11.5.2007 | 00:38
Árið xxxx f. reiðhallir
Ef fer sem horfir þarf ekki nema örfáar kosningar í viðbót þannig að hægt verði að byggja á milli þessara halla allra saman, enda ekki hægt að ætlast til þess að hvorki knapar né skepnur séu að vosbúðast þetta utandyra...
Einhvern tímann "fyrir reiðhallir" tókst þó mönnum að temja hest og annan... og það svo vel að eftir var tekið. En þetta er sjálfsagt eins og með krakkana og tölvurnar... Allir leikir að verða innileikir.
Nú sýnist mér svo komið að innan ekki alltof langs tíma verði íslenski hesturinn orðinn að kulsæknu kjöltudýri.
![]() |
Samið um reiðhöll í Hrunamannahreppi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 23:22
Hvað er þetta með SEX metrana?
Er ekki alveg að fatta þetta með að langdrægni þessa apparats sé 6 metrar.
Kannski til þess að karlinn geti kveikt á kellunni á sama tíma og hann opnar bílskúrshurðina...
![]() |
Herinn á Kýpur óttast áhrif titrara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 22:11
Nokkuð fyrirséð frændi..
Ég spáði því að við myndum lenda í 16 sæti í undankeppninni og eftir á að hyggja þá tel ég að kannski hafi ég verið full bjartsýnn þar. - 18. sæti
Eiki stóð sig ágætlega en hörmulegra loft- guitar og trommushow hef ég aldrei séð og verð að viðurkennna að það fór um mig nettur aumingjahrollur þegar ég sá taktana.
Gengur betur næst, eða þarnæst, eða þarþar næst eða þarþarþarnæst eða þarþarþarþarnæst... eða síðar.
![]() |
Ísland komst ekki í úrslit Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2007 | 09:35
Engar njósnir takk...
Hvaða foreldrar telja sig umkomna þess að "vera vakandi yfir tölvu og gsm/sms notkun" 15-16 ára unglinga.
Og hvaða unglingar fara útí bæ að halda uppá vertíðarlokin, með pabba og mömmu í eftirdragi?
Manni finnst helst á lestri þessarar frétta að unglingar og foreldrar séu sinn hvor stríðsaðilinn. Hluti fréttarinnar hefði alveg eins getað verið svona:
Verum viðbúinn því að krakkarnir tali saman og ákveði jafnvel hvar þeir ætli að hittast" - Athugum það að þau geta skipt um skoðun á því hvar þau ætla að hittast og það með stuttum fyrirvara. Við skulum hakkast inná tölvurnar hjá þeim... afrita simkortið í gemsanum þeirra og þau skulu sko ekki halda að þau geti haldið þessu útaf fyrir sig. - Sjá:
Börn og unglingar hafa verið dugleg við að taka í notkun ýmiss konar nýja tækni og nota mikið blogg og sms til þess að eiga samskipti. Björk segir að foreldrar þurfi að hafa þessi atriði í huga, þeir þurfi að vera vakandi fyrir símum og tölvum.
Spyrja má hvort ungmennin á Akureyri, sem ráðgert hafa að hittast í Kjarnaskógi um helgina, hafi nýtt sér þá tækni til þess að láta boðin ganga sín á milli.
Ja.. jú jú auðvitað má spyrja... en til hvers? Er aðalatriðið með hvaða hætti krakkarnir tala saman? Geði það eitthvað fyrir einhverja foreldra að vita það að þeirra unglingur notaði SMS í stað MSN eða bloggs?
Hlutverk foreldranna er að byggja þessa einstakling upp, kenna þeim og innræta hvað sé rétt og hvað sé rangt, svo þau geti tekið sjálfstæðar upplýstar ákvarðanir. Ef við treystum þeim ekki fyrir nettengdri tölvu eða GSM þá er það okkar að sjá þil þess að þau hafi ekki yfir slíkum tækjum að ráða. Það verður alltaf þannig að einhver þeirra bregðast trausti okkar, þau eru jú mannleg og því breysk eins og foreldrarnir. En fyrst og síðast verðum við að treysta þeim en ef við gerum það ekki.. þá er hreinlegra að banna þeim að fara. En í guðs bænum ekki fara að njósna um þau eins og um "meinta" sakamenn sé að ræða. Það kann aldrei góðri lukku að stýra.
![]() |
10. bekkur fagnar próflokum: Áhyggjur af laugardegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.5.2007 | 08:51
Mikið rosalega var maður alinn upp hjá afa og ömmu
Sko þegar ég var 16 þurfti maður að hafa fyrir því sjálfur að fá þær til að kasta klæðunum. En ég var svo sem ekkert með föður á heimilinu svo kannski var þetta svona hjá hinum strákunum.
Annars er nú eins og mig minni að maður hafi haldið uppá þetta afmælið á Röðlinum, í borginni við sundin blá. Fjarri öllu foreldravaldi...
![]() |
Leigði fatafellur í 16 ára afmæli sonar síns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2007 | 08:21
Að panta sér fréttatilkynningu... eða?
Hvort skyld'ann hafa pantað þetta eða Landsambandið vera að gera grín að honum?
Oft erfitt að greina á milli snilli og geðveiki
![]() |
Páll Winkel nýtur fulls stuðnings LL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 08:13
Allur er varinn góður...
Það snjóaði nú fyrir austan í fyrradag og björgunarsveitir að aðstoða "illa útbúna bíla".
Í guðs bænum ekki vera að refsa mönnum fyrir þessa nagla... og það um miðjan vetur!
![]() |
Tekinn fyrir hraðakstur próflaus og á nöglum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 01:27
Eflaust látist af eðlilegum ástæðum
... kannski fundið fyrir krankleika og saxað sig niður í töskuna til hægðarauka fyrir þann sem þyrfti að koma honum undir læknishendur eða..
Já var virkilega grunur um morð?
![]() |
Líkfundur vekur upp grunsemdir um morð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2007 | 01:24
Enda mun betri læknar í Evrópu
Hvað er þetta gamalmenni að bulla og hvað þykist hann vita um "fyrstu stund getnaðar" Ja hans vegna, katólsku kirkjunnar og allra kórdrengjanna vona ég að hann tali ekki af reynslu.
Páfi hóf förina í Brasilíu þar sem hann mælti harðlega gegn fóstureyðingum í fyrstu ræðunni sem hann flutti þar. Hann mælti hana á portúgölsku en hún var flutt á biskupaþingi og sagðist hann þess fullviss að biskuparnir myndu styrkja virðingu þjóðarinnar fyrir lífi frá fyrstu stund getnaðar
![]() |
Páfi mælir gegn fóstureyðingum í Suður-Ameríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2007 | 01:07
Davíð versus Golíat í tvennum skilningi
Finnst það hálf ótrúlegt að einhver smárella, sem ekki fer verr útúr árekstrinum en svo að hún gat lent, hafi getað grandað Boeing 737 farþegaþotu.
Einhver er auðvitað ábyrgur... en heldur hlýtur nú að halla á "utanbæjarmennina" fyrst Brasilíski herinn sér hvort tveggja um flugumferðarstjórnina, sem er talin með óhreint mjöl í poka sínum, og rannsókn slyssins.
![]() |
Bandarískir flugmenn sakaðir um að hafa valdið flugslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.8.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 203524
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar