11.12.2008 | 02:32
Perufullur jólasveinn
Ég keypti perufullan jólasvein í dag og skellti í potthúsið. Hef verið að setja gluggaskreytingar í kertagerðina að undanförnu og fannst potthúsið eitthvað svo lítt jólalegt þar sem maður horfði á það útum eldhúsgluggann.
Mér leið eins og smástrák þegar ég var búinn að skella sveinka á plötu og festa í gluggkistuna. Minnti mig á gamla tíma frá Akureyri þegar maður labbaði inn í miðbæ, sem lítill gutti, til að sjá slík undur eins og upplýstan Sveinka og jafnvel jólasvein sem vaggaði höfðinu í einhverjum útstillingarglugganum. Gott ef það var ekki í Kristjáns bakaríi. Svo var þessi fína jólastjarna strengd yfir Hafnarstrætið og þá voru sko að koma jól.
Mér hefur einhvernveginn aldrei fundist þessar nútíma jólaseríur með litlu perunum vera raunverulegar úti jólaseríur. Það eiga sko að vera marglitar stórar perur í útiseríum. Punktur.
Það eru að koma jól.
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég man vel eftir jólasveininum sem vaggaði höfðinu og öllu hinum auðvitaðAnnars sá ég um daginn þegar ég keyrði niður Kauffélagsgilið og að stjarnan þar sem alltaf var gul og rauð skartar núna þessum bláa tískulitHafðu það gott minn kæri og njóttu útsýnisins úr eldhúsglugganum, það er þess virði
Það eru að koma jól
Jónína Dúadóttir, 11.12.2008 kl. 06:21
Mikið er ég sammála þér með litina á perunum En ég var nánast bannfærð fyrir þá skoðun á Egilsstöðum fyrir 3 árum minnir mig eða þegar þeir skiptu út lituðu perunum yfir í glærar í bæjarskreytingunum og mér tilkynnt að það vildi engin að bærinn liti út eins og rauða hverfið í Amsterdam .
Ég reyndi að minna á þetta, þú veist, þetta með að kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá, og að mér fyndist hugsanaháttur ýmissa vera orðin full saurugur, en það hafði ekkert að segja. Ég meira segja kallaði upphafsaðilan af þessum ósköpum menntasnobb, sem reyndist svo vera madam bæjarstjórafrú Könnun var gerð meðal starfsmanna bæjarins = kennarar í meirihluta, og þeir mörðu það rétt að glær/ hvítt skildi það vera
En mikill meirihluti einka húsa er samt skreyttur með litum, svo ef einhver vill upplifa það að vera í "rauða hverfinu" þá er bara að skella sér austur
(IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 17:42
Já ég er ekki mikið fyrir þessar glæru skreytingar... það eru LJÓS
ef ég væri ennþá útí ....Amsterdam... - Nei nóg að koma þangað einu sinni,,,, enda hef ég farið þangað tvisvar og meira að segja gisti ég í annað skiptið í rauða hverfinu
Þorsteinn Gunnarsson, 11.12.2008 kl. 18:17
Við hjónin skoðuðum bara gluggaskreytingarnar, þegar við vorum þar ásamt slatta af Malarvinnslu gengi. Þú veist bara týpísk kynnisferð.
(IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 18:33
Gluggaskreytingarnar... góð... Ég var þarna bara til að skoða síkið og bátana
Þorsteinn Gunnarsson, 11.12.2008 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.