Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
19.10.2007 | 15:41
Hafa þessir norsarar ekki heyrt minnst á Landhelgisgæsluna?
Norska ríkisútvarpið NRK segir, að norsk stjórnvöld hafi áhyggjur af áformum Íslendinga um að hefja olíurannsóknir á svonefndu Drekasvæði við mörk efnahagslögsögu Íslands og Noregs.
Ekkert smá umhyggjusöm þessi Norsku stjórnvöld.
Norsk stjórnvöld hafa áhyggjur af olíuáformum Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.10.2007 | 15:33
Hversu stór var bekkurinn eiginlega
Í dómnum segir m.a. að geymsluháttur mannsins á verulegum fjölda skotvopna og skotvopnahluta sé óforsvaranlegur og enn ámælisverðari en ella með tilliti til þess að hann eigi að teljast fagmaður í meðferð skotvopna.
Grísinn hann var ekki fúskari
Með fjölda af byssum á glámbekk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 15:30
Segðu...
Britney Spears hefur samið lag um misheppnað hjónaband hennar og Kevin Federline. Nefnist lagið Why Should I Be Sad". Heyrst hefur að textinn sé eitthvað á þessa leið....
Why should I be sad
even though I'm mad
And now I've finally had
enough of my kids dad
He's such a disturbed lad
and wasn't so happy or glad
when I looked at an ad
and went to the shaving squad
Corus:
I'm not gay... I'm Britney, Britney, Britney
On top I stay... I'm Britney, Britney, Britney
Today's the day... I'm Britney, Britney, Britney
Segð'ekki nei... I'm Britney, Britney, Britney
Britney með lag um hjónabandsraunir sínar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2007 | 13:01
Átturnar eru líka með svo lélegt ónæmiskerfi
Eru borgarbúar varaðir við því að drekka ekki vatnið ósoðið.
Hmm.. Er það nema von að norsararnir séu ekkert allt of vissir um það hvort sjóða skuli vatnið eða ekki?
Grunur um að átta hafi fengið sýkingu úr norsku vatni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.10.2007 | 12:56
Sjúkk... gæinn illa heppinn að raka hann ekki líka
Hefði það breytt einhverju ef þetta hefði verið fyrir utan tannlæknastofu...eða bílaverkstæði?
Það er spurningin.
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá lögreglumann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2007 | 12:40
Ping pong og sí kei... og tussan blá á kettinum
Jæja þá er það staðfest að David Copperfield er greinilega ekki sjónhverfinga maður því annars hefði hann eflaust veifað töfrasprotanum og sagt, eins og einn fyrrum nágranni minn fyrir norðan sagði gjarnan þegar hann lýsti hlutum sem voru töfrum líkastir... "Ping pong og sí kei... og tussan blá á kettinum"
Annars eru þessar $2 millur eru nú ekki nema 3,5% af árstekjum kappans svo þetta er sambærilegt við það að manneskja með árstekjur uppá 1800 þúsund lægi með 63þúsund kall í reiðufé heima hjá sér.
Væri ekki ráð fyrir Glitni að bjóða kappanum bara debetkort?
FBI gerði húsleit hjá heimsþekktum sjónhverfingamanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 12:26
Vissi ekki að Reese ætti blinda og heyrnarlausa dóttur...
en auðvitað hrjá sömu raunir þá frægu og ríku eins og okkur hin.
Og við Reese eigum það þá sameiginlegt... að hafa hvorugt sagt dætrum okkar að við séum frægir leikarar og handhafar óskarsverðlauna... þó ástæðan sé sín hvor
Heldur frægðinni leyndri fyrir dótturinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.10.2007 | 12:14
Myndi hún heita Áma Vínhús...
... ef einhverjum blaðamanninum dytti nú í hug að "snara" henni... eins og svo oft virðst gert með nöfn annarra Landrovera? Eða heitir hún kannski bara alls ekkert Amy Winehouse?
Væri ekki rétt að benda prinsinum af Wales á þá staðreynd að hann heitir alls ekkert William.... heldur Vilhjálmur? Það er sko ekki eins og það sé ekki nóg fyrir hann að hafa horft uppá hvernig Karl faðir hans hefur verið uppnefndur Charles í erlendum fjölmiðlum, heldur er eineltinu á drenginn haldið áfram af erlendu pressunni og virðist því hafa erfst.
- Eða er það kannski bara gömul bábylja að "ekki ljúgi Mogginn"?
Amy Winehouse handtekin í Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 03:38
Samskot á fundinum
Fundur settur, fáir mættir,
Fæstir þeirra stigu í vitið
Fundi slitið
ps. heyrst hefur þó að samskot hafi farið fram á fundinum og skyldu krónurnar nýttar til kaupa á heyrnartæki og nýjum gleraugum handa Villa svo hann verði ekki eins illa áttaður í "Ensku fyrir byrjendur" hjá Námsflokkunum, en þangað hefur hann víst þegar verið skráður.
Samstarfsslitin útrætt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.10.2007 | 21:45
ÁSKORUN - ÁSKORUN - ÁSKORUN
Hér neðan við er áskorun til yfirvalda og er þetta framtak Ásdísar Sigurðardóttur og Heiðu Bjarkar. Tók mér bessa leyfi að setja þetta inn ef það mætti vera til þess að fleiri sæju sér fært að styðja þetta.
Opið bréf til þingmanna og ráðherra....... og minni á undirskriftalistann.....
Hér er bréf þeirra Ásdísar Sig og Heiðu Bjarkar, en Ásdís er höfundur þess og ég fékk ekki leyfi til að birta það hér en geri það samt
OPIÐ BRÉF SEM ÉG HEF SKRIFAÐ TIL ÞINGMANNA OG RÁÐHERRA, ER AÐ SENDA ÞEIM ÞAÐ Í PÓSTI ( RAFRÆNT)
Hlekkurinn okkar er UNDIRSKRIFTARLISINN Á SÍNUM STAÐTIL ÞEIRRA ER MÁLIÐ VARÐAR.
Selfossi 18. október 2007.
Kæri viðtakandi.
Eftir að hafa móttekið bréf frá Tryggingastofnun ríkisins í síðust viku, þar sem ég og eiginmaður minn vorum krafin um endurgreiðslu v/ofgreiddra bóta til okkar, var mér allri lokið.
Ástæðan fyrir endurgreiðslukröfunni var sú að ég hafði fengið greiðslu vegna sölu á gömluhlutafélagi sem ég hafði átt bréf í síðan ég var unglingur.
Skatturinn tók ekkert því þetta var það gamalt hlutafélag svo í huga mínum ríkti sú fullvissa að nú hefði ég aldeilis verið heppin, fékk heilar 364 þús svona upp í hendurnar.
Aldeilis ekki. Þetta var að sjálfsögðu beintengt við bætur okkar hjóna af frá Trst. Og við endurkrafin um tæp 160 þús. Af þessar fjárhæð. Ég er svo reið að ég á ekki til orð. Hefði ég vitað af þessu hefði ég átt að vera búin að gefa dóttur minni bréfin og þá hefði enginn tapað neitt.
Enn og aftur kemur í ljós hversu fáránlegt það er að vera heiðarlegur gagnvart hinu opinbera. Að vera gift manninum mínum er líka fáránlega vitleysa. Við værum betur sett skilin og helst með sitthvort heimilisfangið. Hvenær ætlar hinn háæruverðugi þingheimur að gera eitthvað af viti í þessu máli???
Hversu lengi á að hafa okkur á fátækramörkum? Er það einhver dulin þörf að hafa okkur svona sér á báti í öllum mannréttindum.?
Ég bið ykkur, gerið eitthvað af viti í málunum. Hvernig er ef öryrki fær arf? Þarf hann þá að búa við það að fá ekki launin sín frá Trst? Þetta eru kölluð laun og við borgum skatt, en þegar kemur að hagnaði til okkar, vöxtum, arði eða öðru þá er það reiknað sem laun og fáum við sem ekkert getum unnið ekki einu sinni að nota launakvótann okkar upp í þetta. Hvaða réttlætir þennan gjörning.??
Nú hef ég ásamt fleiri "fjöryrkjum" eins og við kjósum að kalla okkur, hrundið af stað einni undirskriftarsöfnuninni enn og vonum við að eitthvað komi út úr því. Við erum kannski ekki rosa bjartsýn en treystum þó á að í hópi ykkar sé að finna réttlátt fólk sem væri til í að taka mál okkar upp og reyna að skapa jöfnuð milli okkar sem kveljumst fyrir launum okkar og hinna sem eru svo heppnir að geta farið að heiman að morgni og unnið og svo heim að kvöldi, án vinnunnar.
Virðingarfyllst og með von um góða fyrirgreiðslu
Ásdís Sigurðardóttir (sign)
Heiða Björk Jónsdóttir (sign)
http://www.petitiononline.com/lidsauki/ hér er hlekkur inn á síðuna þeirra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM: