Leita í fréttum mbl.is

Konan útskrifast loksins á morgun

reykjalundurJæja þá er langþráður dagur að renna upp en á morgun föstudaginn 1.júní,  kemur konan mín heim en hún hefur legið á spítala og síðan á Reykjalundi síðan 13. nóvember 2006. Sex og hálfan mánuð takk fyrir takk og er enn heil á geði:-). Rúlla og sæki hana  í fyrramálið og ætlum að færa þessum elskum á Reykjalundi einhvern smá þakklætisvott í leiðinni fyrir topp umönnun og yndislega viðkynningu.

Ríkarður Flóki afastrákur braggast og allt gengur vel hjá þeim hjúum. Smelli inn myndum við tækifæri

studentarNú svo er stelpan okkar og kærastinn hennar, þau Kolbrún og Víðir í útskriftarferðinni sinni útá Krít(eru reyndar í Athenu þegar þessar línur eru skrifaðar).  Þannig var að þau ætluðu sér alltaf að skreppa til Athenu og kíkja á helstu staði og ég hafði samband við viðskiptafélaga minn ytra, sem tók þau að sér og lánaði þeim neðri hæðina í húsinu sínu... lét sækja þau á völlinn við komuna til Grikklands og burra með þau um allar trissur, og ofan á allt saman þá sendi hann mér mynd áðan þar sem hann er, ásamt konu sinni úti að borð með krökkunum.  Og textinn i mailinu var einfaldlega: Jelous?:-) - Svona gæjar eru náttlega baaara cruel...

En semsagt er á lífi og bara býsna ánægður með lífið en hef bara ekki haft tíma til að blogga.

Heyrumst kát!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gott að sjá þig. hafði smá áhyggjur. Ég vissi ekki að konan þín væri búin að vera í burtu frá heimilinu. Gaman að þið skuluð loks fá að vera saman. Til hamingju með dótturina.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.6.2007 kl. 00:57

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Takk takk.. Jú Helga fékk GBS( http://skrifa.blog.is/blog/nenni/entry/57666/ ) og lamaðist á höndum og fótum... en er farin að geta gengið í göngugrind og aðeins á hækjum í dag... og orðin býsna handstyrk líka svo þetta er allt í rétta átt. En manni finnst samt ótrúlegt að geta farið svona af því einu að fá camfólibakter úr einhverju innfluttu kjúklingabringurusli...  Ekki góður Bónus það! En við erum bara bjartsýn

Þorsteinn Gunnarsson, 1.6.2007 kl. 01:14

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Til hamingju með að fá betri helminginn heim. Eflaust búinn að vera erfiður tími fyrir fjölskylduna en sýnist tilveran vera að snúast með þér og þínum

Heiða B. Heiðars, 1.6.2007 kl. 11:42

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk Þorsteinn. Ég bið fyrir fullum bata.

Jóna Á. Gísladóttir, 2.6.2007 kl. 20:45

5 identicon

Til hamingju með að vera búin að fá konuna loksins heim, ég fékk þennan sjúkdóm 1994, varð lömuð að brjóstkassa en náði mér á ca 4 mánuðum var komin heim og komin með reflexa eftir ca 9 mánuði. Þetta gerist hægt og hljótt, mataræðið skiptir miklu máli (prufa að taka inn 1 matskeið á dag af bómolíu en hún er æðisleg fyrir slíðrið utan um taugaendana)barrátta og jákvæðni fylgir okkur síðan alla leið.

Gangi ykkur vel kveðja Eydís

Eydís (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 00:06

6 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Sæl Eydís, takk fyrir að pára hér athugasemd. Ég hef verið forvitin hvernig GBS sjúklingar eru eftir svona langan tíma. Ef þú hefur tíma og áhuga þá þætti mér vænt um að fá línur frá þér, þú skrifað á netfangið tofraljos att tofraljos. com

Helga Auðunsdóttir, 15.6.2007 kl. 02:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 203061

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband