Leita í fréttum mbl.is

Athyglisvert að mannréttindadómstóllinn lækkaði bæturnar svo mikið

Ég óska málsaðilum til hamingju með sigurinn í þessu máli.  Auðvitað hef ég ekki lesið dóminn en velti fyrir mér þeirri lækkun sem á sér stað frá dómi Héraðsdóms. Vaninn á Íslandi er að dæma lágar og oft alveg svívirðilega lágar bætur svo þetta skýtur svolítið skökku við.
mbl.is Mannréttindadómstóllinn úrskurðar íslenskri stúlku bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ég er sammála, að lækka bæturnar næstum 20 m. er finnst mér lélegt.  Mér finnst líka sjálfsagt að fólkið fái skriflega afsökunarbeiðni, iðrun og ríkið viðurkenni sín mistök.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 5.7.2007 kl. 12:09

2 identicon

Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að Mannréttindadómstóllinn er EKKI að dæma um það hvort læknamistök hafi orðið eða ekki. Skaðabætur eru dæmdar vegna þess að talið var að málsmeðferð hafi ekki staðist reglur Mannréttindasáttmála Evrópu. Dómstóllinn í Strasbourg getur ekki snúið dómum Hæstaréttar. Sá dómur stendur óhaggaður. Raunar eru þetta því líklega ekki skaðabætur sem dæmdar eru stúlkunni, heldur einhvers konar miskabætur, en fjölmiðlar rugla þessu tvennu oft saman.

Stefán Bogi Sveinsson (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 12:49

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mjög fræðandi innlegg frá Stefáni. Þetta hafði ég ekki hugmynd um.

Jóna Á. Gísladóttir, 5.7.2007 kl. 12:57

4 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Nanna - Trúlega verður farið fram á einhverjar bætur frá ríkinu í framhaldinu.

@ Stefán - Í það minnsta eru henni dæmdar bætur.. hvort heldur er vegna miskans eða málsmeðferðarinnar og lág upphæð þeirra bóta er eftir sem áður athyglisverð.

@ Jóna - Sammála

Þorsteinn Gunnarsson, 5.7.2007 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 203126

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband