Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Þetta er nú varla meira en kvarthringur...

amphetamine_laboratoryVar farinn að búa mig undir að telja núllin í fjölda handtekinna.... en munar svo sem um 110 kg.

Hlýtur að vera langleiðin í að vera dagskammtur amfetamíns í þessum löndum samanlagt.


mbl.is Flett ofan af fíkniefnahring í Noregi og Hollandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegt hvað þetta ferjuhneyksli hefur farið hljótt í undanfara kosninga

Það er gott að ríkisendurskoðun hefur ákveðið að skoða þetta hneykslismál, en fyrir þá sem ekki kannast við málið var keyptur, sem ferja fyrir Grímseyjinga, gjörónýtur kláfur af einhverjum braskara fyrir litlar 100 millur þrátt fyrir mótmæli eyjaskeggja um kaup á svo gömlum dalli. Síðan hefur verið skorrið og soðið til skiptis fyrir einhvern hálfan milljarð eða svo í Skipasmíðastöðinni í Hafnarfirði og enn sér ekki fyrir endann á bullinu.

Og það sem meira er að þó menn fengju einhver hundruð milljóna til viðbótar til að klára verkið... er þetta og verður... gamall og hálfónýtur kláfur.

Já það er gott að vera stjórnmálamaður á Íslandi. Sem slíkur þarftu ALDREI AÐ BERA ÁBYRGÐ.

HÉR ER LINKUR Á FÆRSLU KRISTJÁNS MÖLLLER UM MÁLIÐ


mbl.is Skoðar kostnað við ferjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æji...

NHWFinnst lítt spennandi kostur að fara að loka hverfum og setja upp hlið... en þetta er örugglega vísir að slíku dæmi. Og áður en langt um líður verður þetta orðið þannig að þeir sem ekki eiga 60 milljónir fyrir skikanum undir húsið sitt verða því orðnir á annars flokks svæðum.

Eins má búast við að almennri löggæslu fari hrakandi eftir að slík vöktun ákveðinna hverfa verður orðin að veruleika.

Er þetta virkilega það sem við viljum?


mbl.is Urriðaholt verður fyrsta vaktaða hverfi landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri ekki nær að spá sumarbústöðum sunnanlands...

Ég sem ætlaði að fara að skrúbba annan sólpallinn og svona rétt að kíkja á bílskúrinn en hann hefur verið fullur af rusli í allan vetur, eitthvað sem er GERSAMLEGA ÓÞOLANDI. En svo er það þannig að þegar veðrið er gott er ótækt að vera að standa í einhverjum leiðindum og þegar það rignir er ekki hundi út sigandi svo þetta er eilíft "Catch 22".

Ég er því eins og auðnuleysinginn, í sögu Erskine Caldwell minnir mig, sem fannst betra að liggja í sófanum en að hafast mikið við. Síðan lak þakið á kofanum og kerlingin nöldraði um að kallinn kæmi sér upp að þétta kvikindið. En hann svaraði því til að ekki væri hundi út sigandi. Nú síðan stytti upp og þá fannst kerlunni kominn tími til að framkvæma en þá sá bóndi ekki ástæðu til... enda engan leka að sjá. 


mbl.is Skúrum spáð sunnanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Partý á Siglufirði

Hvernig hagar ungdómurinn sér eiginlega í dag... Þetta var ekki svona þegar ég var...

Ég man eftir smá gleðskap á Sigló þegar ég var yngri, Þetta var nú reyndar fyrir tíma internets og gemmsa... en einhver ógæfuhjónin höfðu skroppið til Spánar og eftirlátið ungviðinu íbúðina í einar 3 vikur. Nú ég man að einhver gestanna breytti pelsi húsmóðurinnar, sem skiljanlega hafði skilið hann eftir, í mittisjakka og fór sú aðgerð fram með skærum eigandans. Reyndar týndist jakkinn á ballinu en hvað um það.

Um nóttina var svo útbúin ommeletta á eldavélinn sjálfri þar sem sá elshússkápur sem opnaður var reyndist ekki innihalda pönnu. Seinna um nóttina fannst einum viðstaddra síðan algerlega brilliant hugmynd að mála einn strákinn sem lá áfengisdauða í stofusófanum. Var fundin til rauð olíumálning í bílskúrnum og kappinn kústaður að aftanverðu, bæði á baki og fótum... því enginn nennti að snúa honum...

Sátu menn svo og skemmtu sér við að hlægja að kappanum er hann vaknaði helþunnur og  settist upp... og hélt að hann sæti í einhverju klístri svo hann færði sig stöðugt og stimplaði því Chesterfield-inn eins og hann lagði sig.

Mig minnir að ég hafi ekki verið í þessu partýi.

 


mbl.is Heimili Annie Lennox lagt í rúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi sem lengst...

... enda maður sem getur skipt sköpum um gang leiks. Annars ætla ég svo sem ekkert að skipta mér af þessu enda ekki á jólakortalista Sir Alex Ferguson.
mbl.is Alex Ferguson: Giggs verður áfram í lykilhlutverki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki byrja með upphróp um boð og bönn...

Það vona ég að þetta verði ekki til þess að einhver múgæsing verði og allir fari að tala um að banna öll trampólín og svo videre... Svona slys geta gerst en sem betur fer eru þau sjaldgæf. Pössum okkur því að fara ekki framúr okkur...

 


mbl.is Drengur lést í trampólínslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landroverarnir að svínbeygja Evrópusambandið

Þetta hlýtur að vekja vonir manna um að eftilvill sé hægt að koma einhverju til leiðar innan þessa bákns. Kannski hægt að halda veiðiheimildum á marhnút heima í héraði.

Gæti komið sér vel fyrir t.d Vestfirðinga, þegar kvótakerfið verður endanlega búið að ganga frá byggðunum vestra, sem gætu þá nýtt annars gagnslausar trillurnar í að skutlast með túrista nokkra metra frá landi og leyft þeim að dorga.


mbl.is „Pint" af öli bjargað á Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og konur stunda ekki vændi "sjálfviljugar"... gista betlarar ekki fangaklefa "sjálfviljugir"

Sénsinn að betlarar hafi haft efni á því að skella sér í hópferð til Íslands af öllum löndum..

Nei þessu liði hefur sko verið sigað hingað af aðilum sem hefur eitthvað allt annað og meira í huga en að senda útsendara sína til að kynna sér náttúrufegurðina margrómuðu...

Það mætti segja mér að innan ekki alltof margra ára verði gaman að fletta uppí málflutningi Frjálslyndra frá því fyrir 2-3 mánuðum þ.e. meðan þeir enn þorðu að hafa sína skoðun á akkúrat þessari stöðu, og þá held ég að margur maðurinn komi til með að segja "Enda var ég sammála þeim"...

En kannski að herinn og lögregluríkið hans Björns Bjarna reddi þessu bara og ég hafi kolrangt fyrir mér...


mbl.is Gista sjálfviljugir í fangaklefum lögreglunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband