Leita í fréttum mbl.is

Enn ein rósin í hnappagat Jóns B. Snorrasonar...

Þetta dómskerfi okkar er eiginlega að verða að svo þreyttum brandara að menn eru hættir að geta hlegið að þessu...

...fær ekki refsingu vegna þess að ákæruvaldinu láðist að gera kröfu um refsingu þegar ákært var í málinu.


mbl.is Gleymdist að gera kröfu um refsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir Selfosslöggan núna?

SnjorSpurning hvernig þeir fara að því að elta uppi þessa ræfla sem enn eru að keyra á nöglum... en núna kl 02:30 þegar þessar línur eru skrifaðar er alhvít jörð hér á Selfossi.

Kannski eiga þeir gamalt þverbandaslitið keðjusett frá fyrri tímum og geta bjargað sér á því.

Gleðilegt sumar!


Áfram Napolí...

lorenÞað væri nú ekki ónýtt að sjá Soffíu frænku fækka fötum núna... svona rétt til samanburðar.

 

Napoli er mitt lið!


mbl.is Sophia Loren lofar að fækka fötum komist Napoli í úrvalsdeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eyða engu...

Ég hefði kannski átt að fara á Ecoline-inum mínum og taka þátt. Síðast þegar ég mældi hann fór hann með rúmlega 38 lítra á hundraðið.

Það er sko einhvers virði að aka um á slíkum vögnumGrin


mbl.is Keppir í sparakstri á 550 hestafla ofurbíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó ekki væri...

Enda var þessi Brassi óvopnaður sem hlýtur að teljast grunsamlegt á þessum seinustu og verstu tímum og skýrir fullkomlega aðgerðir lögreglumanna á vettvangi. Í annan stað var hann túristalegur útlits, séð aftan frá, í gallabuxum og gallajakka og eins og allir vita er slíkur klæðnaður ávísun á hermdarverk. Ofan á allt annað talaði hann ekki fullkomna ensku og eins og alheimur veit er slíkt eitt og sér dauðasök í dag.

Það þurfti 11 Breta til að murka lífið úr einum óvopnuðum Brassa og svo eru menn hissa á því að örfáir Bretar í Írak nái ekki árangri...


mbl.is Lögreglumenn sem skutu brasilískan mann þurfa ekki að svara til saka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munið að vera með naglbít í bílnum

Bara svona ef þið lentuð útaf í hálkunni og þyrftuð að kalla á lögregluna... þá gætuð þið haft 20 þúsund kall í kaup við að slíta naglana úr dekkjunum áður en þeir svartklæddu mættu á svæðið.
mbl.is Hálkublettir víða á vegum á Norðaustur- og Austurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brasilíska BANAL kynslóðin hans Benedikts

rioAumingja ung-Brassarnir kátólksu hljóta að verða æ meira BANAL (blowjob+anal) eftir þessa heimsókn Benedikts...ætli þeir hvorki að nýta sér smokkinn né fóstureyðingar. Því einhvernvegin trúi ég því ekki að þeir sleppi kynlífi fyrir hjónaband.

Nema að þeir slái bara tvær flugur í einu höggi og láti pússa sig saman í fermingunni.


mbl.is Páfi sendir ungu fólki skilaboð í Brasilíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur ekki hrjáð hana lystarleysið

Kona var stöðvuð með 86 poka með 1,5 kíló af kókaíni innvortis á Gardemoen flugvelli í Ósló í Noregi.

Bíddu... 86 x 1,5 = 129 kg.  - Alltaf er nýðst á feita fólkinuGrin


mbl.is Stöðvuð með 86 poka af kókaíni innvortis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hann þá ekki löngu búinn að afplána?

Sko ef hann var handtekinn 1992 þá hvað? Slepptu þeir honum bara... eða hefur hann setið inni síðan eða ætla þeir að draga 15 ára gæsluvarðhald frá dómimum eða hvern andskotan kemur nokkrum manni þetta við?

Bruno Contrada er 77 ára og var handtekinn 1992 eftir að hafa verið nefndur af fjölmörgum uppljóstrurum mafíunnar.


mbl.is Ítalskur leyniþjónustumaður dæmdur í tíu ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra Grundartangamálið

Það er spurning hvort gerð verði kvikmynd um þetta smyglmál og rannsókn þess. En kannski er garmurinn búinn að drepa í sígarettunni sem hann var tekinn með og málið sjálfdautt.

Honum hefði verið nær að vera með svolítið meira og geta þá frekar selt réttinn að kvikmyndahandritinu fyrir einhverja þúsundkalla... enda greinilega ekkert uppúr smygli lengur að hafa fyrst verið er að bösta menn með svona smáræði. En kannski hafa bara lögreglumennirnir þurft ástæðu til að líta fram hjá einhverju kvótasvindli - nei varla á Grundartanga.

Ég man þegar ég var yngri þá versluðum við félagarnir stundum Levis 96% spíra af einum góðum sem var á Heklunni. Þegar sá kom til Akureyrar var aðalvandamálið  að koma fyrir öllum seðlunum fyrir sem höfðu hrúgast á kallgarminn á ströndinni og var hann með marga "homma" úttroðna af seðlum. Einhverju sinni bað hann okkur að taka nokkra slíka og senda sér suður... þar sem hann var orðinn eitthvað paranojaður með klinkið.  - Við vorum ekkert rukkaðir í það skiptið. Hikk...


mbl.is Smyglvarningur á Grundartanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 203524

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband