Leita í fréttum mbl.is

Hva... eru Makkarnir ekki öruggir?

macintoshSamkvæmt: Vísi.is, 22. apríl. 2007

"Fjórða öryggisuppfærsla Apple á árinu"

"Apple sendi frá sér stóra öryggisuppfærslu á fimmtud. fyrir notendur Mac OS X. Uppfærslan á að laga 25 öryggisgalla í stýrikerfinu. Mikilvægustu gallarnir sem var verið að laga gætu gefið tölvuþrjótum full yfirráð yfir tölvunni.

Þetta er fjórða uppfærsla Apple á þessu ári. Í mars sendu tölvuframleiðandinn frá sér uppfærslu til að laga 45 veikleika í stýrikerfinu. Á fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs höfðu þeir aðeins sent frá sér tvær uppfærslur."

Samkvæmt þessu makkagengi er ekki hægt að koma neinum pöddum fyrir í þessum tölvum og eigendur þeirra endalaust að gera grín að okkur PC mönnum fyrir allar uppfærslurnar.


Guði sé lof... NOT

PolarbearReyndar er greyið með einhverja vindverki núna um helgina og því viðbúið að við fáum fréttir af aftansöng hans á morgun eða í seinasta lagi á þriðjudagsmorguninn.

Bíður þjóðin vonandi spennt.


mbl.is Knútur laus við tannpínuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að falsa viljandi staðreyndir eða?

 "Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Samfylkingin 4 kjördæmakjörna þingmenn í kjördæminu,..."

Þetta er einfaldlega rangt og mbl til skammar að leiðrétta þetta ekki hið snarasta. Þeir sem á annað borð vilja vita... vita að Samfylkingin er með 3 kjördæmakjörna og 1 uppbótarþingmann.

Eins og þetta stendur...er þetta einfaldlega falsfrétt sem getur ekki haft neinn tilgang annan en að skaða Samfó?


mbl.is Sjálfstæðisflokkur bætir við sig tveimur þingmönnum í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvern andskotann gerðum við af okkur í gær?

tjaldÞegar ég var 17 ára skruppum við nokkrir félgar á Akureyri, sem oftar í sollinn í Reykjavík. Þetta var um mánaðarmótin apríl-maí og við allir frekar félitlir svo ákveðið var að tjalda bara í Lagardalnum. Svo var skroppið í Stapann á föstudagskveldinu, man að Júdas spilaði... og Keflvíkingunum aðeins strítt.

Þegar við síðan rumskuðum við mannaferðir, hálfþunnir á laugardagsmorgninum og litum út, skildum við ekkert í því að verið var að mynda okkur í bak og fyrir. Spurðu ljósmundararnir okkar hvaðan við værum og hverra erinda við værum í borginni. Þeim var svarað stuttlega. Fóru menn síðan móralskir að raða saman atburðum næturinnar, en töldum okkur hafa verið þokkalega til friðs, svona á okkar mælikvarða allavega. Skildum ekkert.

Það var svo ekki fyrr en við flettum blöðunum að við áttuðum okkur á því að við höfðum verið fyrstu gestir ársins á tjaldstæðinu. - Ótrúlegt hvað slæm samviska getur komið í veg fyrir aukinn frama í fjölmiðlum... og skárri myndir.


mbl.is Tjaldað í austurborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hefur ekki verið á eyrinni...

Sólin viljug skein á vaska eyrarpúka forðum
sumarhlýju þeirri verður varla lýst með orðum.
En norðan Glerár kuldaboli nýddist svo á þorpurum
sem  neyddust því á sumrin til að ganga um í norpurum.


mbl.is Beðið eftir vorinu á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selfyssingar nýta það sem hendi er næst...

hnífasett"Karlmaður á þrítugsaldri var stunginn í handlegg með eldhúshníf um klukkan hálf eitt í dag. Maðurinn hafði deilt við annan mann sem barði hann með stól auk þess að stinga hann... "

Lögregla fann svo gerandann síðdegis....

Skyldi hann hafa verið með sófa á sér eða önnur vopn?


mbl.is Karlmaður stunginn í handlegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkir lúserar...

loserJa ef þetta heitir ekki að skíta á sig opinberlega þá hvað?

Manni er til efs að Icelandair hefði einu sinni gert þetta...


mbl.is Richard Branson ekki í Casino Royale um borð í vélum British Airways
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó ekki væri...

kid...þessir 1500 eru örugglega bara að "rannsaka hversu aðgengi perra að þessu efni er auðvelt" Sá einhverssstaðar að það væri sú afsökum sem perrarnir gæfu oftast þegar þeir væru gómaðir með slíkt material.

Annars er eitt athyglisvert... þeir danirnir banna vistun á tölvum viðkomandi svo nú er spurningin:

Er ekkert Cache minni á dönsku tölvunum?

... man að einhver ræfillinn hér heima var meðal annars dæmdur fyrir myndir sem fundust í cachinu á tölvu hans og eins og allir vita geymir tölvan afrit af öllu sem "fyrir augu ber" á netinu og eins myndir úr spam póstum og fleiru svo það er vandlifað fyrir þessa 1500 líka ef íslenska aðferðin er notuð hjá baunanum.

 

 


mbl.is Ekki ólöglegt að skoða barnaklám í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bull er þetta?

HelmetTil hvers í ósköpunum ætti borgin að kaupa þessa hjalla? Er ekki nóg af brýnni viðfangsefnum.  Það hlýtur að vera eitthvað meira áríðandi til að veita peningunum í.

Og ef mig misminnir ekki þá stendur hjálmurinn fyrir flokk sem hefur einstaklingsframtakið í hávegum en vill minnka afskipti stjórnvalda?

Hann hefur kannski orðið fyrir nettri reykeitrun í auglýsingaspranginu þarna um daginn og man ekki lengur að hann er embættismaður.

Ég veit ekki til þess að hann hafi verið að bjóða í þessa skúra meðan þeir voru lífs svo halló halló...þó það séu kosningar í nánd þá má nú aðeins róa sig í vitleysunni...


mbl.is Reykjavíkurborg vill kaupa hús sem urðu eldi að bráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er sem ég segi...

hamrahlidEr ekki að verða komið nóg af þessum menntunaráróðri...

Nú eru þessir örfáu sem ekki fá inni í menntaskólum landsins farnir að brjótast inn til að svala fróðleiksfýsn sinni.

 

 


mbl.is Innbrot í MH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband