Leita í fréttum mbl.is

Undarleg keppni og eitthvað var þarna verulega OFF

Ég veit ekki hvað skal segja... Vinningshafinn söng svo sem vel og allt það... en 2. sætið er mér með öllu óskiljanlegt. Sorrý. Þriðja sætið var flott!(rangt sæti samt) Vil meina að það hafi verið eitthvað verulega mikið að störfum dómnefndar þarna... ef hún starfaði eitthvað yfir höfuð.

Þarna var t.d stelpa þarna... minnir að hún hafi verið frá Egissltöðum sem söng óaðfinnanlega var pottþétt á píki og alles.... og reyndar fleiri sem mér fannst flottir. Alltof margir voru þó ýmist vart á lagi eða "héngu" neðan í laginu. Auðvitað er erfitt vegna stress fyrir marga að koma fram og það jafnvel í fyrsta skipti.  Og kannski vantað monitorun eð eitthvað en vilji keppni sem þessi láta taka sig alvarlega þá verður flutningurinn einfaldlega að skilja á milli feigs og ófeigs.

Og í guðsbænum fáið einhvern sem byrjar ekki allar setningar á Hérna... og nefnir flytjendur og/eða lög bara þegar hann er í stuði til þess, til að kynna næst.

Sorrý Bjartur eins og ég er nú hrifinn af þér í gullna dressinu.


mbl.is Verslósigur í söngkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Vonum bara að Bjartur verði betur undirbúinn næst..

Viðar Freyr Guðmundsson, 13.4.2008 kl. 00:36

2 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Verslunarskólaatriði (sigurlagið) klúðraðist eitthvað þar sem sem slökkt var á gítarnum. Sumir vildu meina að hann hafi sigrað út frá því að hafa bjargað sér út úr þessu klúðri eins og hetja (enda gerði hann rétt í þessum aðstæðum)

3. sætið átti að mínu mati heima í 2. eða jafnvel 1. sæti. Maggi bóndi hefði átt að hreppa 3. sætið fyrir frumlegt og ótrúlega vinsællt og gott lag. 

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 13.4.2008 kl. 04:38

3 identicon

Fáránleg keppni. Þarna er peningum okkar skattborgaranna illa varið. Laglausar dekurrófur tröllríða besta útsendingartíma.

Kristján P. (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 07:53

4 Smámynd: Ólafur Björnsson

Já, það er satt... við virðumst vera nokkurn veginn á sömu línu með þetta. 

Ólafur Björnsson, 13.4.2008 kl. 11:09

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Allimalli.... og ég sem missti af þessu öllu saman

Jónína Dúadóttir, 13.4.2008 kl. 11:44

6 Smámynd: Valsarinn

Stelpan frá ME var gjörsamlega ÖMURLEG, eins og flestir söngvarar og ég er nokkur sáttur með topp 3, hefði kannski svissað 2 og 3.

Valsarinn, 13.4.2008 kl. 12:01

7 identicon

Ég fylgist á hverju ári með þessari söngkeppni, verandi gamall keppandi. Ég var mjög hrifin af drengnum sem hafnaði í þriðja sæti og hefði persónulega viljað sjá hann ofar. Það var eitthvað svo skemmtilega heillandi við hann og röddina hans. Það sem mér fannst leiðinlegt var hvað hljóðmaðurinn virtist vera lítið með á nótunum.

Jóhanna Seljan (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 203125

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband