Leita í fréttum mbl.is

Það er sko hól að kalla þetta klúður?

Það er með ólíkindum að ekki skuli nást að dæma neinn fyrir þennan verknað og eftir að hafa lesið dóminn er maður mest hissa á því að dómarinn skuli ekki bara hafnað  upptöku á kókaíninu líka. Það hefði verið eftir hinu.

Eru virkilega ekki til hæfir menn til að rannsaka, ákæra og dæma svo... eitthvað annað en reiðhjólaþjófnaði og umferðarlagabrot á íslandi?

[ LESA DÓMINN ]


mbl.is Sýknaðir af ákæru vegna innflutnings á 3,8 kg af kókaíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að láta mann engjast áfram?

Hverslags rannsóknarblaðamennska er þetta eiginlega... leitt getum að en ekkert staðfest. Það er bara ekki hægt að láta mann engjast svona...

Legg til að mogginn sendi Agnesi Braga út til Hollywood strax í dag og að hún komi með eins og eina opnu um málið hið snarasta.


mbl.is Ástarþríhyrningur Barrymore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósleiðara á Selfoss takk?

Væri gráupplagt fyrir Selfyssinga að leggja leiðara í gömlu hverfin samhliða því að endurnýja gatnakerfi þeirra, enda ekki vanþörf á hvoru tveggja.

Samgleðst króksurum.


mbl.is Byrjað að ljósleiðaravæða Sauðárkrók í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MS Hafsbotn

Ég átti eina svona fyrir 30 árum... reyndar aðeins minni.. og ekki svona yfirbyggða... þó eitthver vísir að stýrishúsi á henni. Hún gekk undir tveim nöfnum, MS Hafsbotn og Sílikontúbban.

Báðar nafngiftirnar höfðu talsvert til máls. Hún hafði endalausa tilhneigingu til þess að sökkva ef hún var ekki ausin sem síðasta verk fyrir svefn og sem fyrsta verk að morgni. Ástæða lekans var fyrst og fremst sú að fyrri eigandi, ónefndur formaður Landssambands smábátaeigenda,hafði sett hana á þurrt og þar hafði þessa elska gisnað ótæpilega.   Formaðurinn fékk þá snilldarhugmynd að kítta bara kvikyndið með sílikoni, sem þá var nýtt galdraefni á markaðnum, í stað þess að doka eftir því að hún þéttist á náttúrulega mátann. Var ekki alveg að rokka þessi hugmyndin hans.

En ef sílikonið hefði verið heldur gegnsærra hefði sko ekki þurft neinn dýptarmælinn í þá snekkjuna.


mbl.is Lúxussnekkja á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver gerir það ekki?

Ég held að konurnar í mínu lífi hefðu ekki viljað hafa mig gítarlausan lengi, enda það hljóðfæri sem hefur haldið geððheilsunni í lagi svo lengi sem ég man eftir mér. Algerlega nauðsynlegt að hafa hann innan seilingar.

Kannski hefur manni eitthvað verið farið að hraka í fyrra því allavega gaf mér konan mér þá einn nýjan í afmælisgjöf.Grin


mbl.is B.B. King hafnar siðgæðisverðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auma hyskið

Það er nú fokið í flest skjól ef aumir ofbeldismenn á höfðuborgarsvæðinu þurfa orðið að aka uppí Borgarnes til að finna sér fórnarlömb....

Maður hefði haldið það væri í það minnsta meira úrval  í boginni við sundin blá og marin.


mbl.is Stoppaðir í árásarleiðangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farinn að eldast kallinn...

Reikna með að það þyrfti að höggva hvert einasta tré á undirlendi heimsins ef ætti að halda lífinu í öllum með grasfóðri einu saman... það yrðu einhverjir rófu og kartöflugarðarnir sem þyrfti í það.

Nautalund Bernaise eða Gulrófa soðin... það er spurningin

 


mbl.is Bítill leysir gróðurhúsavandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fannst standa þarna "Ekki fyrir léttari en 16 kíló"...

... þegar ég sá hausinn á fréttinni útundan mér meðan ég gjóaði á þessa sveltu á myndinni.
mbl.is Ekki fyrir yngri en 16 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 203495

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband