Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Ef ég væri frægur

fraegþá gæti ég ekki:

Farið á brókinni út með ruslið... æji auðvitað færi einhver annar með það..

Ekki farið á inniskónum í Bónus... auðvitað þyrfti ég ekkert þangað yfirleitt...

.... myndi kannski fleira breytast...


mbl.is Tobey Maguire gagnrýnir athyglisjúkar stjörnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til sölu Colt '87... Karl biskup hefur aldrei ekið honum

colthann er ekin 70 þúsund km. 3ja dyra, rauður, álfelgur og alles  og fæst fyrir 10 milljónum minna en Golf druslan.

Fjöldi manns hefur aldrei ekið honum og má þar nefna: Bono, Mandela, Opruh Winfrey, Bill Clinton, Rannnveigu Rist, Árna Johnsen(enda ætti ég hann þá varla lengur)Ómar Ragnarsson, Ólaf Ragnar Grímsson, Kimi Raikonen, Davíð Oddsson, Mika Hakkkinen, Geir Haarde, David Coulthard, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Einar K Guðfinssons, Dr. Gunna, Steingrím Lefty, Lay Low, Kristinn Gunnarsson, Gunna Þórðar, KK og svo mætti lengi telja.


mbl.is Enginn vildi greiða uppsett verð fyrir páfabíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað öfund er þetta?

snjothotaÉg veit ekki betur en ég hafi safnað fyrir minni þotu sjálfur og skuldi engum neitt. En það er alltaf sama sagan með þessa Íslendinga... aldrei hægt að samgleðjast manni með nokkurn skapaðan hlut. Ma ma ma bara áttar sig ekki á þessu.

Skyldi næsta ríkisstjórn hækka hjá manni örorkubæturnar? Langar svo í þotu með stýri...


mbl.is Margar einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að skilja í sátt og samlyndi... my ass!

kate_middleton_william_1"Kata mín"... "já Villi minn" ..."eigum við ekki að hætta saman... það er allt í svo lukkunar velstandi hjá okkur og við svo kát og hress hvort með annað... hvað finnst þér Kata mín?...

Ó jú...þú klár að fatta þetta... auðvitað er þetta það eina rétta... annars gætum við bara lent í því að fara kannski að pirast hvort úti annað eftir svona 20 ár og ekki viljum við það Villi minn... ó nei... já æðisleg hugmynd"


mbl.is Bretaprins og kærastan hætt saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er munurinn á fíl?

belle... Svar: Hann getur hvorki flogið.

Annars hélt ég alltaf að stúlkan héti reyndar Tallulah Belle  en ekki Talullah

Að hún skyldi nú ekki breyta þessu í Oktavíu eða bara í eitthvað skárra en Lula, t.d Lolly, Lola, Seka, Vanessa Del Rio, Tracy Lords eða... æji þau eru svo mörg "þessi" nöfn að það hlýtur að hafa mátt finna eitthvað skárra.

Annars skil ég ekki umstangið í kringum þetta...

Lunginn af þessu Hollývúdslekti man ekki einu sinni hvað það heitir í raun og veru svo...

 


mbl.is Talullah Willis skiptir um nafn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundur í stuði og berfættur hasshaus

snati

Snati var í stuðinu í Kefla

og sokkaeignir sínar vildi efla,

hnusaði að herramanni einum 

hassmola þá fann sem var í leynum

 

Sokka vildi sína ekki láta

strákurinn, en löggan vildi máta,

passaði og parið beint á hundinn

sem prýddur sokkum yfirgaf því fundinn.

 

Stráksi greyið stuðlaus varð að fara 

en Snati er orðin ofsavel til fara

ullarbland' og acryl var hans fengur

Hann eigi verður skólaus mikið lengur.


mbl.is Áhugi fíkniefnahunds leiddi til handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

N1 hönnunarskorturinn

So_n1NEINN - Nein - ENN EIN... Ja smiðurinn(get bara ekki kallað hann hönnuð) hlýtur að hafa farið illa útur viðskiptum sínum við ESSO í öllu samráðinu þarna um árið... og ákveðið að nú skyldi hann sko hlægja sig máttlausan, alla leið í bankann, að þessum bjánum sem jánkuðu hugmyndinni að þessari nafnsómynd að ekki sé minnst á útlit merkisins. 

Það var svo sem við hæfi á kynna þessa vitleysuna á föstudeginum 13. Það fer alveg óskaplelga í taugarnar á mér að sjá þessar andskotans nafnleysur sem einhverjir auglýsingastofu-popparar eru að klína á hvert fyrirtækið á eftir öðru. samanber 365 - Ég ætla bara að vona að hönnunarkostnaðurinn á þessari hörmunginni hafi ekki farið yfir 10 þúsund kallinn... enda er þetta að mínu viti eitt jafnljótasta logo sem ég hef séð í langan tíma. Og í auglýsingastofunnar sporum hefði ég sko sett klásúlu í samninginn um að nafn stofunnar mætti ekki koma fram...ALDREI


mbl.is N1 kemur í stað Bílanausts og ESSO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband