Leita í fréttum mbl.is

Heimska eða kjarkleysi?

Mér finnst grátlegt að hlusta á stjórnmálamenn (ekki bara Björn í þessu tilfelli) sem ekki virðast hafa hugrekki til að viðurkenna mistök og það ekki einu sinni sín eigin... þó eflaust spili hér inní það að verið er að tala við yfirmann þessara mála, þ.e dómsmálaráðherra.

Það að segja drepa því á dreif að um mistök sé að ræða er vonandi heimska eða í versta falli kjarkleysi. Allt annað er vart hægt að fyrirgefa.


mbl.is Björn Bjarnason: „Taka þarf vinnureglur til endurskoðunar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Það er ekki með nokkru móti hægt að skilja þessar línur þínar í samhengi við fréttina og það sem Björn sagði. Hann vildi ekki leggja dóm á lög sem eru ekki á ráðherraforræði hans, hann vildi ekki tjá sig um dóm Mannréttindadómstólsins þar sem hann hafði ekki lesið hann. Og hann sagði alla sammála um að taka vinnuaðferðir í málum sem þessum til endurskoðunar, þ.e. aðild læknaráðs að dómsmálum sem þessum.  

Hvernig á Björn að viðurkenna mistök fyrir hönd Hæstaréttar? Er hann bær til þess? Er það hlutverk hans eða stjórnmálamanna?

Ágúst Ásgeirsson, 6.7.2007 kl. 19:05

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Sæll Ágúst. Ja ég get nú vart borðið ábyrgð á skilningsleysi þínu ef þér finnst ekki setningin "ég meina dómar eru dómar og menn geta síðan dregið þá ályktun hvort þetta er álitshnekkir eða ekki"  .. og þrátt fyrir að Björn segi menn geti þetta... ja þá getur hann það ekki sjálfur? - Er hann ekki í það minnsta maður? Og ef þér finnst að æðsti yfirmaður dómsmála hvorki eigi að hafa skoðanir á Hæstarétti né viðra þær - hver þá?

Og eins og þú segir eftir honum "Og hann sagði alla sammála um að taka vinnuaðferðir í málum sem þessum til endurskoðunar, þ.e. aðild læknaráðs að dómsmálum sem þessum. " - Heldurðu að enginn þesssara "allra" hafi lesið dóminn... eða heldurðu kannski að þessir "allir" hafi vitað að þetta var hneysa en ekki nennt að gera neitt  í málunum? - Hæstiréttur per se mun aldrei viðurkenna mistök svo hverra er það þá að gera það ef ekki dómsmálaráherra og/eða stjórnmálamannanna?

Þorsteinn Gunnarsson, 6.7.2007 kl. 20:00

3 identicon

Sæll Þorsteinn,

þegar þú ræðir það, sem ég sagði um álitshnekkinn, sleppir þú spurningunni, en blaðamaðurinn spyr, hvort dómur mannréttindadómstólsins sé ekki álitshnekkir fyrir hæstarétt og býr síðan til þá setningu úr svari mínu, að svo sé endilega ekki og setur hana innan gæsalappa í fyrirsögn! Þetta voru röng vinnubrögð blaðamannsins og hafa nú verið leiðrétt.

Ég hef þá skoðun í þessu máli, að hlíta beri niðurstöðu mannréttindadómstóls Evrópu og í því felst meðal annars að endurskoða lögin um læknaráð eins og heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera að tillögu landlæknis.

Mannréttindadómstóllinn hefur sagt sýna skoðun. Það er  hvorki hlutverk dómsmálaráðherra að bæta einhverju við þann dóm né svara fyrir hæstarétt. - Ef breyta þarf lögum að fenginni niðurstöðu dóma, er stjórnmálamanna að sinna því og það hefur verið ákveðið að gera það í þessu tilviki.

Með góðri kveðju

Björn Bjarnason

Björn Bjarnason (IP-tala skráð) 7.7.2007 kl. 12:02

4 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Sæll Björn  og takk fyrir svarið.

Já ég er sammála þér var með að í haus fréttarinnar hafi blaðamaður gerst óþarflega frjálslegur í meðförum, svo ekki sé meira sagt. Það breytir ekki hinu þ.e þeirri skoðun minni að mér þyki jafn aumt að, í þessu tilfelli, yfirmaður dómsmála hafi ekki svarað skoðun sinni um viðfangið án málalenginga.

Mér fannst þú slá úr og í með þessu dæmi sem ég nefndi í blogginu og verð bara að viðurkenna að ég er orðinn hundleiður á því að stjórnamálamenn fari alltaf, í tilsvörum sínum við ágengum spurningum,  eins og köttur í kringum heitan graut. Og það að segja að það sé ekki á þínu forræði að meta það hvort lög séu orðin úrelt hljómaði í besta falli vandræðalega.

Ég gleðst hinsvegar yfir því að sjá hér í svari þínu að menn ætli að ganga til verka og laga til samkvæmt úrskurði mannréttindadómstólsins en á hinsvegar erfitt með að sjá þann aðskilnað á milli ráðherra og alþingismanna sem mér finnst koma fram í svari þínu. Ég leit þannig á að þú hefðir verið spurður um álit dómsmálaráðherra á niðurstöðu mannréttindadómstólsins  með tilliti til þess hvort um álitshnekki væri að ræða  gagnvart hæstarétti, og finnst það akkúrat vera þitt starf að svara því, bæði sem áðurnefndur dómsmálaráðherra svo og sem alþingismaður.

Ef það er ekki þeirra sem setja lögin, þ.e alþingismanna, að hafa á þeim skoðanir, þá er illa fyrir okkur komið.

Með ósk um gott gengi og aukið afdráttarleysi, Þorsteinn Gunnarsson

Þorsteinn Gunnarsson, 7.7.2007 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband