Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Er ekki í standi með ykkur...

???

Ekkert smá þakklátur fyrir að hafa fengið þessar "upplýsingarnar"! Hef einmitt haldið ofan í mér andanum í ofvæni eftir að þau Gor og Tunna kæmu heim úr brúðkaupsferðinni...

Það eru nú takmörk á því hvurlags ekki fréttir maður lætur bjóða sérAngry 


mbl.is Fyrrum kærasta fékk brúðkaupsmyndirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver lifir versku kynlífi?

Hvað sem um hausana á mb.is er að segja þá er sjaldgæft að sjá svona prentvillur...

...nema þetta sé nýtt blæti...  Spyr sá ekki veit.

02:30 - Búnir að leiðrétta hausinn bessaðir


mbl.is Versta kynlífslýsingin í bók Mailers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krúttleg ránstilraun

bogalinaÞað lá við að maður óskaði sér þess að þessi La Robina Hood hefði komist upp með þetta.

Hvaða spjótkastari skyldi verða til þess að toppa þetta?


mbl.is Framdi rán vopnaður boga og örvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta bráir af olíufélögunum...engar áhyggjur

gasÞeir sem óttast það að eldsneytisverðslækkanir olíufélaganna séu það sem koma skal, geta alveg sofið rólegir. Þessi sótt er ekki krónísk og því bráir þetta af félögunum fyrr en varir.

Menn geta því örugglega tekið gleði sína á ný í fullvissu þess að eldsneytið hækkar aftur. Þökk sé þeim félögunum Oilman, Skattman og Bushman


mbl.is Eldsneytisverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handahófskennd skatttaka

Það að sekta tugi og hundruð ökumanna fyrir að aka á þeim umferðarhraða sem er á tilteknum leiðum er ekkert annað en handahófskennd skatttaka. 

Það er bara einu sinni þannig að umferðarhraði skapast af þörf og/eða aðstæðum. Yfirvöld verða að fara að skilja það að sprungið leiðakerfi(vegir) skapa aukinn hraða. Lausnin er því að bæta aðstæðurnar en ekki endalaust að vera að refsa þeim sem aka á þeim umferðarhraða sem ræður ríkjum á hverjum stað. Kjósi yfirvöld að þvinga hraðann niður á tilteknum leiðum verður það að gerast með öðrum aðferðum en handahófskenndum sektum. 


mbl.is Meirihluti ökumanna ók of hratt um Víkurveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1984 hvað....

1984%20sleeveHvernig endar þessi eftirlitshyggja öll.  Þessar upplýsingar yrðu örugglega enn ein gullnáman til handa tryggingarfélögunum sem gætu sloppið við að greiða bætur vegna þess að einhver ók á 51 km hraða þar sem 50 km/klst er hámarkshraði og svo framvegis...

Ég held að það verði að fara að láta aðeins af þessari öryggismyndvéla-, skanna-, kennitölu- og tölvupólítík. Fyrir það fyrsta kostar þetta of fjár en leysir aldrei mannshöndina af hólmi. Og nú þegar er ástandi orðið þannig... að ég rakst á gangandi lögreglumann á Hringbrautinni um daginn og það var bókstaflega nostalgísk upplifun, svo sjaldgæf er þessi sjón orðin.

Held að væri nær að fjölga lögreglumönnum, og farga nokkrum myndavéla- og tölvudruslum. Því það er nú einu sinni þannig að í mörgum tilfellum skapa þessar græjur dýrari vandamál en þær leysa.


mbl.is Allir bílar undir gervihnattaeftirliti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfum verið að spá í þetta líka...

vestmannaeyjarSkutumst til Vestmannaeyja fyrir 2-3 árum og litum í kringum okkur. Það var helst óttinn við jarðgöngin sem kom í veg fyrir það að við gerðum tilboð. Maður vill jú geta verið í þokkalegum friði heima hjá sérBlush
mbl.is Brad Pitt og Angelina Jolie keyptu sér eyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Datt fyrst í hug að "Stengur" væri dýra-, eða grastegund

...en svo áttaði ég mig á því að aumingjans blaðamaðurinn var að reyna að skrifa um veiði-stangir.

Skyldi blaðamaðurinn annars stunda stengveiði?

--------------------------------------------------
Bætt við 14. nóvember, af Þorsteini Gunnarssyni málfarsfasista:
Blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina, sem vísað er til, sendi mér eftirfarandi ábendingu og kann ég honum bestu þakkir fyrir:

"Skv. Íslenskri orðabók er fleirtölumynd orðsins stöng "stengur eða stangir."

Afsakaðu að ég skuli vera að benda þér á þetta, en það er bara fátt sem fer jafn mikið í taugarnar á mér og málfarsfasismi.

Kveðja,"


mbl.is Ekki bara stengur í keng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HA friðað... eru bara öll ljós kveikt og enginn heima?

bladavagninnMesta furða að H-100 slapp þarna um árið.... Það hefði þó verið góð heimild um diskómenninguna sálugu og bara almennt sukk.

Nei gamalt handónýtt hótel sem löngu er farið úr sinni upprunalegu mynd það skal friða. Eina vitræna, úr því sem komið er, væri þá að nota Jóns "Blinda" aðferðina á þetta og rutta þessu af yfirborði jarðar og byggja þá annað hús í upprunalegu myndinni... ef þá einhver yfirleitt veit hvernig þessi kumbaldi leit út í byrjun. 

Mér kæmi ekki á óvart þó þeir Norðanmenn friðuðu Borgarsöluna fljótlega. Þeir misstu jú af Blaðavagninum sáluga. Shocking

Ljósm: Pálmi í Blaðavagninum - Höf: Sverrir Pálsson - "Fengin að láni" hjá Palla Fíra


mbl.is Þrjú hús friðuð á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband