Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Undarleg keppni og eitthvað var þarna verulega OFF

Ég veit ekki hvað skal segja... Vinningshafinn söng svo sem vel og allt það... en 2. sætið er mér með öllu óskiljanlegt. Sorrý. Þriðja sætið var flott!(rangt sæti samt) Vil meina að það hafi verið eitthvað verulega mikið að störfum dómnefndar þarna... ef hún starfaði eitthvað yfir höfuð.

Þarna var t.d stelpa þarna... minnir að hún hafi verið frá Egissltöðum sem söng óaðfinnanlega var pottþétt á píki og alles.... og reyndar fleiri sem mér fannst flottir. Alltof margir voru þó ýmist vart á lagi eða "héngu" neðan í laginu. Auðvitað er erfitt vegna stress fyrir marga að koma fram og það jafnvel í fyrsta skipti.  Og kannski vantað monitorun eð eitthvað en vilji keppni sem þessi láta taka sig alvarlega þá verður flutningurinn einfaldlega að skilja á milli feigs og ófeigs.

Og í guðsbænum fáið einhvern sem byrjar ekki allar setningar á Hérna... og nefnir flytjendur og/eða lög bara þegar hann er í stuði til þess, til að kynna næst.

Sorrý Bjartur eins og ég er nú hrifinn af þér í gullna dressinu.


mbl.is Verslósigur í söngkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Býr Osama á Akureyri?

Skrapp norður á Akureyri í gærmorgun að fylgja föður æskuvinar míns til grafar. Lenti um 10 leytið í gærmorgun og Villi, vinur minn að norðan, hafði skilið eftir bíl á flugvellinum svo ég væri nú ekki lens í Heiðardalnum. Auðvitað mundi ég ekkert hvaða númer var á bílnum hans... og þar að auki hafði hann endurnýjað frá því ég var síðast fyrir norðan svo ég var ekkert í of góðum málum með að finna kvikyndið. Sá samt einn líklegan og reyndi að opna hann.... en hann brást hinn versti við og flautaði eitthvert helvítis hátíðnihljóð á mig. Ég gekk greiðlega á braut...

Auðvitað fann ég svo bílinn og burraði inn í bæ svona til að skoða fornar slóðir. Mikið óskpalega brá mér að sjá hrópandi smekkleysið sem virðist vera orðið landlægt í skipulagsskortinum nyrðra. Þetta ómenningarhús, ásamt heimskustu framkvæmd ever... þ.e þessum slysavarnarhjalli... er gjörsamlega búið að eyðileggja alla möguleika á því að gera Strandgötuna að þeirri perlu sem hún átti svo sannarlega möguleika á því að verða. Þar hefði átt að setja upp smábátahöfn, flotbryggjur og setja fallega lágvaxna "Nýhafnar" byggð. En nei nei... þeir smella þessum ógeðslega steypuklump þarna og eyðileggja í leiðinni einnig ásjónuna til norðurs þegar komið er inn í bæinn að sunnanverðu.

Er Osama kannski yfirmaður á Tæknideildinni? 

Mér finnst alveg orðið spurning hvort ekki ætti að gera þá lágmarkskröfu til þeirra sem ráða sig til skipulagsyfirvalda og tæknideilda...að þeir væru í það minnsta ekki blindir. Ég veit að fatlaðir hafa forgang til vinnu en það hlýtur bara að mega gera einstaka undantekningar í þessum tveim deildum bæjarnins.

Flottasta byggingarsvæði bæjarins ofan Krossaness er svo nýtt undir bílasölur batterý og brotajárn? Hver leyfði blokkirnar á Baldurshagatúninu? Hver gaf grænt ljós á blokkirnar við Mýraveginn? Hver gaf út leyfi fyrir blokkarógeðinu í miðbænum og hvaða gálagahúmoristi hannaði Naustahverfið( sem mér var reyndar bent á að hætta mér ekki vegakortslaus inní)?

Svo er verið að tala um að tíðni hryðjuverka sé há í Írak?

Ja það er eins gott að Bush er ekki gamall AkureyringurFrown

 

 


Er þetta ekki uppnefni?

Að kalla Miska Bætur eða hvað hún heitir leikkonu er álíka glórulaust og að kalla mig Twiggy. Finnst hún alveg skemmtilega laus við leikhæfileika að ekki sé minnst á 6apíl-skortinn.  En hvað veit ég svosem... kominn á 6tugsaldur.

Hinsvegar finnst mér athyglisvert að henni er gert að fara á 3ja mánað námskeið um "meðhöndlun áfengis". Hvernig skyldi kennslan fara fram?

"Ok allir að hella sér í glas.... og súpa.... kyngja.... endurtakist eftir þörfum"... "nú eða bara eftir stemmingu"

"Geymist á köldum stað"...."Haldið þétt um glösin" ... "Forðist að bera opin eld að Teqíla" ... "Notið sver glös þá er minni hætta á að þið hellið framhjá"...  og svo bara muna elskurnar... að það borgar sig ekkert fyrir yklkur að láta renna af ykkur... þá þurfiði einfaldlega að byrja á byrjunarreit aftur. Og eins og allir vita þá skapar æfingin meistarann.

En kannski væri bara ráð að dæma hana til að vinna á barnum á GoldfingerBlush 


mbl.is Mischa Barton fær þriggja ára skilorðsbundinn dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég færi aldrei í tusku...

í hennar sporum...

En það má nú veri meiri nostalgían að kaupa mynd af Bríslu Bardó fyrir einhverjar upphæðir. Kunna þessir menn ekki að gúggla?Blush


mbl.is Ljósmyndir seldust fyrir metfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði íslenska ríkið hlaupið undir bagga?

Það er viðbúið að Geir hefði stokkið uppi eins og eina einkaþotu til fundar við þá sem nenntu að hlusta, hefði þessi bankakrísan komið upp hér á skerinu.
mbl.is Sæðissvindlari sakfelldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sílikoneyðir

Það skyldi þó aldrei verða að Lýsið yrði mest selda varan í Hollywood innan tíðar. Það er nú ekki eins og að ein og ein "öndin" þar mætti ekki við því að missa mesta stútinnBlush  
mbl.is Lýsi fjarlægir efni úr vörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næst sendum við þetta lið með...

... fraktara.

Það getur engu breytt þó svo að þeir verði nokkrar vikur í túrnum. Hér heima segja þeir hvort sem er öllum stundum að allt sé í himna... svo hver væri skaðinn?


mbl.is Lágkúra eða óhóf og bruðl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það á hreinu!

Clumsy_Smurf

Þá er það á hreinu að ég er: Clumsy Smurf

Taka prófið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 203094

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband