Leita í fréttum mbl.is

Ekki þorað að hafa hana stærri

Örsmárri smásjá var stungið inn í líkamann og var ekki þörf á hefðbundinni skurðaðgerð.

Þeir hafa ekki þorað að vera með stærri tól af ótta við að sú geðgóða grýtti þeim  í læknana.


mbl.is Naomi Campbell gekkst undir aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður þurfti að sjá um búsið sjálfur í Gagganum í den

Það er ekki nema von að hver einasti kjaftur vilji vera í skóla nútil dags... Það var andskotan ekkert innifalið í svona skreppum þegar ég var í skóla.
mbl.is Sagði af sér formennsku að beiðni skólameistara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfulsins frekja er í þessu liði...

Er ekki nóg að þeir stálu þessum Land Roverum þó þeir fari svo ekki að heimta hitt og þetta í ofanílagAngry
mbl.is Mannræningjar setja fram kröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Los Angeles hvað....

Bjó á Akureyri í 40 ár og fór á þeim árum kannski þrisvar eða fjórum sinnum í leikhús en hét því þó í hvert skipti að þetta yrði maður að gera meira af. Fluttist fertugur á Selfoss og fannst heldur ómerkilegt að ekki væri einu sinni bíó hér á staðnum. Við Helga skruppum því stundum í bæinn í bíó og sáum jafnvel 2 myndir í ferð. Nú er löngu komið bíó á Selfoss svo bíóferðirnar í bæinn eru liðin tíð.

En ég hef hinsvegar aldrei komið inn í Selfossbíó. Stundum verða menn einfaldlega að sækja vatnið yfir lækinn.


mbl.is Flóin slær LA-metið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo bregðast krosstré...

saraEn það er nú ekki eins og það sé einhver goðgá að viðra hana þessa... jafnvel með slétt hárið


mbl.is Clooney krullaði hárið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta kannski orsök manneklunnar hér heima?

loggaÞað skyldi þó aldrei vera að þetta væri orsök manneklunnar í lögreglunni hér heima. Það er jú vitað að ekki eru þeir ofborgaðir blessaðir lögregluþjónarnir svo kannski verður bara að horfa framhjá því þó einn og einn fá sér aukavinnu. Ég verð þó að segja það að ég sé nú ekki að allir ættu þeir ferilinn vísan í þessum bláu... en hver veit. Misjafn er smekkur manna... og kvenna.

Hvernig var aftur textinn góði....: Við heimtum aukavinnu... við heimtum ennþá meira aukavinnu. Bíða menn nú spenntir eftir kröfuspjöldunum á degi verkalýðsins þ. 1. maí


mbl.is Lögreglukona rekin fyrir að leika í klámmynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við Helga... erum 10 ára í dag

Það var á þessum degi fyrir 10 árum sem við Helga byrjuðum saman. Þessi ár hafa rúmlega flogið og samt finnst okkur að við höfum verið saman alla tíð. Stundum spyr ég Helgu mín hvort hún muni ekki eftir einhverju sérstöku atviki úr fortíðinni og svarar hún þá kímin.... " Nei Steini minn... það hefur verið einhver önnur kona"Grin

En allavega er þessi dagur sérstakur fyrir okkur... eins og reyndar allir dagar eruWink

Takk Helga mín fyrir að vera til og takk fyrir að vera konan mínHeart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 203492

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband