Leita í fréttum mbl.is

Nýtum bloggið á jákvæðan hátt og..

kolbrun_saraLýsum eftir 17 ára gamalli stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 17 ára gamalli stúlku, Kolbrúnu Söru Runólfsdóttur. Ekki hefur sést til Kolbrúnar Söru síðan síðastliðinn þriðjudag. Hún er talin vera á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er Kolbrún Sara gjarnan svartklædd og hneigist til „Goth” tísku í fatnaði og útliti. Hún er um 168 cm. á hæð, frekar þétt vaxin, millisítt dökkt eða svart hár, gleraugu og hvítir strigaskór.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir eða verustað Kolbrúnar Söru eru vinsamlegast beðnir um hringja í síma 444-1000 eða 444-1100 hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins.


mbl.is Lýst eftir 17 ára gamalli stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beckham versus Bjarni

Já það er misjafn hlutskiptið. Annar skilar 37 milljörðum en hinn skilar ekki einu sinni mótherjunum boltanum.
mbl.is Beckham skilaði miklu fé til Real Madrid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi kvenmaður hafa ritað þessa frétt?

Það er eins og manni finnist örla fyrir karlfyrirlitningu í þessari fréttinni. Og hvað klámi viðkemur þá er gott að muna að kvenfólk er sko ekkert síður neytendur þess en karlar. Og á hverja herjar klámmenningin mest? - Jú konur. Því konur tileinka sér flest það sem fram kemur í kláminu. 

Þær láta pumpa tútturnar á sér fullar af silikoni, varirnar fá sama treatment(hvaðan komið?), fyrir sára fáum árum sást ekki tattoo á konum nema helst eiturlyfjasjúkum vændiskonum og klámmyndaleikkonum. Það sést vart söngkona á skjá nema minna klædd en konur gengu til sundlauga hér í den og svo framvegis.

Nú skrifar einhver femínistinn "og hverjum er þetta að kenna?" Svarið er konum. Allavega neyði ég ekki neina konu í þessa hegðan og þekki engan karlmann sem gerir það enda held ég að konur séu fyrst og fremst að þessu álits annarra kvenna vegna. Þannig að mitt álit er að femínistarnir ættu að snúa sér að kvennatrúboði en ekki endalaust að níðast á okkur körlunum.Wink 


mbl.is Klámhundarnir Justin og 50 Cent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt þetta vatn.... er vatn... á myllu Vottanna

Það mætti segja mér að það ryki orðið úr fóðringunum á myllu Votta Jehóva. Fyrir nokkrum árum kíkti einn á mig og vildi endilega benda mér á þá "staðreynd" að heimsendir væri í nánd. Þessi sami hafði reyndar heimsótt afa minn og ömmu áratugum áður og var þá með aðra dagsetningu á staðreyndinni en hvað um það. Öll þessi flóð og hegðan veðurs í heiminum hlýtur að liðsinna Vottunum í heimsendapredikunni og svei mér þá ef maður fer ekki í það minnsta að trúa því að mannskepnan sé,svona hægt og hljótt, að tortíma þessum bletti okkar sem við köllum hótel jörð.
mbl.is Fannst látin í vatnsfylltum bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munaði einum...

Einn var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld. Fær hann rúmar 7,7 milljónir króna í vinning en potturinn var tvöfaldur í kvöld. Lottótölur kvöldsins eru: 4, 6, 15, 26 og 28. Bónustalan er 3.

Þð er sko bara ekkert fyndið að  vera í áskrift með 3,7,14,27 og 28. Eru sko bara að ergja mannDevil


mbl.is Einn með allar tölur réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðu maður virkilega að sjá hana þessa?

myrin-poster-smallTil hamingju með verðlaunin.

Er einhvernvegin orðinn svo hvekktur af döprum íslenskum kvikmyndum að ég hef bara ekki horft á eina einustu síðan Djöflaeyjan var og hét.

Mér fannst ég alltaf sjá sömu senuna... rútu aka undir grasi gróinni fjallshlíð... endalausum landslagsskotum, úrkynjuðum sækóum, svona íslensku "deliverance" gengi og var bara orðinn þreyttur. Konan mín segir að blues sé langt og leiðinlegt lag og það var einhvernvegin sú lýsing sem mér fannst orðið best henta íslenskum kvikmyndum - Væru langar og leiðinlegar.

Maður verður sennilegast að fara að kíkja á framfarirnarWink


mbl.is Sigurinn á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni kom Baltasar Kormáki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Héldu menn kannski að stríðinu væri lokið?

Bush var reyndar búinn að lýsa yfir sigri en hann er kannski ekki með sjónvarp eða útvarp
mbl.is Tala látinna í Írak hækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hafa kannski bara verið tungumálaerfiðleikar

Sjoppan hálffull af erlendum burðardýrum og kannski hefur einhver ræfillin í sakleysi sínu sagt við eitt dýranna í þessu alþjóðasamfélagi "Break a leg"Blush
mbl.is Fótbrutu samfanga á Litla-Hrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo sitjum við uppi með einhvern lopapeysuklæddan bakpokalýð

Hvering væri nú að reka nokkra tudda á bakpokalýðinn sem er sífellt að mótmæla þarna fyrir austan. Það væri aldrei að vita nema einhverjir fengju áhuga á því að sjá samkiptin við þessa mótmælendur eftir að þeir fleygðu vaðmálinu.

Kannski ekki þess virði.


mbl.is Næstum naktir mótmæltu nautaati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband