Leita í fréttum mbl.is

Þvílíka glæran... eða gæran... nema hvort tveggja sé

walmartDjöfull hlýtur að vera leiðinlegt að búa í landi þar sem svona ódýrt sjónarspil þykir nauðsynlegt.

En kannski hæfir skel kjafi.


mbl.is Hilton endurræður fjölmiðlafulltrúa sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guði sé lof að hún varð metsölubók

Jæja... 300 kall í ágóða fyrir metsölubók... einmitt!

Bullið í Hannesi Hólmstein hljómar sko sem stóri sannleikur eftir að hafa lesið þessa fréttina.


mbl.is Mæðrastyrksnefnd fær ágóðann af metsölubók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hva... engin farin að hrópa PÓLITÍSK RÁÐNING?

Veit ekki hver Helgi Torfason er né hvort hann hefur nokkru sinni haft afskipt af pólítík eða verið viðriðin stjórnmálaflokk,  en svona stuttu fyrir kosningar eru alltaf einhverjir tilbúnir með samsæriskenningar og því varð ég hissa að sjá ekkert einasta blogg um ráðninguna...

En nú er allavega komið 1


mbl.is Helgi skipaður safnstjóri Náttúruminjasafns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af bílstjórum...

Þar sem ég var lengi í bílabraski eignaðist ég alltaf annað veifið hjól, þó ég væri löngu hættur eiginlegri mótorhjólaeign. Eg varð mjög hissa á því þegar ég var að rúntá á þessum hjólum, þá kominn á fertugsaldurinn, hve margir bílstjórar virtust af ásetningi svína á manni. Hvað olli þessu veit ég ekki en því miður var þetta raunin.

Kannski var þetta líka svona í gamladaga en allavega var maður á þeim tíma sjaldnast á löglegurm hraða og tók þessu því  sem hverju öðru hundsbiti..

Bílstjórar virðast því miður oft á tíðum gera í því að aka í veg fyrir mótorhjólamenn, kannski að þeir haldi að þeir séu að veita þeim einhverja áminningu en geri sér ekki grein fyrir því hversu hættulegt þetta er. - Ég er ekki að gefa það í skyn að um slíkt hafi verið að ræða í þessu tilfelli og í það minnsta vona ég að svo hafi ekki verið.

Óska þeim slasaða góðs bata. 

 


mbl.is Sofandi í öndunarvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er símanúmerið á Borgarbókasafninu?

Hver skyldi verða látin lesa fyrir söfnin hér? Það þarf enginn að segja mér að Vilhjámur borgó verði ekki snöggur að innleiða þessa fjáröflunarleið hér heima. 

...renndi hann hönd sinni gerlega upp eftir vaðmálsbrók Hallgerðar, en krækti um leið kartnögl sinni í..  


mbl.is Gamlar kynlífslýsingar lesnar í fjáröflunarskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barist með brundillskunni

evalongoria3wvJa haldiði að nokkuð verði skorað eftir athöfnina... mér er það til efs að karlanginn komist útúr kirkjunni.

Spurning með að fá Gunnar í Krossinum til að gefa þau bara saman í bælinu... enda Gunnar liberal maður.


mbl.is Skírlífið skilar árangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttri vinnuviku!

krafaÞað verður ekki langt að bíða þess að  þessi "stöðugleika fjölskylda" verði farin að marsera með kröfuspjöld á degi verkalýðsins...
mbl.is Angelina vinnur bara dagvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndileg frétt og ekkert smá skemmtileg

drunkÞað er alltaf gleðilegt að heyra af mönnum sem fá annan séns. Og ég er viss um að þessi Breski maður hlýtur að vera óskaplega glaður að vera ekki að drepast. Og hugsa sér... hans helsta ósk í lífinu var að lifa hátt eða "munúðlega" eins og segir í fréttinni  og það er hann búinn að prófa. Þetta langar margan mannin að gera en þorir ekki. Þetta er því ekki öllum gefið.

Því þegar menn sitja á skörinni hjá drottni að loknu dagsverkinu... er ég viss um að menn sjá ekki eftir því sem þeir gerðu... heldur hinu sem þeir gerðu ekki.

Þessi er því ríkari en margur.


mbl.is Dauðvona sjúklingur sem eyddi aleigunni var ranglega greindur með krabbamein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ æj... ekki aftur...

pintoÉg er búinn að burra á amerískum bílum alla mína hunds- og kattartíð og man tímana tvenna í þessari framleiðslu. Og ég hugsa með hryllingi til þess tíma þegar þeir í ameríkuhreppi sulluðu á markaðinn allskyns "sparneytnum" ófögnuði eins og Ford Pinto, Cheverolet Vega og öðru álika  drasli.

Reyndar þurfti ekki mikil bensínkaup á þessar kveljur... þær voru heilt yfir ógang- eða óökufærar svo kannski liggja þar sóknarfærin


mbl.is Obama hyggst breyta orkustefnu Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessir asnar í ameríkuhreppi...

bush_idiot_220Halda þessir snillingar virkilega að aðalvandamálið í Írak sé menntunarskortur bandarískra hermanna?

Held það væri nær að þýða "Gagn og Gaman" yfir á ensku og senda bjánanum Bush.


mbl.is Mennta þarf hermenn sem fara ekki eftir reglunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.8.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 203526

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband