Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Deliverance

DELIVERANCE"Lögreglumenn á Akureyri veittu í gær athygli bíl, sem ekið var í átt til bæjarins..."

Þetta hefur stjörnum prýddum vinum mínum í heiðardalnum þótt vafasamt í meira lagi...


mbl.is Ölvaður og ökuréttindalaus á númerslausum bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppskeran, íbúðin, lampinn... allt farið

cannabisÞað er nú ekki eins og rafmagnsreikningurinn einn og sér sé ekki næg refsing fyrir þessa aumingja garðyrkjubændur...
mbl.is Kviknaði í út frá flúrlampa sem notaður var við kannabisræktun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er jafnræðisreglan?

andarunginn"..Af þeim sem voru jákvæðir gagnvart Steingrími J. Sigfússyni kváðust 93% ætla að kjósa Vinstri græna og rúm 93% þeirra sem voru jákvæðir gagnvart Geir H. Haarde ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þá ætla rúmlega 87% þeirra sem voru jákvæðir gagnvart Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að kjósa Samfylkinguna. Rúm 7% þeirra sem voru neikvæðir gagnvart Jóni Sigurðssyni ætla að kjósa Framsóknarflokkinn..."

Finnst eitthvað súrt við þessu framsetningu þeirra moggamanna... en ekki það að ég kenni svo mikið í brjósti um framsóknarmenn..


mbl.is Geir nýtur mestra vinsælda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

enda orðin 13...

evalongoriaÉg sem hélt að þessi elska gæti gert hvaða hlutverk sem er kynæsandi...

en spurning fyrir hana að hafa samband við eitthvert eftirfarandi fyrirtækja þegar hún verður komin fram yfir síðasta söludag og orðin enn meira "desperate housewife" en hún greinilega  er...

 


mbl.is Longoriu langar í kynæsandi hlutverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

25 tímar í sólarhringnum

cl-smileÞegar ég var ca 17-18 ára þótti mér, sem fleirum á mínu aldri, heldur lítið mega eða yfirleytt vera að gerast á Föstudeginum langa. Þarna sit ég sem sagt, á þessum degi, við eldhúsborðið á heimili móður minnar, þegar Siggi vinur minn lítur í heimsókn og spyr hvað standi til að gera af sér þennan daginn. 

Ég svaraði honum því að það væri slétt ekkert hægt að gera á þessum langa og leiðinlega degi. "Hann  er nú varla neitt lengri en aðrir dagar ársins" svaraði Siggi að bragði. Ég svaraði með hneykslunartón "Ja fyrir það fyrsta eru nú 25 tímar í sólarhringnum á Fostudaginn langa... ætlarðu kannski að segja mér að þú hafir ekki vitað það?"...

Siggi varð hálf undarlegur á svipinn, þar sem hann stóð í gættinni og góndi á eldhúsklukkuna...en stundi síðan upp þessari líka snilldar spurningunni:

"Hvernig í andskotanum redda þeir því?"

Þetta comment hans  reddaði ekki aðeins föstudeginum... þetta gjörsamlega reddaði páskunum!

Those were the days my friends.

 


Alveg makalaus...

WallyRainDropWavingHvernig skyldi standa á þessu með þessa elsku...

Brad sagði "bye baby" og er orðin barnapía hjá Algelicu Jolie... en á því heimilinu segja gárungarnir að Angelica kveðji Bratt sinn ávallt með orðunum "Buy baby"...  

- Alltaf fundist Jennifer sæt stelpa og vonandi tekst henni að finna þann eina rétta. Er viss um að ef hún leitaði hér uppá skerinu  yrði enginn hörgull á mönnum sem kveddu bara alls ekki neitt! 


mbl.is Vinir Aniston sendu hana á blint stefnumót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi maður þurfa að éta inniskóna sína?

slippersEr þetta kannski bara íslenska aðferðin þ.e  að fara alltaf erfiðustu leiðina að hlutunum? Þetta er nú gjarna hátturinn hér allavega í íþróttunum og reyndar fleiru. 

Þeir einu sem ekki hafa tileinkað sér þennan hátt eru náttúrulega nýgræðingarnir okkar... sem eru orðnir milljarðamæringar á mettíma.

Ja spyr sá ekki veit.


mbl.is West Ham vann óvæntan útisigur á Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík hræsni...

missileBandarískar herflugvélar gerðu í dag loftárásir á meinta uppreisnarmenn vopnaða flugskeytum er til átaka kom, annan daginn í röð, í Diwaniyah, suður af Bagdad. Íraski herinn hóf árás á uppreisnarmennina í gær, og að sögn heimildamanna fréttastofunnar AFP hafa að minnsta kosti fjórir fallið síðan, og 25 verið fluttir særðir á sjúkrahús.

Óttast er að fleiri séu fallnir, en vegna átakanna geta ökumenn sjúkrabíla ekki sótt fórnarlömbin. - Ok þá er semsagt enn von fyrir þá í ameríukrepppi að fleiri hafi fallið...

Hverlags djöfulsins hræsni er þetta eiginlega... auðvitað vona þeir að tala fallinna sé hærri ... væru varla að gera loftárásir á meinta uppreisnarmenn ef þeir vildu ekki kála þeim sem flestum!


mbl.is Loftárásir á meinta uppreisnarmenn suður af Bagdad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En byssulaus verð ég ekki...

bellyJá þau eru nú orðin illa mörg mannslífin sem maður hefur bjargað með því að nota kamarinn til þess að ganga örna sinna.

Hvering skyldi viðtalið við þennan kall eiginlega hafa hljóðað?

Blm.: Hvaða erindi áttir þú á kamarinn?

Viðm.: Þurfti að pissa smá...

 

 


mbl.is Brá sér á kamarinn og bjargaði 100 mannslífum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

George Clooney á Íslandi um páskana...

clooneyJa það er nokkuð ljóst að þetta hefði vart þótt fréttaefni hefði hann verið staddur hér á skerinu og verið að reyna að svala þorsta sínum á stórhátíðataxta einhvers öldurhússins.

Hef reyndar aldrei skilið rökin fyrir slíku.  


mbl.is Clooney greiddi 1.300 krónur fyrir glas af límonaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband