppúr vegakerfinu þarna. Ég ligg svo þarna í götunni að reynda að ná attum og sé að á gangstéttinni í 2ja metra fjarlægð stendur lögregluþjónn með alvæpni. Sá það fyrir mér að vera hirrtur en Vörður gekk til mín og spurði "You OK?"... "Yes" umlaði ég... "Bike OK?" "Yes" umlaði ég aftur "OK".. og þar með gekk hann burtu.
Hann hefur eflaust séð eftir jákvæðninni, þegar kolruglaður íslendingurinn steig á vespuna og ók í stressinu í burtu "á móti umferðinni". En hvað kemur þetta 2 ströndum á Ibiza við? Jú því að eftir að hafa ruglast þarna í riminni.. rataði ég ekki til baka á hótelið svo frekar en að spyrja til vegar þá ákvað ég að aka bara ströndina til baka, þar sem hótelið var alveg niðrá strönd. Þetta gekk fantavel þar til ég kom að vegg sem var á alveg niður í sjó fram og þá voru góð ráð dýr. Þetta var veggurinn á sundlaugagarðinum á hótelinu sem við bjuggum á.
Ég reyndist svo vera aðalskemmtiatriðið á einhverjum fundi seinna um kvöldið því auðvitað höfðu gestir ásamt fararstjórunum(sem ég tók ekkert eftir) hleygið sig rúmlega máttlaus þegar ég var að henda Vespunni yfir vegginn með miklum átökum. Eftirtektin var ekki betri en svo að ég hafði ekki séð nokkurra metra breitt, bílfært gat í vegginn nokkrum metrum frá mér svo þeim fannst bjástrið rúmlega gott á mig.
Hefði hinsvegar verið mun erfiðara að hafa gott grip á Vespunni hefði maður verið búin að löðra hana alla út í olíu á ströndinni - Og þarna er tengingin komin við fréttina
![]() |
Olíubrák á sólarströndum Ibiza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2007 | 19:32
Er Lyfjastofnun nýja Netlögreglan?
Hélt að Steingrímur væri í minnihluta...
Ég hélt einnig að læknum væri eingöngu bannað að auglýsa læknaþjónustu sína svo mér er til efs að Lyfjastofnun hafi eitthvern rétt til að krefjast lokunar þó svo að hver sem er geti svo sem óskað einhvers.
![]() |
Lyfjastofnun telur vefsíðuna minlyf.net vera ólöglega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2007 | 16:39
Lúmskur sjúkdómur...
Hélt að ef tekin eru lyf sem bæta líðan fólks þá minnkuðu líkurnar en kannski er það ekki algilt? Eflaust hægt að vera svo down að menn hafi ekki þrek í að fyrirfara sér.
![]() |
Færri sjálfsvíg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2007 | 16:16
Túlk í hvelli...
Annar maðurinn mun vera mikið brenndur á andliti eftir að eldur kom upp í bíl, sem hann var í, og höndum en hinn brenndist á fæti....
Er hægt að orða þetta öllu lakar?
![]() |
Steig í hver við Mývatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 203494
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar