Leita í fréttum mbl.is

Reikna krakkar mínir reikna...

Hvenær urðu 72 tímar að 4 sólarhringum?

Þessi 4x tafla gekk kanski í góðærinu...Blush


mbl.is Glápti á sjónvarp í fjóra sólarhringa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldu þær verða "síðar" kosningabrækurnar sjallanna þetta árið.

Þetta hafa verið soddan stuttbuxnadrengir sem hafa ráðið ferðinni seinustu árin.... en þeir hljóta allavega að dömpa g-strengnum fyrir voriðBlush


mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir mig, mótmælendur góðir

Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem standa í mótmælum vegna ástandsins hérlendis. Ég dáist að fólki sem lætur ekki nægja að tuða í sófanum og fer á staðinn og stendur vaktina. Ég þarf ekkert endilega að vera sammála öllu því sem gerist en það hlýtur öllu fólki að vera orðið ljóst að án þessara mótmæla væru minna en engar líkur á því að umboðslaus stjórnvöld yfirgæfu samkvæmið.

Hversu ódýrar innréttingar þarf fólk að hafa til þess að geta setið... og/eða haldið verndarhendi yfir gersamlega getulausum embættismönnum.  Og/eða bara sofið?

Það kemur tvennt til. Annað hvort fær þetta hyski útborgað í svefntöflum eða að það er samviskulaust með öllu.


Gleðilegt árið druslurnar mínar!

... og takk fyrir páskana

Gleðileg jól

Þetta er algjört möst öll jól ásamt KEA hangikjöti, laufabrauði, jólaöli og súrkáli.

Gleðileg jól kæru bloggvinir og hafði það sem allra best um hátíðirnar!


Er þetta nú ekki orðum aukið...

Þetta með hálkuna á Hellisheiðinni... ók hana um miðnættið og það var ekki einn hálkubeltt að finna á henni né reyndar nálægt henni... enda heiðin alauð, asahláka og ausandi rigning?

Það skyldi þó ekki vera að svona fréttir séu ástæða þess að fólk t.d trúir ekki lokunarskiltum og öðrum aðvörunum og það þegar síst skyldi.  


mbl.is Hálka á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gómaði konu í bakgarðinum kl 5:30 aðfaranótt sunnudags við það að stela jólaseríu

Var að fá mér að reykja fram í stofu og ljósin slökkt, ró yfir öllu. Verð ég þá var við að kona gengur frá götunni heim að húsinu og hugsaði ég með mér að það væri meiri harkan í þessu útburðarliði að vera að þessu klukkan hálf sex að morgni. Síðan heyri ég ekkert í lúgunni svo ég fer fram í eldhús og lít útum gluggann sem vísar útí bakgarðinn, í átt að kertagerðinni og sé þá þessa konu, á milli fertugs og fimmtugs, þar sem hún stendur og er að horfa í kringum sig. Hún stendur þarna smástund og skannar svæðið, klædd þykkri peysu, með húfu og vettlinga... gengur síðan að einhverri fuglaseríu(sem var eina skreytingin utandyra) og fer að týna hana af trénu sem hýsti hana.

Við skulum orða það þannig að það hafi heldur fokið í mig þegar ég gerði mér grein fyrir að þarna var komin manneskja í þeim tilgangi einum að stela og því sleit ég upp hurðina útí bakgarðinn og hvæsti á hana að hún skyldi "vinsamlegast að láta af þessari iðju".  Hún tók á rás út úr garðinum og út á götu þar sem silfurlitur 4 dyra VW Golfinn hennar beið í gangi... og ók burt.

Þetta var sko kona sem var eingöngu í ránsleiðangri!

Vil svo bara óska henni gleðilegra jóla... þó svo að þau verði kannski á annarra kostnaðBlush


mbl.is Talsvert um innbrot og þjófnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segi og skrifa... Vatn er þvottaefni

Minnugur þess hversu veikir við urðum þegar við tveir pjakkar vorum plataðir í vatnskappdrykkju. Ætli ég hafi ekki verið ca 10 ára þá og hinn svona 13.  Drukkum 2 lítra og fárveiktumst, ældum lifur og lungum og ég man enn svimann sem hrjáði mig það sem eftir lifði þess dags.

Enda svara ég gjarna konunni, þegar ég, við matarborðið bið hana að rétta mér drykk og hún réttir mér vatnskönnuna, að ég sé þyrstur...ekki skítugur.Blush  


mbl.is Lést vegna ofneyslu vatns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta nú ekki óþarfa umhyggja...

...að vara menn við vondri veðurspá? Elsku vinir... veðurspár eru yfirleitt frekar vondar og standast illa en þjóðin er vön því og óþarfi að vara hana við. Veðurfræðingarnir gera sitt besta, greyin.

vedurspa

Meiri snillingarnir þessir DV menn!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband