Leita í fréttum mbl.is

Enn ein niðurlægingin...

Hvernig er dómskerfið okkar eiginlega orðið? Ég hélt einfaldlega að slíkur heiguls verknaður, hvort tveggja myndatakan og ekki síst að reka vasaljós inn í konuna, flokkaðist undir nauðgun  eða í öllu falli annað kynferðislegt ofbeldi og saksóknaraebættið ætti einfaldlega að dæma útfrá því. Látum það vera að einhverjum bókhaldsákærum sé vísað frá vegna þess að vísað sé til rangrar greinar hegningarlaganna en þetta rugl getur ekki verið réttlætanlegt.  Skammarleg niðurstaða.
mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir að taka mynd af naktri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst þessi hluti ekki síður skammarlegur;

Tekið beint úr dómnum;

" Meðferð málsins hjá lögreglu hefur dregist úr hófi fram án þess að nokkur tilraun hafi verið gerð til að skýra þann drátt. Atvik máls áttu sér stað í lok apríl 2004 og skýrslutökum af vitnum lauk í lok maí 2004 þótt ein vitnaskýrsla hafi verið tekin ári síðar. Ákæra barst ekki dóminum fyrr en um miðjan september 2006. "

Guðrún (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 13:02

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@Guðrún

Já þetta lyktar allt af áhugaleysi fyrir því að sækja þennan einstakling til saka.

Þorsteinn Gunnarsson, 28.3.2007 kl. 13:24

3 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@Ey'Ló

Já það má vera að ég hafi misskilið þetta... sá það bara ekki alveg fyrir mér að  hún hefði dokað þarna upplýst meðan tekin var fjöldi mynda hafi hún á annað borð verið samþykk verknaðinum.

Þorsteinn Gunnarsson, 28.3.2007 kl. 13:31

4 Smámynd: Kristján Kristjánsson

"Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir brot gegn blygðunarsemi konu með því að taka af henni mynd með GSM-síma, án hennar vitneskju, þar sem hún lá nakin í rúmi mannsins og fyrir að hafa á næstu dögum sýnt sjö körlum og einni konu myndina og aðra mynd, sem maðurinn sagði vera af konunni."

Þarna kemur fram í fréttinni að myndin var tekin án hennar vitneskju.

Kristján Kristjánsson, 28.3.2007 kl. 13:38

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Til hvers var vasaljósið? Glataðist eitthvað? Var kveikt á því? Hvað var það stórt? Hver átti það? .......

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.3.2007 kl. 13:48

6 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@Guðmundur

Niðurstaða dómsins er sama hneykslið hvort heldur um er að kenna lélgum saksóknara sem vísaði þá til rangrar greinar laganna og/eða lélegum dómara. Og að vísa til þess sem vörn í málinu að gæjinn hafi ekki verið með hann reiddan um öxl á meðan á þessu stóð er fáránleg. Bendi hér á gott blogg um málið, ritað af Hreiðari Eiríkssyni, fyrrv. rannsóknarlögreglumanni.

http://slubbert.blog.is/blog/slubbert/entry/160374/

Þorsteinn Gunnarsson, 29.3.2007 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 203077

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband