7.10.2008 | 18:13
Sorglegt að horfa uppá
Hvað sem hver segir þá hlýtur að koma að því að ríkið takmarki ábyrgðir sínar. Og það jafnvel þótt þeim takist að bakka út, með einhverjum lagaklækjum, frá því kauptilboð sem þeir gerðu í 75% eignarhlut Glitnis. Sem ég held að sé versta ákvörðun sem stjórnvöld hafa nokkurn tíma tekið. Takist það hinsvegar ekki... hlýtur ballið að vera rúmlega búið. Og þá er ég að meina sjálfráða tilvist ríkissjóðs.
Þeir aðilar sem eiga sitt í sjóðsreikningum sem byggðir eru að stærstum hluta á hlutabréfum fyrirtækja hljóta að tapa innistæðum sínum að stærstu eða öllu leyti. Látum það vera ef þetta væru að allt saman einhverjir áhættufíklar en svo er einfaldlega ekki raunin. Það er ekki lengra síðan en á föstudag fyrir þjóðnýtingu að Glitnir ráðlagði dóttur okkar að leggja talsverða bótaupphæð sem henni barst, og er um leið aleiga hennar, inná sjóð 9. Slíkt væri traust ávöxtun.
Eftir að sjóðurinn opnaði aftur hafði hún síðan, eðli málsins samkvæmt tapað talsverðri upphæð en þá hafði Glitnir þurft að kaupa út bréf Stoða og laga til í þessum sama sjóði, sjóði sem hafði ekki einu sinni staðist þá lýsingu sem var á innihaldi hans þ.e hlutföllum á milli skuldabréfategunda. Stelpan tók á sig tapið og losaði afganginn.
En nú virðist staðan enn verri þ.e ég reikna með því að þegar/ef þessir sjóðir opna aftur verði hrunið orðið algert og margir tapi því afganginum af ævistarfinu og eins virðist fólk jafnvel hafa sett upphæð ætlaða til fasteignakaupa eða náms inní þessa sjóði. Hvort tveggja er rúmlega sorglegt ef allt fer á versta veg.
En ábyrgð "ráðgjafanna" og eins stjórnenda sjóðanna er mikil. Hvort einhverjir verða dregnir til ábyrgðar dreg ég hinsvegar í efa. Það er ekki hefð fyrir slíku í íslensku samfélagi.
Reiðir viðskiptavinir Landsbankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já svo sannarlega er þetta sárt að sjá og heyra, og að þessir menn skildu leyfa sér að halda áfram að telja fólki trú um að allt væri í lagi er svo siðlaust að það ætti að ....... ..... ..... .......
Ég náði að hugsa áður en ég framkvæmdi skrifin, gerist ekki oft, en annars hefði blogginu þínu verið lokað og mínu líka. Segi það bra næst þegar við hittumst.
(IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 19:15
Virkilega skítt... spara stóru orðin Ninna litla...
Jónína Dúadóttir, 7.10.2008 kl. 20:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.