Leita í fréttum mbl.is

Gæti þetta sparað ykkur eitthvað?

Það mætti nú alveg benda Tryggingastofnun á það  að oft er sótt um mun meira af hjálpartækjum en nauðsynlegt er vegna þess eins hversu lengi þeir eru að afgreiða umsóknir. Vegna afgreiðslutímans er bara sótt um "nóg" af hjálpartækjum þannig að örugglega ekkert vanti. En ef afgreiðslutíminn styttist í t.d 1-2 daga þá væri hægt að  panta samkvæmt nákvæmlega því ástandi sem sjúklingurinn er í þegar afgreiðsla fer fram. En auðvitað er um varanlegt ástand hjá mörgum að ræða og þar kæmi þessi stytting eingöngu að þeim notum að viðkomandi sjúklingur fengi fyrr úrlausn mála. 

Síðan er ófremdar ástand(innkaup virðast taka alltof langan tíma) á þessum batteríum sem útvega tækin. Konan mín fékk að prófa sérstaka loftsessu í hjólastólinn sinn, en hún hefur verið í endurþjálfun á Reykjalundi, vegna tímabundinnar lömunar(GBS)

Ok... með þessa loftdýnu gat hún auðveldlega setið í stólnum klukkustundum saman.  En síðan þurfti að skila sessunni þar sem aðeins var um sýningareintak að ræða. Hófst þá ferli sem er ca. svona.. Sótt er um flýtimeðferð hjá hjálapartækjadæminu(TR) um að mega kaupa sessu. Það ferli tekur talsverðan tíma... síðan, eftir að vilyrði er komið, er hjálpartækjafyrirtæki látið panta dýnuna erlendis frá og það tekur einhverjar vikur.

Ég sá strax að það yrði að leysa þetta strax svo ég vældi það bara út að fá að kaupa sýningarsessuna af þeim svo Helga gæti eitthvað verið í stólnum. Enda kom á daginn að þegar sessa tryggingarstofnunar loksins kom... var Helga við það að losna úr hjólastólnum.


mbl.is Umsóknum til Tryggingastofnunar um hjálpartæki fjölgar mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband