4.7.2007 | 14:10
Púkann strákar... púkann!
Lítillræði af amfetamíni og hassi fannst í fjórum bifreiðum um helgina eftir að fíkniefnahundar voru fengnir til að leita í þeim. Efnin voru afar vel falin og höfðu ekki fundist eftir hefðbundna leit lörgreglumanna.
Fíkniefni fundust í bílum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er viss um að eftir þessa lífsreynslu hafi þessir neytendur litið yfir líf sitt og séð að þeir væru í rauninni ekki venjulegt fólk heldur einhvers konar hvolpakyrkjandi, smábarnahristandi hryllingsfólk sem veldur morði, geðveiki og dauða. Ennfremur hljóta unglingarnir nú að hópast saman í stórum stíl utan um mál þetta og ákveða að hætta að vera forvitin um tilveruna sem við búum í.
Vímulaust Íslands 2001!
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 14:22
Hahah ætla að vona að þú sért að grínast Helgi...
Það væri alveg greinilegt að þú hefðir ekki sagt þetta ef þú þekkir fíkniefnaheiminn hérna vel. Það er alveg sama hversu mikil gæsla, hversu þungur dómur og hversu margir lögreglumenn berjast í þessu svokallaða "stríði" gegn fíkniefnum, það á eftir að versna.
Mér finnst það mjög skrítið að fólk hér á landi sé að styðja þetta "stríð", sem svo margar aðrar þjóðir hafa brennt sig á. Hvað hefur föngum, innbrotum, dópsölum, handrukkurum og fleiri afbrotamönnum fjölgað mikið síðan þeir byrjuðu í "stríðinu" ? Sérðu Singapore, kína, tæland eða vietnam vera að skána með að hafa dauðadóm fyrir fíkniefnamisferli ? Svarið er nei.. Það hefur þveröfug áhrif.
Fólk er ekki að Ísland verður ekki fíkniefnalaust.. Ekki 2010, 2020 heldur aldrei..
bjartur (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 15:48
Það er rétt, þetta var lagt fram í kaldhæðni. En það er hálfur punkturinn, að maður getur ekki verið viss um það hvenær fólk er að grínast og hvenær því er alvara, því aðra eins vitleysu og ég lagði fram í mínum pósti er raunverulega haldið fram.
Það er rétt, Ísland verður aldrei vímuefnalaust, ekkert frekar en það verður nokkurn tíma trúarbragðalaust eða sjálfsfróunarlaust.
Það er líka þetta, sko... dóp er slæmt vegna þess að fólk sem er í dópi hefur það skelfilegt, er það ekki? Þannig að við... sektum og fangelsum það... til að því líði betur? Þetta er sama sagan og með vændið í gamla daga, þetta kemur því lítið sem ekkert við að fólk eigi bágt, þetta snýst um að berja inn í fólk hlýðni við sýn þjóðfélagsins á því hvaða dóp sé í lagi. Áfengi til dæmis, er engu minna dóp á allan hátt, heldur en hvað sem er annað.
Jæja, ég gæti svosem skrifað bók um hversu HEIMSKULEGT þetta dópstríð er. Á meðan fólk upplifir eigið andlegt ástand sem persónulegan hlut (sem það vissulega er), þá mun fólk ekki hlýða lögum um vímuefni. Ennfremur forðast flest fólk dóp af ótta við afleiðingar af neyslunni, ekki vegna þess að "það á ekki að gera það".
Úff. Það er erfitt að hætta, en sumsé, já, þetta var djók. ;)
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 16:39
Svo má nú ekki gleyma öllum misvísandi skilaboðunum sem yfirvöld senda útí samfélagið.
"Sko þú mátt sko ekki versla í ríkinu ef þú ert ekki orðin 20 en farðu þá bara á skemmtistaðina því þar sinnum við engu eftirliti. Og ef þú ert ekki að brjóta útivistarlöginn þá kemur okkur ekki við þó þú sért full(ur) að þvælast útum borg og bí í tíma og ótíma
En svo er líka bannað að dópa og þið eigið að fara eftir þeim lögum!"
Yeah right...
Þorsteinn Gunnarsson, 4.7.2007 kl. 17:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.