9.10.2008 | 14:19
Nýr seðill í umferð
Eftir því sem heimildir herma ætla Rússar að kaupa fyrrum KB banka eftir helgina og hefur heyrst að hið nýja nafn bankans verði KGB. Í framhandi af þessu hefur Seðlabankinn látið prenta nýjan milljónkrónaseðil
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 14:09
Dýr dýralæknirinn
Ég endurtek bar það sem ég bloggaði um í gær:
Seðlabankastjórinn óðamála er lögfræðimenntað smásagnaskáld sem hefur aldrei praktiserað lög
Fjármálaráðherrann ósýnilegi er dýralæknir
Bankamálaráðherrann er með BA-próf í sögu og heimspeki.
Utanríkisráðherrann(starfandi) er sérfræðingur um kynlíf silunga
Er þetta kokteillinn sem við þurfum þessa dagana?
![]() |
Samtal við Árna réð úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2008 | 01:11
Þeir hafa greinilega horft á hryðjuverkamanninn í Kastljósinu
Pælið í einu... það þarf 4 ára sérnám til þess að fá réttindi til að mála húsveggi.
Seðlabankastjórinn óðamála er lögfræðimenntað smásagnaskáld sem hefur aldrei praktiserað lög
Fjármálaráðherrann ósýnilegi er dýralæknir
Bankamálaráðherrann er með BA-próf í sögu og heimspeki.
Utanríkisráðherrann(starfandi) er sérfræðingur um kynlíf silunga
Er þetta kokteillinn sem við þurfum þessa dagana?
Geir Harde virðist eini maðurinn sem hafi menntun til að standa í þessum slag. Hann er þó með BA-próf í hagfræði frá Brandeis-háskóla, Bandaríkjunum, 1973. MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins-háskóla, Bandaríkjunum, 1975. MA-próf í hagfræði frá Minnesota-háskóla, Bandaríkjunum, 1977. Og ofan á allt saman veitti Minnesota-háskóli honum síðan heiðursdoktorsnafnbót í fyrra.
En Geiri er bara ekki nóg - Það þarf að koma sérfræðingum til starfa og ákvarðanatöku í sSeðlabankann og það strax. Og það mætti eflaust skipta út víðar.
![]() |
Hryðjuverkalög gegn Landsbanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.10.2008 | 22:04
Innlent eða ...
Finnst það lýsandi fyrir ástandið í dag að sjá innlenda hluta fréttanna hér til hliðar á blogginu áðan og fréttirnar flestar á erlendri tungu.
En auðvitað borgar sig að þýða þetta ofan í útlendingana strax hér heima í héraði frekar en að bjóða þeim upp á að stauta sig í gegnum fréttirnar á ástkæra ylhýra.
Selur í fjörunni í Sandgerði gæti hæglega orðið: Selling at the beach in Grindavik
Veikur farþegi og flugdólgar í Keflavík gæti orðið: Weak passenger and fly knives in Keflavik
Ég fæ sennilega ekki vinnu við þýðingar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2008 | 12:40
Ísland er gjaldþrota - Fósturforeldrar óskast
Þeir aðilar sem ekki eiga fyrir sínum skuldbindingum eru gjaldþrota.(Davíð um bankana)
Ísland er því í raun, samkvæmt hans eignin kennngum gjaldþrota, og sjálfstæði landsins þar með fyrir bí.
Breska ríkisstjórnin hyggst fara í mál við Íslenska ríkið upp á margföld ríkisfjárlög. Flreiri þjóðir munu koma í kjölfarið. Yfirlýsingar um að ríkið ætli ekki að standa við lagalegar skuldbindingar sínar í útlöndum jafngildir þjóðagjaldroti og brátt hlaðast ábyrgðir vegna enn fleiri íslenkra banka erlendis, í þann pakka.
Við höfum verið sjálfstæð síðan 1944 en nú er svo komið að það eina sem getur bjargað okkur væri það að einhver þjóðin gæti hugsað sér að ættleiða krógann.
![]() |
Ekki hægt að halda gengi föstu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.10.2008 | 11:48
Elska kaldhæðinn húmor...
og það jafnvel þótt að snúi að mér sem aumum íslendingi. Þeir eru ekki margir sem mótmæla því í dag sem Danirnir sáu og rituðu um íslenskan efnahag á síðustu misserum.
Danskurinn á fyrir þessu háðinu... skuldlaust
![]() |
Söfnun fyrir Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2008 | 01:01
Gæfa og gjörvileiki
Djöfull er hann orðinn gamall... kominn á ellilífeyri... mér finnst svo örstutt síðan að hann var bara á mínum aldri
![]() |
Nick Nolte slapp út úr brennandi húsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.10.2008 | 00:04
Ég var í fjármálaráðgjöf hjá Glitni í dag
Fyrir nokkrum vikum var okkur hjónum boðið að þiggja fjármálaráðgjöf hjá Glitni og fyrir forvitni sakir þáði ég það boð. Ég var svo sem ekki viss um að af þessu yrði en klukkan 9 í morgun hringdi þjónustufulltrúi og minnti okkur á ráðgjöfina. Nú við mættum og þáðum allskonar gjafir í boði ríkisins og löguðum til á reikningum og annað í þeim dúr.
Einhvernvegin fann maður samt fyrir feigðinni og það þrátt fyrir fína þjónustu fulltrúans. Ég hef verið í viðskiptum við þennan banka og forvera hans í tæp 40 ár og finnst miður að hann sé allur.
En samt er, á undarlega tvískinnungslegan hátt, feginn að Davíð skyldi svíkja loforðið sem hann gaf Glitni því ef hann hefði staðið það loforð væri hvort tveggja Glitnir og íslenska ríkið feigt. Og nú lengist í það minnsta í hengingaról ríkisins.
Er á meðan er...
![]() |
FME tekur Glitni yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.10.2008 | 21:07
Vangefna liðið....
Rosalega eru þeir andstyggilegir við okkur þessir Fitch Ratings gæjar og skilninglausir á íslensk efnahags- og bankamál....
þeir hafa greinilega ekki horft á Dabba í Kastljósinu
![]() |
Fitch lækkar lánshæfismat Landsbankans og Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.10.2008 | 20:54
Það er bara allt í stakasta lagi...
Ég vissi að þetta væri allt saman tómur miskilningur... og að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af mesta axarskafti embættismanna á Íslandi fyrr og síðar. Auðvitað þurfa þeir ekki að leggja 86 milljarðana í Glitni... jú þeir ætla að verða búnir að fella bankann fyrir hluthafafund. Snilldin ein...
Skyldu Seðlabankamenn geta komið frá sér einu marktæku plaggi. Mér er til efs að Davíð og félagar trúi eigin minnismiðum hvað þá annað.
Þeir gáfu út yfirlýsingu þess efnis að þeir hefðu keypt 75% hlut í Glitni á 86miljarða. - Sannleikurinn: Glitnir verður yfirtekinn af FME fyrir hluthafafund og bankinn fær því aldrei krónu!
Við eru sko búnir að fá lán frá Rússum - Sannleikurinn: Sendiherrann kíkti í kaffi og útilokaði ekki að Rússar myndi skoða það að aðstoða Seðlabankann ef hann óskaði eftir því.
Við sögðum frá því sem væri að gerast í ræðu og riti - Er það nema von að enginn hafi trúað Seðlabankastjóra?
Ég rak bílasölur og stundaði bílabrask árum saman og er hræddur um að maður hefði ekki enst lengi í því starfinu hefði verið jafn lítið að marka mann og Seðlabankann.
![]() |
Ríkið borgi ekki skuldir óreiðumanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar