Leita í fréttum mbl.is

HA friðað... eru bara öll ljós kveikt og enginn heima?

bladavagninnMesta furða að H-100 slapp þarna um árið.... Það hefði þó verið góð heimild um diskómenninguna sálugu og bara almennt sukk.

Nei gamalt handónýtt hótel sem löngu er farið úr sinni upprunalegu mynd það skal friða. Eina vitræna, úr því sem komið er, væri þá að nota Jóns "Blinda" aðferðina á þetta og rutta þessu af yfirborði jarðar og byggja þá annað hús í upprunalegu myndinni... ef þá einhver yfirleitt veit hvernig þessi kumbaldi leit út í byrjun. 

Mér kæmi ekki á óvart þó þeir Norðanmenn friðuðu Borgarsöluna fljótlega. Þeir misstu jú af Blaðavagninum sáluga. Shocking

Ljósm: Pálmi í Blaðavagninum - Höf: Sverrir Pálsson - "Fengin að láni" hjá Palla Fíra


mbl.is Þrjú hús friðuð á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magt skrítið í ameríska kýrhausnum.. og reyndar víðar

Um hundrað íbúar hafa skrifað undir áskorun þar sem þess er krafist að skiltið verði fjarlægt!

Þeir hljóta að bregðast "ASAP" við þessum fjöldamótmælum svo stórs hóps þorpsbúa...

Ja svo mikið er víst að ég gæti hugsað mér að hafa skilti af þessari elsku í sjónmáli t.d í stað auglýsingaskiltis KB banka hér á Austurveginum á Selfossi, en það skilti er eitt albesta dæmi um skipulagsslys nema ef vera skyldi nýi miðbærinn hér að ógleymdu nýja hringtorginu hér og hönnun aðreina þess. 

Er reyndar, þegar ég hugsa um það... alls ekki viss um að það sé nein skipulagsdeild starfandi á Selfossi. Og í það minnsta virka þeir á mann sem hvorki sjáandi né með ökuréttindi Blush

 

 


mbl.is Bikíníklædd Beyonce veldur uppnámi í Las Vegas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögfræðingur á ógleðisstillandi eða launsonur Munchausen

Greint hefur verið frá því að piltur sem situr í fangelsi í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, fyrir að skipuleggja fjöldamorð í skóla sínum, hafi átt tölvupóstsamskipti við finnskan táning sem varð átta manns að bana í skotárás í skóla í Jokela í Finnlandi . Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

J. David Farrell, lögfræðingur hins fjórtán ára Dillon Cossey, staðfestir að piltarnir hafi verið í sambandi eftir að Cossey var handtekinn og segir Cossey sleginn yfir því að maður sem hann hafi verið í sambandi við hafi framið annað eins ódæði. Þá segir hann samskipti piltanna hafa snúist um sameiginlegan áhuga þeirra á ákveðnum tölvuleikjum og netsíðum.

Dagblaðið The Times of London greindi frá því í gær að piltarnir hefðu kynnst í gegn um minningarsíðu á netinu um Eric Harris og Dylan Klebold, sem frömdu fjöldamorð í Columbine skólanum í Colorado árið 1999.

Þessi Cossey á samúð mína alla... aumingja dregurinn.... það er sama hvað hann reynir... allt mistekst... klúðraði því að geta framið fjöldamorð sjálfur... og ofan á allt annað þá tókst honum ekki að koma í veg fyrir það að sá finnski framkvæmdi sitt voðaverk... enda gersamlega grunlaus um að það vekti fyrir þeim finnska... eða þannig.

Dettur einhverjum öðrum en lögfræðingnum hans í hug að það sé vitglóra í þessari matreiðslu? Annað hvort er lögfræðingsaulinn sá trúgjarnasti "ever" eða þá að hann er launsonur Munchausen.


mbl.is Auvinen átti samskipti við fangelsaðan bandarískan táning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar búa hvergi

Baby-on-dogÞessi haus minn er álíka vitlaus og hausinn á fréttinni sjálfri.

Eflaust búa margir útlendingar í ósamþykktu húsnæði sem upphaflega er ætlað í annað en það þýðir ekki það að þetta séu ekki mannabústaðir eins og segir í fréttinni. Nema að blaðamanni þyki þá útlendingar ekki menn? - Spyr sá ekki veit.

Og ef íbúar á "utangarðskrá" eru ekki tryggðir vegna þess eins að þeir geta ekki vísað á lögheimili mætti kannski bara breyta löggjöfinni frekar en ekkert.


mbl.is Útlendingar búa alls staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmögnuð þjóðernishyggja

Er Óli Grunn að keyra á 12 voltunum þarna í Grindavíkinni.

Spurning hvaða hugmyndir hann hefði fengið hefði hann verið bæjastjóri í Vestmannaeyjum?


mbl.is Orkan í Grindavík fyrir Grindvíkinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fengu Chelsea eitt mark í bónus?

"Englandsmeistarar Manchester United voru að skjótast á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 4:1 sigri á Middlesbrough á Old Trafford. Bikarmeistarar Chelsea skutu liðsmenn Manchester City á bólakaf á heimavelli sínum, Stamford Bridge, en lokatölurnar þar urðu, 5:0.

Úrslitin í leikjum dagsins:
Chelsea - Man.City 6:0
Man.Utd. - Middlesbrough 4:1
Birmingham - Wigan 3:2
Reading - Newcastle 2:1
Sunderland - Fulham 1:1"

Æji fariði nú að gera þetta upp við ykkur....


mbl.is Chelsea lagði City, 6:0 - United í toppsætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar kom að því... Ferrari klagar

Þessu hefði ég ekki geta látið mér koma til hugar...

Alveg ótrúlegar grenjuskjóður í þessari formúlu. Þarf að fara að breyta þessu almennilega... Henda út spólvörn og þessu tövudóti öllu saman... Leyfa fyrirkeyrslur, áskeyrslur og bara allann pakkann.

Eins og þetta er í dag þá má ekki einu sinni bremsa þegar bílstjórunum hentar.


mbl.is Ferrari klagar Hamilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta lengri útgáfan af "Yfirgaf sjoppuna með hurðaskellum"

Það virðist eitthvað vera lítið á hreinu hvernig þessi "brottför" átti sé stað. Spurning með að fá að sjá gervihnattamynd af þessu svo menn geti hætt þessum ágiskunum.
mbl.is Segir forstjóra Ratsjárstofnunar hafa hætt í góðu samkomulagi við ráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband