Leita í fréttum mbl.is

Væri þetta ekki bara gott á Hafnfirðinga?

Mér hefur fundist þessi álversstækkunarumræða frekar heimskuleg. Álverið er þarna og auðvitað ákveðin sjónmengun að því, en hefur gert Hafnfirðingum gott í gegnum árin ég sé ekki rökin fyrir því að neita þeim um stækkunarmöguleikann. Hinsvegar hef ég svo sem aldrei skilið þessa þörf gaflara þeirra að drita íbúðarhúsum klesst að álverinu, en það er þeirra mál.

Verð að segja það að ef til álvers í Keilisnesi kemur, þá hafa Hafnfirðingar eingöngu tapað tekjum með þessum græna pöpulisma sínum... og fá fyrir vikið annað álver í bakgarðinn


mbl.is Borgarafundur í Vogum veitir bæjarstjórn umboð til viðræðna við Alcan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér. Hélt fólk virkilega að Alcan væri að sækjast eftir þessari stækkun í einhverjum hálfkæringi, að það gæti nú verið gaman að stækka aðeins meira? Svona fyrirtæki byggja sínar framtíðarákvarðanir á tug- og hundruðamilljarða hagsmunum eigenda sinna og eru ekkert að fíflast. Mér fannst mjög trúverðugt þegar Rannveig lýsti þeirri skoðun eigenda Alcan að fyrirtækið hlyti að hugsa alvarlega um að flytja fyrirtækið annað ef af þessu yrði ekki. Það skiptir ekki einasta máli hvort álverið stóð undir sér eða var vel rekið hingað til ef hægt var að gera það enn hagkvæmar öðruvísi. Það hlýtur að vera einsdæmi á heimsvísu að sveitarfélag á borð við Hafnarfjörð frábiðji sér vinnuveitanda eins og Alcan og vísi því úr bænum.

Hans Júlíus (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 203084

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband