Leita í fréttum mbl.is

Þvílíkt heimskulegt...

koolDjöfull fer svona lagað í taugarnar á mér... Eflaust eru til "minna hættuleg" efni en sígarettur og ég er kannski ekki heldur alveg hlutlaus enda á seinni KOOL pakkanum í dag.. En mér finnst samt slíkar ráðleggingar að koma okkur í Andrés Andar deildina ekki góð pólitík. Værri skárra að þessir kallar eyddu kröftum sínum í að liðsinna þeim, sem það vilja, að hætta reykingum punktur.

Finnst alltaf svo vitlaus aðferð að ráðleggja eina fíkn í stað annarrar. Sé alveg fyrir mér að eflaust yrði einhver fjölskylda drykkjumanns í skárri málum ef t.d alkinn á heimiliunu svissaði yfir í hass, en fyndist það þó heimskuleg lausn. Eins sé ég ekki geðbatteríið segja við barnaperrann "Heyrðu góði.. hefur þú ekki leitt hugann að SM, það fást fín myndablöð um slíkt í betri bókabúðum og eins eru allar helstu leigurnar með slíkt efni".

Jón vinur minn hugðist hætta að reykja og renndi í apótekið og kom klyfjaður af alls kyns tóbaks tyggjói, nefúða og öllum græjum fyrir hálf mánaðarlaunin. Þetta var um hádegið og ég var eitthvað að gera grín að honum og tjáði honum þá skoðun mína að þetta væri ekki par gáfulegt. Hann byrsti sig og sagðist víst örugglega geta hætt að reykja lengur en ég gæti hætt að drekka(var nett blautur á þessum árum) Nú þremur tímum seinna var Jón vinur minn búinn að kveikja sér í... en fannst tyggjóið samt ómissandi og síðan reykti hann ofan í tyggjóíð næstu árin - Tvöfalt kikk.

Ég var edrú allalvega fram á kvöldið.


mbl.is Læknar hvetja tóbaksfíkla til að nota frekar snús en sígarettur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já nicotine er meira ávanabindandi en meirihluti ólöglegra fíkniefna. Ekki skiptir máli hvort þú færð það úr sígarettum eða einhverju öðru. Ætli það sé sniðugt að gefa morfín-tyggjó handa þeim sem verða háðir verkjalyfjum? (það rétt eins og nicotine er meira ávanabindandi en flest ólöglegu efnin).

Geiri (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 203078

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband