Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Íslenska konan klikkar ekki...

Þessi brandari gengur um í USA

Three men were sitting together bragging about how they had given their new wives duties.

The first man had married a Woman from Colorado and had told her that she was going to do the dishes and house cleaning. It took a couple days, but on the third day he came home to a clean house and dishes washed and put away.

The second man had married a woman from Nebraska He had given his wife orders that she was to do all the cleaning, dishes, and the cooking.  The first day he didn't see any results, but the next day he saw it was better. By the third day, he saw his house was clean, the dishes were done, and there was a huge dinner on the table.

The third man had married a girl from Iceland . He told her that her duties were to keep the house cleaned, dishes washed, lawn mowed, laundry washed and hot meals on the table for every meal. He said  the  first day he didn't see anything, the second day he didn't see anything, but by the third day some of the swelling had gone down and he could see a little out of his left eye, enough to fix himself a bite to eat... and load the dishwasher.

Á Vespu á hraðbraut í Portúgal

Lenti í því í tvígang(með nokkurra ára millibili) í Portúgal að taka vitlausa beygju á leið einni og lenda inná hraðbraut á Vespu. Þessi farartæki komast í rétt rúmlega 100 niður brekkur og eru bönnuð á hraðbrautunum.

Nú í þessi tilfelli vorum við hjónin stoppuð af lögreglu sem útskýrði fyrir okkur á ensku að þetta væri sko rúmlega bannað og við yrðum að skilja hjólið eftir þarna útá kanti en þeir skyldu skutla okkur inn í bæinn, en við áttum örfáa kílómetra eftir "til byggða". Ég tók fram við Helgu að hún mætti ekki undir nokkrum kringumstæðum tala orð í ensku á meðan löggan læsi okkur pistilinn og spjallaði ég við kappann á íslensku og var hinn glaðlegasti.. Á endanum gafst kauði upp á skilningsleysi okkar hjóna og tilkynnti okkur að við mættum fara á hjólinu heim en ALDREI aftur á hraðbraut á Vespunni.

Thank you very much officer... you are so kind. We won't... we promice... Have a nice day. Hmm...


mbl.is Á hraðbraut í hjólastólnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fá blaðamenn mbl ekki afnot af villuleit í boði PÚKA?

Hérna neðan við eru nokkur dæmi frá deginum í dag. 

Úr "Sarkozy gerir lítið úr snekkjuferðalagi" 

Þá höfðu 15% lögreglumanna orðið fyrir ofbeldi sem leyddi til stórvægilegra eymsla við störf sín, 4% höfðu fengið alvarlega áverka og 1% hafði orðið fyrir ofbeldi sem leiddi til líkamlegrar fötlunar í vinnu.

Úr "Fasteignamarkaður að taka við sér á ný"

og í kjölfar aukinna umsvifa á fasteingamarkaði hafi útlán Íbúðalánasjóðs og útlán banka og sparisjóða verið að aukast.

Úr "Hópur sem segist hafa Alan Johnston í haldi setur fram kröfur"

Sjónvarpsstöðinni al-Jazeera befur borist segulband frá hópi sem segist hafa breska blaðamanninn Alan Johnston í haldi.

 

 


mbl.is Um 70% lögreglumanna hefur verið hótað á síðustu fimm árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt dæmi um fyrringuna

Maður getur sem betur fer ekki sett sig í spor þessara 16 ára gömlu stelpna sem virðast vera gjörsamlega siðblindar... En ósjálfrátt fer maður að hugsa um hvað valdi... er sinnuleysi vegna ofbeldiskvikmynda- og tölvuleikja um að kenna... held ekki... kann að hafa einhver áhrif... en það hlýtur annað og meira að þurfa til... Skelfilegt. 
mbl.is Dæmdar í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða vinkonu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers virði er að eiga peninga ef...

mamma manns er framkvæmdastjórinn manns og kærastan stjórnar restinni?

Djöfull er gott að vera blankur.


mbl.is Mamma rekin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg er það makalaust hvað kaninn nennir að níðast á celebinu

Það virðist vera í tísku að nýðast á fræga fólkinu í ameríkuhreppi. Paris ræfillinn Hilton virðist hvorki mega keyra full né próflaus... Tom Sizemore má ekki dópa smá, ekki berja kærustuna sína hana Heidi Fless mellumömmu sem má ekki reka smá hóruhús on the side... þangað sem  Hugh Grant hefði betur farið í sugu um árið...

Ryan "Love Story" O'Neil mátti ekki berja son sinn til óbóta, Christian Slater mátti ekki fara með óskráða skammbyssu um borð í flugvél,ekki berja mann og annan né áreita einhverjar stelpur kynferðislega, George Michael virðist hvorki mega opna né loka buxnaklauf hvað þá leggja sig á gatnamótum eða keyra á ljósastaura.

Ekki má Ray "GoodFellas" Liotta heldur aka undir áhrifum né kollegi hans Mel Gibson sem má ekki einu sinna skamma gyðingana, Richard Gere má ekki kyssa indverjana, Daniel Baldwin má hvorki eiga kókaín né stela bíl, bróðir hans má ekki kalla dóttur sína svín, Wesley Snipes má ekki svíkja nokkrar millur undan skatti. OJ Sipson má ekki kála kellingunni sinni, ekki frekar en Robert Blake eða

Ekki má Brad Renfro fá sér í glas án þess að vera handtekinn, Nicole Richie þykir lélegur bílstjóri drukkin, Lane Garrison úr Prison Break má ekki kála samferðamönnum sínum, og einhvern tímann var Ken Kercheval úr Dalals handtekinn fyrir ölvunarakstur og fleira, Russell Crowe má ekki henda síma í menn, Edward Furlong má ekki frelsa humar, eitthvað hefur Robert Downey Jr. kikt á innviði fangelsanna líka, Winona Ryder  má ekki stela nokkrum brókum, Jeffrey Jones skólastjórinn úr "Ferris Bueller's Day Off", má ekki níðast á börnum ekki frekar en PeeWee Herman.

Martin Sheen, Daryl Hannah, Susan Sarandon, Danny Glover og fleiri mega ekki mótmæla nokkrum sköpuðum hlut þá eru þau handtekin. Og of langt yrði upp að telja ef ætti að hætta sér útí rapparana...

Það greinilega má ekkert orðið í henni Ameríku


mbl.is Tom Sizemore handtekinn með fíkniefni í fórum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann fékk nú heldur ekki að klára prófið...

Mér hefði nú fundist jafnmikil ástæða til að svifta kennarann sem leyfði nemanum að setjast undir stýri þrátt fyrir að finna að maðurinn angaði af áfengi.
mbl.is Drukkinn Þjóðverji féll á ökuprófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær breyttust lögmálin?

Tek undir með hestamönnum að ótækt er að menn á torfæruhjólum séu að rasskellast á reiðstígum en fannst athyglisvert að sjá rök lögreglunnar fyrir því að elta ekki uppi þá seku sjá:

Hugsanlega gæti það auðveldað lögreglu að ná til ökumanna ef embættið eignaðist torfærutæki sjálf en það sé álitaefni hvort forsvaranlegt væri að auka slysahættu ef lögreglan færi að stunda eftirför á malarstígum

Er þetta ekki nákvæmlega sama hættan og skapast þegar lögreglubílar fara að elta ökumenn á götum bæjarins, ökumenn sem oft eru í misjöfnu ástandi. -

Og ekki beint góð skilaboð að senda.


mbl.is Knöpum þungt í skapi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 203091

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband