Leita í fréttum mbl.is

Mishlýtt í henni Reykjavík

Á öðrum staðnum fuðrar upp þvotturinn en á hinum þarf að halda lífinu í fuglunum á eldavélinni.

Nema það háfi átt að steikja þá í umbúðunum?


mbl.is Kviknaði í fuglabúri og þvotti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður nennti ekki einu sinni að ganga það á enda

Núverandi eigandi hússins er lögmaðurinn og fjárfestirinn Leonard Ross, sem keypti það árið 1976. Hann ætlar nú að breyta um lífsstíl, að sögn umboðsmanns hans.

Kannski hefur núverandi eigandi verið skokkari en hyggst nú hætta að lifa heilsusamlegu líferni og fara að hafa það notalegt í lítilli blokkaríbúð, eta Mc Donalds, stunda sófalegu á hlýrabolnum og góna á telly-ið.

hearstÞað verða kannski viðbrigði frá 'The Beverly House Compound'' sem eru rétt um 7000 m2, af íbúðarhúsnæði í 6 híbýlum á 2,6 hektörum.

Þetta fræga hús, sem meðal annars var notað í kvikmyndunum Guðföðurnum, Bodyguard og The Jerk, er meðal annars með 2 full size kvikmyndasali fyrir 35mm kvikmyndir og er annar salanna með vandað Dolby surround sound system.  

Svo var smíðuð smá viðbót þ.e 1850 m2 við hjallinn árið 1992. Einnig fylgir eitt  670 m2 hús og tvö önnur heldur minni, tveir tennisvellir, þrjár sundlaugar og svo mætti lengi telja.

Seljandinn vonast til að losna við þessa þyrpingu á einu bretti. Enda vart til skiptanna

 


mbl.is Hús til sölu fyrir 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandarinn Bush

Það að  hann  ætli ekki að svara ekki háværum spurningum getur nú vart talist ný frétt. Mér hefur nú fundist ansi hávær spurningin um Íraksstríðið en minna um svör.

Hann er kannski bara eins og hundurinn minn... heyrir bara það sem hann vill heyra og hentar honum. 


mbl.is Bush neitar orðrómi um að fréttamannasalur sé búinn skotsætum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auswitch okkar íslendinga...

AuswitchKannski heimsækja bara útlendingar Auswitch... þannig að þetta kann að vera af sama meiði...

Við skömmumst okkar fyrir fortíðina í þessum efnum og hvað er þá betra en að stinga hausnum í sandinn og skoða eitthvað annað.

Verst að það skuli koma niður á þeim sem síst skyldi.


mbl.is Íslenskum ferðamönnum fækkar í Breiðavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Da Da Da...

russian_dollsKannski langar einhvern einstæðan austantjaldsmanninn til að heyra gamla góða Da.. da.. da.. stunið á ilhýrri rússnesku ...

Nú ef hún notar síðan rússneskt slang í stað Da(já) þá gæti það valdið  misskilningi fyrir íslendingana því þá mundi hún kannski stynja upp Nu.. Nu... Nu... og það gæti náttúrulega kostað ótímabært... og eiga svo kannski korter eftir...

og slétt ekkert hægt að nýta það nema þá til að læra rússneskuBlush


mbl.is Rússnesk vændiskona send til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botninum náð

Er hægt að komast öllu neðar en að enda sjálfur líf sitt.... á reiðhjóli
mbl.is Hjólandi sjálfsvígssprengjumaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumlegir í borgarnöfnunum kanarnir

Eftir mikla keppni milli 14 bandarískra borga, sem bera nafnið Springfield,

Skil ekkert í þeim að hætta eftir 14 stk.


mbl.is Springfield í Vermont hreppti frumsýninguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur nú alltaf vafist fyrir kananum

að dæma celebið og auðmennina, nema náttlega einhverjar druslur eins og Mörtu ræfilinn Stuart og Parísi Hilton, Heidi Fleiss og... jú einhverja kalla hafa þeir nú dæmt líka...


mbl.is Kviðdómur kemst ekki að niðurstöðu í máli gegn auðkýfingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér fannst Toto eiginlega aldrei vera hljómsveit...

Þetta voru svona session gæjar og ég hafði alltaf álíka fíling fyrir þeim og Archies eða hvað þeir hétu sem gerðu Sugar Sugar frægt um árið. Auðvitað hafa tóturnar komið með fín lög og allt en samt fannst manni alltaf eitthvað vanta uppá. Kannski bara það helst að manni fannst alltaf vanta andlit á þessa hljómsveit... Sándið og spilamennskan solid en eitthvað svo sálarlaust allt saman. 
mbl.is Toto á tónleikum í Laugardalshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband