Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar búa hvergi

Baby-on-dogÞessi haus minn er álíka vitlaus og hausinn á fréttinni sjálfri.

Eflaust búa margir útlendingar í ósamþykktu húsnæði sem upphaflega er ætlað í annað en það þýðir ekki það að þetta séu ekki mannabústaðir eins og segir í fréttinni. Nema að blaðamanni þyki þá útlendingar ekki menn? - Spyr sá ekki veit.

Og ef íbúar á "utangarðskrá" eru ekki tryggðir vegna þess eins að þeir geta ekki vísað á lögheimili mætti kannski bara breyta löggjöfinni frekar en ekkert.


mbl.is Útlendingar búa alls staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þetta er ekki gott. auðvitað er það rétt að ósamþykkt húsnæði getur alveg verið hið huggulegasta og fáránlegt að fólk geti ekki tryggt innbú sitt, sama í hvernig húsnæði það býr.

En það er líka fullt af Íslendingum sem hefur beðið lengi lengi eftir húsnæði hjá félagslega kerfinu, öryrkjar og einstæðir foreldrar, en innflytjenda hópar virðast ganga fyrir. Og í hvernig húsnæði búa þessir Íslendingar á meðan þeir bíða. Hefur enginn áhyggjur af því?

Jóna Á. Gísladóttir, 13.11.2007 kl. 11:04

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Nákvæmlega - Og þetta ástand á bara eftir að versna. Fæ ekki séð að ungt fólk í lægri-launa störfum geti keypt og/eða leigt sér á næstunni svo þetta endar með skelfingu ef ekkert verður að gert. Byrjunin væri kannski að drulla húsnæðinu útúr vísitölunni svo stýrivextirnir hækki ekki endalaust en það eitt dugar ekki. Held að það hljóti að fara að styttast í að við förum að sjá hverfi "bæjarblokka" rísa á næstunni...hversu skemmtilegt sem það er nú.

Við erum sko langt í frá búin að bíta úr nálinni eftir  bjarnargreiða bankanna.

Þorsteinn Gunnarsson, 13.11.2007 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 203064

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband