Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2006

Vírusvarnir

trojan-horseVar að til 6 í morgun að brasast við trojur og annan óþverra í einni vélinni hjá mér... Það virðist vera alveg sama hvort maður er með varnir eða ekki... maður fær vísusa.

Fyrir nokkrum árum var ég aldrei með vísusvarnir og fékk aldrei vírus... núna er maður með bönch af þessu dótti en alltaf að sýkjast...

Allavega.. hér eru nokkrar slóðir  sem geta reynst ganglegar:

Online viruscan:

http://support.f-secure.com/enu/home/ols.shtml

http://uk.trendmicro-europe.com/housecall/v6.5/?

 


Leti eða slappleiki

Letin er að vísu stórlega vanmetinn eiginleiki. Verið hálfslappur sinustu dagana... með einhverja pestardrullu og hósta... svo það hefur ekkert verið unnið í byggingarvinnu síðan á laugardaginn en þá tókum við hjónakornin smásyrpu í tiltekt á lóðinni... og hreinsuðum mesta ruslið útúr potthúsinum  en Víðir tengdasonur minn leit við í vikunni sem leið og við skiptum um klæðningu aftan á potthúsinu(svona uppá lookið vegna nágrannanna) og einnig er búið að sníða síðustu panel-lufsurnar að innan svo þetta er allt orðið klárt... meira að segja komin aukavifta í og alles...

Helga kom svo með gardínur með sér úr bænum í dag svo það fer að styttast í orgíur í pottinum... segi nú bara svonaSvalur


Járnið komið á þakið

Jája þá fór járnið á þakið í gær og nú á bara eftir að ganga frá slaglistum og svona nettu smátteríi til að klára að utan...

garago....


Startið

Jæja þá er maður farinn að blogga ofan á allt annað...

IMG_1264sm Var að setja upp ljós og tengja  í nýja potthúsinu og Helga er að gera kertagerðina klára en við vorum að stækka hana og taka til hendinni þar.  Kláruðum loksins að glerja í gær og síðan kom járnið á þakið í dag... svo það fer að sjá fyrir endann á þessu.

Illa heppilegt að þetta hefur verið æðislegt haust því maður hefði ekki viljað standa í þessu í einhverju skítaveðri.

 

 

 

 

 

IMG_1265sm

Hérna sést betur hvernig heildarmyndin á þessu lítur út. Litla húsið í miðjunni er upprunalega kertagerðin en nú er búið að stækka þetta um eina 18 fermetra svo það fer vel um kertagerðarkonuna núna. Hlæjandi


Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband