Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Og eina mjóa línu hálfsmánaðalega

... Þetta hlýtur að bjarga geðheilsu einhverrar nýbakaðrar móðurinnar... Sjúkk... 14 dagar í glas... 13 dagar í glas... 12 dagar í glas... 11 dagar í glas... 10 dagar í glas....

Nú er nóg komið... HVAR ER ÞURRMJÓLKIN?


mbl.is Í lagi að drekka vín með barn á brjósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farðu í jarðtengingu...

Hvenær ætla þessir þingmenn okkar að fara að snúa sér að því sem skiptir máli en ekki endalaust að vera dæla fé í einhvern helvítis óþarfa. Það er endalaust verið að loka deildum á sjúkrahúsum vegna manneklu vegna lélegra launa og/eða að deildir eru lagðar niður í sparnaðarskyni... geðfatlaðir ráfa heimilislausir um göturnar, öryrkjar fá bætur langt undir fátækramörkum... hef ekki nennu til að halda áfram... enda listinn illa langur sem hægt væri að telja upp.

En endilega fleygðu fé í skáksetur... Sorgleg tillaga.


mbl.is Skáksetur til heiðurs Fischer og Friðriki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eða VICE/VERSA

Einhvernveginn segir mnér svo hugur að það verði frekar "vodkinn" sem taki Amy í nefið fyrir rest...

En kannski sér stelpan að sér.


mbl.is Winehouse tekur vodka í nefið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kredit...

Man nú ekki til þess að hafa verið verðlaunaður eitthvað sérstaklega þegar ég vaskaði upp í fyrraDevil
mbl.is Fleiri húsverk - meira kynlíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kastljósið kúkaði uppá kryppuna á sér

Það var nett neyðarlegt að fylgjast með Kastljósinu nú rétt áðan. Jóhanna sýndi alþjóð falsaða auglýsingu sem átti að vera dæmi um neikvæða auglýsingu frá Hillary Clinton og hún var svo rosaleg að það er greinilega frídagur hjá ritstjóra Kastljóssins... eða enginn slíkur við stjórn.

Og reyndar hefðu þetta verið síðustu mínútur einhverra starfsmanna ef þetta hefði verið gert í bandrísku sjónvarpi.


Ég varð fimmtugur í dag

Ég fékk eðli málsins samkvæmt nokkur kort og fannst texti þessara tveggja æðislegastur:

"Til Pabba

Til hamingju með fimmtugsafmælið og gangi þér vel með restina af ævinni

Þinn sonur Kolbeinn"

------------

"Elsku pabbi/afi/Steini

Innilega til hamingju með afmælið og takk fyrir að fullorðnast aldrei:-)

Stórt knús

xoxoxoxoxoxoxoxooxoxoxoxoxxoxoox

Linda, Bjarki og Ríkarður Flóki"

... Yndislegir krakkar.... Fjölskyldan var í heljarinnar vandræðum með að finna gjöf handa fimmtugum gamlingjanum sem auðvitað á allt... og endaði með því að gefa mér GUITAR HERO fyri PSP og Kolli Siggi(12) gaf mér Bílaleik í PSP enda var það svo... að hann var alveg að fara á límingunum af spenningi eftir því að ég tæki upp gjafirnar þar sem honum lá heil ósköp á að taka þann gamla í nefið... einn ganginn enn... Maður er svo að verða semi-pro í Guitar Hero eftir daginn og það syngja gamlir rokkslagarar í hausnum á manniWink 

Linda og fjölskylda gáfu mér síðan gjafabréf í Tónasstöðina í Skipholti, þar sem næsti alvörugítar verður semsagt  keyptur.

Þannig að nú er maður kominn sextugsaldurinn og enn ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að gera þegar  ég verð stór. Enda ungur ennGrin

Þakka allar heimsóknir, kveðjur, símtöl og sms.


Ok kannski ekki tekið hana í fóstur...

og kannski er hún bara höll undir gyðingdóm... og kannski var hún bara að tala um fólk sem var soddan úlfar.... og kannski var hún bara að skrifa um vinkonu sína sem vildi ekki láta nafns síns getið... og kannski er bara sumt í henni veröld svo vitlaust að það ætti ekki nokkur maður að trúa því... og því er það rúmlega gott á þessa vitleysinga að þeir þurfi að fleygja þessu bulli úr hillunum og endurvinna kvikmyndina...

Ja ef það hefur ekki heyrst einhversstaðar "I told you so..." er ég illa svikinn.


mbl.is Ólst ekki upp hjá úlfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband