24.12.2008 | 04:04
Gleðileg jól
Gleðileg jól kæru bloggvinir og hafði það sem allra best um hátíðirnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.12.2008 | 02:03
Er þetta nú ekki orðum aukið...
Þetta með hálkuna á Hellisheiðinni... ók hana um miðnættið og það var ekki einn hálkubeltt að finna á henni né reyndar nálægt henni... enda heiðin alauð, asahláka og ausandi rigning?
Það skyldi þó ekki vera að svona fréttir séu ástæða þess að fólk t.d trúir ekki lokunarskiltum og öðrum aðvörunum og það þegar síst skyldi.
![]() |
Hálka á Hellisheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.12.2008 | 01:59
Gómaði konu í bakgarðinum kl 5:30 aðfaranótt sunnudags við það að stela jólaseríu
Var að fá mér að reykja fram í stofu og ljósin slökkt, ró yfir öllu. Verð ég þá var við að kona gengur frá götunni heim að húsinu og hugsaði ég með mér að það væri meiri harkan í þessu útburðarliði að vera að þessu klukkan hálf sex að morgni. Síðan heyri ég ekkert í lúgunni svo ég fer fram í eldhús og lít útum gluggann sem vísar útí bakgarðinn, í átt að kertagerðinni og sé þá þessa konu, á milli fertugs og fimmtugs, þar sem hún stendur og er að horfa í kringum sig. Hún stendur þarna smástund og skannar svæðið, klædd þykkri peysu, með húfu og vettlinga... gengur síðan að einhverri fuglaseríu(sem var eina skreytingin utandyra) og fer að týna hana af trénu sem hýsti hana.
Við skulum orða það þannig að það hafi heldur fokið í mig þegar ég gerði mér grein fyrir að þarna var komin manneskja í þeim tilgangi einum að stela og því sleit ég upp hurðina útí bakgarðinn og hvæsti á hana að hún skyldi "vinsamlegast að láta af þessari iðju". Hún tók á rás út úr garðinum og út á götu þar sem silfurlitur 4 dyra VW Golfinn hennar beið í gangi... og ók burt.
Þetta var sko kona sem var eingöngu í ránsleiðangri!
Vil svo bara óska henni gleðilegra jóla... þó svo að þau verði kannski á annarra kostnað
![]() |
Talsvert um innbrot og þjófnaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 24. desember 2008
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.10.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 203583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar