Leita í fréttum mbl.is

13 ára gítarsnillingur .. að ekki sé meira sagt

...

http://www.youtube.com/watch?v=ATub40Npxik

 

Hérna er svo annar að vísu aðeins eldri en áhugaverð fingrafimi engu að síður

Held ég parkeri bara gítarnum.... for good


Djöfull er hún góð í reikningi

Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir vanta um það bil 80 kennara í grunnskólana...

...Það eru 44 grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu og því vantar að meðaltali um tvo kennara í hvern skóla samkvæmt lauslegum útreikningum Þorgerðar.

Ekkert smá seig að komast að þessu í lauslegum útreikningi...


mbl.is Flótti hlaupinn í kennarastéttina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stigið... Sigtryggur vann

Alveg er mér ómögulegt að geta verið umburðarlyndur þegar glíma er annars vegar. Hef stundum hugsað með mér þegar maður fær einhverjar íþróttafréttir í andlitið um glímu, og er svo latur að maður nennir ekki að teygja sig í fjarstýringuna, að ok einhverjir hljóti að hafa smekk fyrir þessu.

Hef samt aldrei kynnst neinum á lífsleiðinni sem hefur það, nema kannski tvíburunum í Mývatnssveit sem einokuðu þessa íþrótt í gamla daga. Mér varð nefnilega einu sinni á að ætla aðeins að "færa" annan þeirra, þar sem hann starfaði sem laganna vörður á balli í Skjólbrekku, og það voru mistök með stóru M-i.  Það var ótrúlega einfalt fyrir þennan væskil að einhenda mér, sem þó vó á seinna hundraðið, í stórum boga og hafa mig undir.

Missti maður nokkuð þokkalega af því ballinu...


mbl.is Konungsglíman rifjuð upp á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengja gamla einræðisherrann með einum gulum og grænum

200 kall takk fyrir takk! - Hver andskotinn er að þér Davíð Oddsson?

Hverslags djöfuls siðblinda er í gangi hjá ykkur. Þú hefur aldrei unnið ærlegt handtak á hefðbundnum vinnumarkaði svo það myndi enginn fara að slást um þig og þína líka í vinnu svo varla geta það verið rök fyrir 200 þúsunda sjálftöku á mánuði.

Þú kannski manst eftir því félagi... að það þurfti að fara í mál við þig og þína ef til stóð að rétta hlut öryrkja um einhverjar krónur... En auðvitað hafa helvítis öryrkjarnir það svo gott fyrir að ekki  var ástæða til að púkka uppá þá frekar.

Það skyldi þó ekki vera að löngunin í að komast upp fyrir Ólaf Ragnar í launum hafi firrt þig restinni af vitglórunni ef einhver var? Ja í það minnsta er jarðtengingin engin og innréttingarnar greinilega ódýrar.

 


mbl.is Samþykkt að hækka laun seðlabankastjóra um 200.000 kr. á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur verður af orðum Asni

  ...Þar er þó haft eftir Sigurgeiri Þorgeirssyni hjá Bændasamtökunum að þetta jafngildi ekki viðurkenningu á sekt í málinu.


donkey

..nei gamalaust.. þá ættu nú sumir að láta lengja á sér eyrun og hætta að villa á sér heimildir.


mbl.is Fallast á sáttagreiðslu vegna afboðunar klámráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan útskrifast loksins á morgun

reykjalundurJæja þá er langþráður dagur að renna upp en á morgun föstudaginn 1.júní,  kemur konan mín heim en hún hefur legið á spítala og síðan á Reykjalundi síðan 13. nóvember 2006. Sex og hálfan mánuð takk fyrir takk og er enn heil á geði:-). Rúlla og sæki hana  í fyrramálið og ætlum að færa þessum elskum á Reykjalundi einhvern smá þakklætisvott í leiðinni fyrir topp umönnun og yndislega viðkynningu.

Ríkarður Flóki afastrákur braggast og allt gengur vel hjá þeim hjúum. Smelli inn myndum við tækifæri

studentarNú svo er stelpan okkar og kærastinn hennar, þau Kolbrún og Víðir í útskriftarferðinni sinni útá Krít(eru reyndar í Athenu þegar þessar línur eru skrifaðar).  Þannig var að þau ætluðu sér alltaf að skreppa til Athenu og kíkja á helstu staði og ég hafði samband við viðskiptafélaga minn ytra, sem tók þau að sér og lánaði þeim neðri hæðina í húsinu sínu... lét sækja þau á völlinn við komuna til Grikklands og burra með þau um allar trissur, og ofan á allt saman þá sendi hann mér mynd áðan þar sem hann er, ásamt konu sinni úti að borð með krökkunum.  Og textinn i mailinu var einfaldlega: Jelous?:-) - Svona gæjar eru náttlega baaara cruel...

En semsagt er á lífi og bara býsna ánægður með lífið en hef bara ekki haft tíma til að blogga.

Heyrumst kát!


Af Tóbaks-Steina

Fyrir margt löngu var á Akureyri maður sem kallaður var Tóbaks-Steini(Og Skriðjöklar gerðu frægan hér um árið).  Hann vann í öskunni, drakk kassa af Thule á dag hjá Gvendi Gorra á Bílaþjónustunni og bjó ásamt ketti sínum í húsi sem við strákarnir kölluðum Kastalann.

Steini átta gamli "vængja-láfu" Chevrolet 1959 og einhverju sinni var kappinn á leið til vinnu sinnar og stoppaði við umferðarljósin við BSO á leið sinni til norðurs. Ég hafði stöðvað aftan við kallinn og þegar græna ljósið kemur situr sá gamli sem fastast og fer hvergi. Ég beið ásamt nafna mínum einn eða tvo umganga af grænum en sá svo að ekkert fararsnið var á "láfunni" svo ég renndi bara fram hjá en var orðinn forvitinn. Lögreglubíll var stopp á ljósunum á móti og hafði greinilega séð að ekki var allt með felldu svo ég tók einn aukarúnt til að fylgjast með framvindunni.

Enn liðu ein eða tvö græn en þá snaraðist út vaskur lögregluþjónn, gekk greiðlega að "láfunni" sleit uppá henni hurðina og hvæsti " Ertu að bíða eftir norðurljósunum'"... sá gamli hrökk upp með andfælum en hann hafði lagt sig þarna smá stund meðan hann dokaði eftir rétta litnum... rak síðan láfuna í dræfið og stóð hana yfir gatnamótin... á rauðu.

Toppmaður Tóbaks-Steini


mbl.is Sofnaði á rauðu ljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staffið leggur flugfóðrið sér ekki til munns

Það er spurning hvort ekki er ráðlegra að lagfæra bara  eilítið  flugfóðrið frekar en að banna staffinu að hita upp nestið sitt.
mbl.is Karrýréttur sprakk í 35 þúsund fetum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn lengir hann í hengingarólinni

Ja mig skal ekki undra að hann noti gleraugu blessaður, jafn blindur og hann er á stöðu sína.

Og  hlusta síðan á lofræður framsóknarmanna um foringjann... ja þakka menn guði fyrir að hann vann ekki stórsigur... miðað við allt lofið sem hann fær fyrir tapið...

Hvenær er maður dauður og hvenær er maður ekki dauður... það er jú spurningin?


mbl.is Jón segir fregnir af andláti sínu stórlega ýktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband