24.1.2008 | 21:09
... og ég sem vissi ekki einu sinni að þau væru týnd
Gott mál gaflarar.
En hvernig væri nú að hætta að taka fram kyn þess sem grunaður er. Þetta kemur óorði á okkur karlana og er gersamlega ólíðandi blaðamennska. Djöfull er ég jafnréttisþenkjandi í dag
![]() |
600 grömm af kókaíni fundust í íbúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2008 | 14:31
Til hvers ætlast þessir strætóstjórar eiginlega
...að maður viðri frúna bara ótjóðraða eða hvað?
Ætli maður verði þá ekki bara að nota einkabílinn áfram þrátt fyrir að Árborg sé farin að splæsa strætó á lýðinn.
![]() |
Gota með kærustuna í bandi vísað úr strætó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.1.2008 | 00:59
Gísli á Uppsölum hvað?
![]() |
Þarf að texta Brown? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2008 | 00:58
Viðhlítandi... færði hann yfir höfuð einhver rök?
![]() |
Dómarafélag Íslands: Ráðherra færði ekki viðhlítandi rök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 01:32
Átti greinilega ekki framtíðina fyrir sér
Ég held að það verði að fara að semja við handritahöfundana áður en restin af þessum ungu leikurum klárar kvótann sinn mitt í auðnuleysinu.
Auðvitað er þetta aðstandendum hans harmdauði en mér finnst alltaf nett súrt að sama liðið og tekur á sig stóran krók þegar það sér ógæfufólkið í sínu eigin heimalandi skuli ekki á heilum sér geta tekið þegar eitthvert celebið útí heimi tekur loks útúr sér silfurskeiðina.
Annars fannst mér sérstakt að á visi.is tóku þeir það fram að Heath Ledger hefði átt pantaðan tíma í nudd í kvöld. Það skyldi þó aldrei hafa orðið honum að aldurtila?
![]() |
Heath Ledger látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.1.2008 | 20:51
Hvað segirðu... því trúi ég ekki
Ætla mennn virkilega að lofa honum að fá að hvíla í friði?
Heimskuleg frétt.
![]() |
Engir eftirmálar af útför Fischers |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.1.2008 | 18:46
Ja hratt rotnar bifurinn
Svo kalt að þurfti að gera að kalsárum kappans en kjötið orðið svo rotið, á 4 sólarhringum,að hann ældi...
Ja það hefði ekki þýtt að bjóða þessum á vestfirskt þorrablót
![]() |
Borðaði rotið kjöt til þess að halda lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.1.2008 | 18:10
Við hverju bjóstu eiginlega sauðurinn þinn?
Pottþétt aðferð til að fá fólk uppá móti sér er að:
- Ljúga það fullt
- Ákveða framtíðina fyrir þeirra hönd án samráðs
- Muna ekki eftir símtölum sem fóru fram samdægurs við samstarfsfók
- Skipta um lið í hálfleik
...og svo sakar það náttúrulega ekki að heita Ólafur F. Magnússon
![]() |
Mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
30.12.2007 | 21:36
Gæti fyrirsögnin verið óheppilegar orðuð? - Varla
Sonur Bhutto formaður í orði en eiginmaður hennar í verki
Það mætti segja mér að færi um þá sem lesa þetta en t.d vita ekki að búið er að kála kerlingunni. En kannski fer bara enn meira um hina sem vita það...
En kannski er bara enginn með svona sóðalegan hugsunarhátt
![]() |
Sonur Bhutto einungis formaður í orði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.12.2007 | 23:21
Eiginkonan er "Eign þvottahúss spítalanna 2007"
Þann 27.des skaust ég með konuna í bæinn í rannsókn á Borgarspítalanaum. Fyrir rúmu ári, þ.e þann 13. nóvember 2006 fékk hún sjaldgæfan sjúkdóm sem heitir GBS(Gillen Barren Syndrome) og lamaðist tímabundið. Þetta er sjúkdómur sem einn af hverjum hundrað þúsundum fær og á að ganga til baka og gerir það hjá flestum. Nú Helga mín fór ansi illa útúr þessu og stóð ekki uppúr hjólastólnum fyrr en í mars og fékk ég hana ekki heim fyrr en 1.júní. Hún hefur svo verið að smá hressast þar til nú fyrir jólin að tilfinning í höndum og fótum fór að breytast aftur og þrátt fyrir eins mikla afslöppun og auðið er þá lagaðist þetta ekki heldur frekar versnaði og því var ákveðið að láta rannsaka þetta strax.
Hún var því skoðuð og testuð fram og til baka í nokkrar klukkustundir og þá kom í ljós að hún hafði fengið GBS aftur, þrátt fyrir það að líkur á slíku séu alla jafna litlar. Ákveðið var í framhaldinu að leggja hana inn til meðferðar og var hún síðan merkt þvottahúsum spítalanna og ártali. Þrátt fyrir þetta áfall erum við þó fegin að brugðist var snöggt við og var hún farin að fá blóðvökva í æð innan nokkurra klukkustunda og missti því ekki allan mátt eins og síðast, en þá lamaðist hún upp á brjóst og hendur upp að öxlum.
Eins og sjá má á þessari mynd var ekki allur máttur úr minni... og frekar en ekkert staulaðist hún út á meðan hún beið innlagnarinnar og náði sér í "súrefni" enda ekki svo gott loftið inná þessum sjoppum. KOOL!
Hér situr sú stutta á rúmi fram á gangi á bráðamóttökunni og bíður þess að geta komist uppá deild til þess að geta farið að fá vökvann í æð... en eðlilega var hann ekki til á spítalanum og þurfti að ræsa eitthvert apótek út til að redda því glundrinu, en þetta er eitthvað rándýrt lyf sem unnið er úr hundruðum heilbrigðra blóðgjafa hver flaska og kostar augun úr.
Hér er hún svo komin með Sandoglobulinið í æð en hún fær einar 5 flöskur af þessu á dag í 5 daga og ætti það að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn versni og eins og staðan er í dag (29.des) þá hefur dofinn heldur minnkað en þetta reynir ansi mikið á samt og er þessari elsku dálítið óglatt á meðan þetta stendur yfir. Eins eru miklir taugaverkir og allskonar óþverri samfara þessu. En hún ber sig vel... og í það minnsta gerir sitt besta til að róa karlkvölina sína sem er ekkert alltof rólegur yfir þessu Eins er þetta erfitt fyrir krakkana og kannski sérstaklega þann yngsta sem þó ber sig mannalega og eins og seinasta vetur fer alla daga með mér að heimsækja hana en við vonum þó að þetta verði kannski bara þessir 5 dagar í þetta skiptið en ekki 6-7 mánuðir eins og síðast.
Hér er sá yngsti að "hvíla aðeins augun" á heimleiðinni af spítalanum og Ýmir, sem nánast bjó í bíl seinasta vetur, fylgist með akstrinum... enda bílstjórinn að munda vélina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 203492
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar