Leita í fréttum mbl.is

Hvenær á að fleygja lyklinum ef ekki í svona tilfellum?

Nei dauðarefsing er alltof léttvæg og tekur allt of skjótt af fyrir svona kvikyndi sem hafa algerlega forgert rétti sínum til mannlegs samfélags... miklu betra að fangelsa hann inni sem allra lengst og helst einangra svo hann fái aldrei dagsbirtu notið.
mbl.is Nauðgaði dóttur sinni mörg hundruð sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram KA

Ég vona sannarlega að mínir menn í KA fari að komast á aðeins beinni braut. Það er smán að þetta gamla stórveldi sé eitt neðst í 1 deildinni.

Getur ekki Guðjón bara gaukað að ykkur einhverjum drullutrixum svona rétt á meðan þið komist uppúr fallsætunum...Blush


mbl.is Fjarðabyggð lagði Njarðvík - Enn eitt tap hjá KA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi Fedexinn hafa skroppið á tengdó?

Einnig er söngkonan sögð hafa ráðið einkaspæjara til að fylgjast með samskiptum móður sinnar og fyrrum eiginmanns síns Kevin Federline, sem er faðir drengjanna.

Ja hvað á maður að halda?


mbl.is Britney útilokar móður sína í erfðaskrá sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringdi Björn í moggann og lét breyta hausnum á fréttinni?

Allavega var haus fréttarinnar allur annar fyrr í dag(Björn Bjarnason: Ekki endilega álitshnekkir fyrir Hæstarétt Íslands) og dómsmálaráðherranum eflaust ekki jafn þóknanlegur.

Einhverntímann verður allt fyrst.


Ein illa fegin...

Metsöluhöfundurinn J. K. Rowling hefur skýrt frá því að hún hafi brostið í grát er hún sat við skriftir og var við það að ljúka sjöundu og síðustu bókinni í bókaröðinni um Harry Potter.

Ja mig skal ekki undra að hún hafi verið fegin að losna úr þessari prísundinni... Til lítils að eiga alla þessa milljarða og vera föst við að skrifa einhverjar 700 blaðsíðna skruddur útí eitt.


mbl.is Rowling grét við skriftir síðustu Potter-bókarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá restin hættulaus?

Síðasta talan sem heyrst hefur eru 40 lækningatæki, mælar og aðrir geislavirkir hlutir sem hafa horfið. Af þeim eru 17 hlutir taldir vera miðlungs hættulegir og einn hlutur mjög hættulegur.

Ok 40 stk... 17 miðlungs hættulegir - 1 mjöghættulegur - en hvað um hina 22 hlutina.. eru þeir þá hættulausir?


mbl.is Geislavirk efni á flakki í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plássþjófur

er það eina sem hægt er að segja um þennan textann... því frétt er hann ekki.
mbl.is Fékk gamla farsímanúmerið hennar Parisar Hilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfuls pakk bara...

Hvað fær fólk til að læsa 1 árs barn inn í bíl í 5 klst. eða bara að skilja barn smábarn eftir eitt  í lokuðum bíl sama hversu stutta stund það er. - Hvað þá í hitabylgju.
mbl.is Lést eftir að hafa verið skilinn eftir í bíl í hitabylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er prinsinn af íslenskum ættum?

Alveg er drepleiðinlegt að fylgjast með þýðingum á nöfnum þessa kóngaslektis og minnir mann helst á afkáralegar íslenskar nafngiftir kvikmynda og þátta hjá RÚV.  

Og það er allavega lágmarkskrafa að þýða nafn kærustunnar og annarra  sem nefndir eru í sömu fréttinni ætli menn að halda sig við þessa firru.


mbl.is Vilhjálmur sagður hafa beðið Kate um annað tækifæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr öskunni í eldinn...

Já það kostar stundum smá átök að kyngja stoltinu og játa sig sigraðan en þetta er nú hámark vitleysunnar.
mbl.is Ökumaður yfirbugaður eftir hraðakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband