9.7.2007 | 20:43
ÁRANGURSLAUST
Bush og félagar myndu ekki einu sinni sigra í stríði við hjálpræðisherinn.
Bandaríski herinn hlýtur að vera kominn með afrifur á lærin eftir að hafa þurft að tölta heim með skottið á milli lappanna trekk í trekk. Ég skil bara ekkert í bandarísku þjóðinni að gera ekki uppreisn gegn yfirvöldum, þurfandi að horfa á eftir sonum sínum og dætrum í dauðann vegna í þessa hobbýs þeirra George W. Bush, Dick Cheyney og félaga.
Íraksstríðið mun taka áratugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Ákærður fyrir morð á 13 ára stúlku
- Svíar virða ögranir Rússa að vettugi
- Efast ekki um að Bandaríkin átti sig á skilaboðum
- 281 hjálparstarfsmaður drepinn á árinu
- Sjötti ferðamaðurinn er látinn
- Segjast hafa drepið fimm vígamenn
- Eldflaugavarnarkerfi í skiptum fyrir hermenn
- Segir að friði verði aðeins náð með afli
Athugasemdir
Þetta er spurning um kostnað, innanlands pólitík í US, og stuðning alþjóðasamfélagsins. Bandaríski herinn gæti auðveldlega tekið Íran Afghanistan, Pakistan og nærliggjandi lönd, ef því væri að skipta. Þeir hafa algerlega tæknilega og hernaðarlega yfirburði. Bandaríski herinn fær hins vegar ekki nema ákveðin framlög á fjárlögum U.S. til þessa stríðsrekstrar, og verður að spila úr því. Alþjóðaherliðið á e.t.v. eftir að hrekjast frá Írak, vegna innbyrðis átaka trúarhópa, og endar kannski með því að Írak skiptist, í norður og suður, eða á milli sjía og sunní múslima. Á sínum tíma skiptist Indland, milli hindúa og múslima, eftir einræði Breta. Upplausn einræðis, kallar ávallt á uppgjör. Það er það sem er að gerast í Írak núna. Þeir eru ekkert endilega að ráðast á innrásarliðið, heldur miklu meir samlanda sína, af hinum trúarflokknum.
Njörður Lárusson, 9.7.2007 kl. 21:59
Já reyndar rétt hjá þér með hernaðargetuna Njörður... ég gleymdi kjarnorkuspengjunum. - En svona að allri kaldhæðni slepptri þá er ég ekki eins trúaður á þessa yfirburði og þú. Þ.e ekki á hefðbundinn landhernað í umhverfi og menningu sem kaninn hvorki þekkir né skilur. Vietnam átti nú að vera auðvelt líka og við sem erum eldri en tvævetur munum nú hvernig það gekk fyrir sig.
Ég er þeirrrar skoðunar að því fyrr em þeir "gefast upp" og hafa vit á að láta sig hverfa.. því betra. Þeir hafa enga stjórn á aðstæðum þarna og gera því illt verra með veru sinni. Uppgjörið fer að mínu viti ekki fram undir hersetunni. Og því miður mun óöldin eflaust halda afrám enda ríkir þarna borgarastyrjöld sem verður úr því sem komið er, illu heilli, að fá að hafa sinn gang.
Þorsteinn Gunnarsson, 9.7.2007 kl. 22:14
Ég átti ekki við kjarnorkusprengjur, heldur ýmiskonar samhæfða tækni landhers, loft og sjóhers, studdum upplýsingum frá gervihnöttum. Þetta er t.d. nætursnjónarbúnaður, hitamyndavélar, og samhæfð lasermiðun flugskeyta sem er skotið hvort sem er frá skriðdrekum, flugvélum eða skipum. Einnig er stjórnun hersveita á jörðu niðri mun hnitmiðaðri og áhættuminni með þessa upplýsingatækni að vopni. Þetta kom berlega í ljós í innrásinni í Írak. Ég er hinsvegar að hallast á þá skoðun, að alþjóðlega herliðið ætti að hefja brottflutning, nú þegar. Það er bara rétt, eins og þú segir, að þeir hafa enga stjórn á ástandinu, og það munu ekki fást fjárveitingar til þess ná því marki.
Njörður Lárusson, 9.7.2007 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.