Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

HEIMSÓKNIR BANNAÐAR

Enginn grunaður en samt er skuldinni skellt á reykherbergið. Þar geti gestir hitt sjúklingana og þaraf leiðandi komið á þá dópi. Halló halló

HEIMSÓKNIR BANNAÐAR á LSH verður örugglega fljótlega haus á frétt  með þessu áframhaldi. Við verðu bara að gera okkur grein fyrir því að ætli fólk að ná sér í dóp þá finnur það leið til þess, og það hefur ekkert með reykherbergi eða ekki reykherbergi að gera.

"Starfsfólk hefur lengi grunað að fíkniefna sé neytt í reykherbergjum." - Og grunar þetta sama starfsfólk heilbrigðistéttarinnar ekkert hvar þessi "meinta neysla" muni þá fara fram að reykherberginu öllu? - Eða var þetta sama lið kannski að finna upp aðferð til að losna við dópið í eitt skipti fyrir öll með lokun skonsunnar?

Ég er sko sáttur við reyklausa veitingastaði, opinberar stofnanir, flugvélar, leigubíla og fleira en lokun reykingaskonsanna á sjúkrahúsum er bara mannvonnska og ekkert annað og hefur ekkert heilbrigðigildi. 


mbl.is Reykherbergjum á LSH verður lokað á næstunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pabbinn var að eignast vídeócameru

Ekkert mega þessir unglingar okkar gera lengur. Og nú, þegar alltaf er verið að gagnrýna foreldra fyrir að gera ekkert með börnum sínum, þá sýnir þessi Indverski læknir gott fordæmi en hlýtur ekkert nema bágt fyrir.

Það er bara ekki alveg í lagi með sumt fólk...


mbl.is Ungur skurðlæknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda eini sénsinn fyrir hann

Devil Sæll prestur...ég hef syndgað...
Halo  Hvað varstu nú að gera af þér drengur minn?
Devil Ég hef sent unga drengi til Írak þar sem þeir hafa drepið og verið drepnir í unnvörpum.
Halo  10 maríubænir og hættu svo svona rugli.
Halo  Næsti
mbl.is Blair gerist kaþólskur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara hausinn á fréttinni hræðir...

toilet_ipodOk stafrænn lífstíll... vissi ekki að hann væri til fyrr en núna. Okkur tekst þó enn að ýta á takkana á mælaborði pottsins til að hækka og lækka hitastig, kveikja á nuddi dælum ljósum og þessu dóteríi öllu saman. Við erum að vísu með einar 10 fjarstýringar fyrir sky hd, einhverja gervihnattamóttakara, dvd, heimabíó og flatskjáinn sem er með innbyggðan digital tv móttakara og slíkt.

Við erum með digital myndavélar, videocamerur, ljósmyndaprentara,  nokkra hefðbundna og einn lazer, 5 tölvur á heimilinu, flakkara, avex spilara, Ipod, Jamo dokku, Play station, 6 misstóra tölvuskjái, webcamerur, allskonar smartkorta brennara, kortalesara og forritunareiningar, dymo labeler og P-Touch Brother miða prentara, er með bluetooth á eyranu daginn út og inn en þetta dugar ekki til þess að ég samþykki það að við ástundum stafrænan lífsstíl.

Heimili okkar er þrátt fyrir allt gamaldags... það er hlýlegt og enginn minimalismi ástundaður. Við vinnum í enda stofunnar(ca. borðstofunni) og eigum gömul húsgögn með sál og myndir og aðrir skrautmunir sem eru í okkar eigu eru ekkert endilega til vegna fagurfræðilegra sjónarmiða heldur miklu frekar vegna tilfinningalegra tengsla. Við hengjum upp myndir og teikningar eftir börn og barnabörn og enginn einn stíll ræður ríkjum.

Og meðan við opnum hurðirnar handvirkt, drögum sjálf fyrir gardínurnar, kveikjum og slökkvum ljós á venjulegan máta og hölum á hefðbundinn hátt niður í klósettið(sem nota bene ekki er stafrænt) þá viljum við ekki vera bendluð við stafrænan lífstíl.


mbl.is Verslun fyrir stafræn heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lág borð og litlir stólar

Italian-DinerAlveg finnst mér undarleg þessi árátta, leikara í Ameríkuhreppi, að vera sínkt og heilagt að opna veitingastaði. Manni hefur helst skilist á fréttum að það séu eiginlega þeir staðir sem síst vanti á því heimilinu.
mbl.is Danny DeVito í veitingarekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó það nú væri...

antique_MarkVÆtli menn væru nokkuð að víla fyrir sér að reka leikskólakennara ef hann einn daginn, sakir nýtekinnar trúar sinnar, mætti í kafarabúning af gömlu gerðinni og reiknaði svo bara með því að allt gengi sinn vanagang. 
mbl.is Má reka konur í búrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfs árs afvötnun?

Þetta hljómar ekki sannfærandi. Að ætla að framfylgja með hörku banni á notkun áfengis og það í hálft ár. En hvað svo?

Væri ekki nær að styrkja innviðina á frumbyggjasvæðunum með aukinni menntun og þjónustu. AUðvitað er sjálfsagt og eðlilegt að bregðast við þessari misnotkun á börnum, en er þetta leiðin. Næst ætla þeir sér kannski að taka upp algjöra Apartheid stefnu þar sem talsverður fjöldi frumbyggja býr í 'hvítum' borgum. Þetta minnir mann á meðferð ameríikananna á indjánunum.

Kannski verður komið spilavíti handa frumbyggjunum innan tíðar.


mbl.is Áfengi og klám bannað á svæðum ástralskra frumbyggja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar endar þetta

Las einhversstaðar að einnig skyldi helst útiloka feitt fólk. Annars hélt ég að ef dómgreind verðandi fósturforeldra væri ekki treystandi ... þá væri þeim ekki veitt leyfi hvort sem er? Silly me!

Málsháttur dagsins: Á misjöfnu þrífast börnin best.


mbl.is Breskir reykingamenn fá ekki að verða fósturforeldrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynlífsleikfönginn gerð upptæk?

Nú er svo komið í þessum dóp-, klám-, líkamsræktar- og ofbeldisheimi nútímans að það sést aldrei skeiðarhnífur utan á nokkrum heiðvirðum manni og menn fara með kaup á vasahníf eins og mannsmorð.

Feður þora vart að láta vel að börnum sínum lengur af ótta við ásakanir um duldar kvatir.  Menn kaupa sér helst franskbrauð í skjóli myrkurs.

Ekki má fara með naglaklippur í flugvél, ekki hálfa dietkók eða sólolíu í gegnum flugtékk, ekki reykja á barnum og svo mega dóphausarnir hvorki dópa né rúnta um að viðra kynlíkfsáhöldin sín.

Já heimur versnandi fer.


mbl.is Dæmd í sekt fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband