Leita í fréttum mbl.is

Í fyrsta skipti á æfinni

BR433Við pöntuðum okkur nýja Hyundai Santa Fe í gær og fáum afhentan á föstudaginn. Ég hef átt yfir 1000 bíla á lífsleiðinni(var atvinnubraskari í 25 ár) en aldrei fyrr eignast nýjan bíl svo þetta er svona svolítið öðruvísi tilfinning. Ætlaði reyndar að kaupa ársgamlan og kom á einum slíkum heim svona til að skoða en fannst lítið til um og Helga mín rak mig með hann til baka og sagði mér að kaupa mér gullitaðan Land Cruiser eða Santa Fe, en það voru þeir tveir sem mér leist skást á. Og eins og alltaf þá hlýði ég konunniWink

Við völdum bensínbílinn fram yfir dieselinn svo ef einhver græninginn er að lesa þetta getur hann hæglega kolefnisjafnað fyrir einum svona til viðbótar frekar en að fussa... því örugglega gerum við það ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju með nýja bílinn. glæsilegur vagn.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.8.2007 kl. 23:08

2 identicon

Virðist vera eðalkerra - Til hamingju! En mundu nú þegar þú ekur um í fína jeppanum (eða kallast þetta jepplingur? ) að vera góður við okkur hin sem eigum bara lágvaxinn fólksbíl. Á tveimur árum er tvisvar búið að brjóta fínu framrúðuna mína (hún er sko með rafhitunarkerfi) og í bæði skiptin var það jeppi .

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 23:34

3 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Takk takk.. Já allavega hafði hann vinninginn fram yfir Land Cruiserinn... meira pláss meira afl og betri að keyra svo við erum alsæl með þessa ákvörðun. Ég verð bara að hóa í þig Anna mín ef ske kynni að ég skryppi norður og þú getur þá bara annað hvort flúið fjórðunginn eða smellt þessum framrúðulasna í bílskúrinn á meðan.

Og ef það var JEPPI sem braut framrúðuna hjá þér þá er þetta JEPPLINGUR..en ef það var JEPPLINGUR sem stútaði henni...ja þá er þetta sko JEPPI

Þorsteinn Gunnarsson, 2.8.2007 kl. 02:01

4 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Til hamingju með jeppann.  Frúin hefur greinilega vit á bílum því að allt bendir til að Hyundai sé að skáka Toyota í gæðum. 

Ég var að snúa til baka frá Mallorca þar sem ég átti góðar stundir með fjölskyldunni.  Þegar ég kom til baka mundi ég að ég hafði gefið jeppann minn áður en ég fór (forláta Nissan Pathfinder árgerð 1990 ekinn 88 þús. mílur).  Ég sökk því niður í hugarvíl því að mér þykir illt að vera jeppalaus.  En ég hef uppi ráðabrugg um að kaupa mér Cadillac Escalade næsta vor og hugga mig því við dagdrauma.  Ég hef ekki reiknað út hversu mikinn mannskap eða land þarf undir kolefnisjöfnuð gripsins.

Hreiðar Eiríksson, 2.8.2007 kl. 09:28

5 identicon

Veit ekki af hverju ég sé fyrir mér gjallarhorn á þakinu á nýja fína jeppanum: „Anna, vara sig, ég er mættur í bæinn“

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 09:50

6 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Hreiðar - Takk takk og velkominn heim. Já ég settist inní einn Cadda á dögunum og ég var bara varla nógu kloflangur til að hafa mig yfir sílsann en það fór nú svo sem ekkert illa um mann eftir að inn var komið. Ég var að hugsa um að flytja inn jeppa og hefði hæglega geta sparað vel á aðra milljón með því... en eins amerískur og ég er nú bílahugsandi fann ég bara engan sem heillaði. Því ég var jú bundinn af því að finna bíl sem Helga gæti sest beint inní en þyrfti ekki að klifra uppí, þar sem hún hefur ekki náð fullum styrk eftir lömunina ennþá. En dagdraumarnir hugga

@ Anna - Nei það verður sko ekkert gjallarhorn... Þannig að þú verður einfaldlega að vera á varðbergi, vakin og sofin, yfir framrúðunni. 

Þorsteinn Gunnarsson, 2.8.2007 kl. 11:08

7 Smámynd: Páll Jóhannesson

Til hamingju með bílinn - vel valið.

Páll Jóhannesson, 3.8.2007 kl. 00:21

8 identicon

Glæsilegt ,,,  það þarf bíl sem hæfir eigandanum.

Fransman (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 11:18

9 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

en afhverju bensín ....ég næ því ekki

Einar Bragi Bragason., 8.8.2007 kl. 01:15

10 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Palli & Jón Arnar - Takk takk - @ Fransman - Sammála!

@ Einar Bragi -  Bensín bíllinn er hljóðlátari, ódýrari, aflmeiri og lyktar betur. Svo einfalt er það nú

Þorsteinn Gunnarsson, 8.8.2007 kl. 01:45

11 identicon

Glæsilegur bíl og til lukku með það  mundi nú samt taka Land Cruiserinn minn framyfirsem vill svo til að er með sama lit og þinn.

Hlakka til að fá sendingu frá ykkur, verð reyndar í bænum þann 12 sept spurning hvort ég gæti bara tekið þetta hjá ykkur þá en best ég sendi póst á Helgu um það.

(IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 10:29

12 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Silla - Takk takk...  Já við ökum náttúrulega eingöngu á  gullvögnum... enda annað ekki boðlegt alvörufólki - Já já.. Þið Helga finnið útúr þessu með kertin enda það kannski ekki alveg mín deild 

Þorsteinn Gunnarsson, 2.9.2007 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 203042

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband