Leita í fréttum mbl.is

Enda eini sénsinn fyrir hann

Devil Sæll prestur...ég hef syndgað...
Halo  Hvað varstu nú að gera af þér drengur minn?
Devil Ég hef sent unga drengi til Írak þar sem þeir hafa drepið og verið drepnir í unnvörpum.
Halo  10 maríubænir og hættu svo svona rugli.
Halo  Næsti
mbl.is Blair gerist kaþólskur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara hausinn á fréttinni hræðir...

toilet_ipodOk stafrænn lífstíll... vissi ekki að hann væri til fyrr en núna. Okkur tekst þó enn að ýta á takkana á mælaborði pottsins til að hækka og lækka hitastig, kveikja á nuddi dælum ljósum og þessu dóteríi öllu saman. Við erum að vísu með einar 10 fjarstýringar fyrir sky hd, einhverja gervihnattamóttakara, dvd, heimabíó og flatskjáinn sem er með innbyggðan digital tv móttakara og slíkt.

Við erum með digital myndavélar, videocamerur, ljósmyndaprentara,  nokkra hefðbundna og einn lazer, 5 tölvur á heimilinu, flakkara, avex spilara, Ipod, Jamo dokku, Play station, 6 misstóra tölvuskjái, webcamerur, allskonar smartkorta brennara, kortalesara og forritunareiningar, dymo labeler og P-Touch Brother miða prentara, er með bluetooth á eyranu daginn út og inn en þetta dugar ekki til þess að ég samþykki það að við ástundum stafrænan lífsstíl.

Heimili okkar er þrátt fyrir allt gamaldags... það er hlýlegt og enginn minimalismi ástundaður. Við vinnum í enda stofunnar(ca. borðstofunni) og eigum gömul húsgögn með sál og myndir og aðrir skrautmunir sem eru í okkar eigu eru ekkert endilega til vegna fagurfræðilegra sjónarmiða heldur miklu frekar vegna tilfinningalegra tengsla. Við hengjum upp myndir og teikningar eftir börn og barnabörn og enginn einn stíll ræður ríkjum.

Og meðan við opnum hurðirnar handvirkt, drögum sjálf fyrir gardínurnar, kveikjum og slökkvum ljós á venjulegan máta og hölum á hefðbundinn hátt niður í klósettið(sem nota bene ekki er stafrænt) þá viljum við ekki vera bendluð við stafrænan lífstíl.


mbl.is Verslun fyrir stafræn heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lág borð og litlir stólar

Italian-DinerAlveg finnst mér undarleg þessi árátta, leikara í Ameríkuhreppi, að vera sínkt og heilagt að opna veitingastaði. Manni hefur helst skilist á fréttum að það séu eiginlega þeir staðir sem síst vanti á því heimilinu.
mbl.is Danny DeVito í veitingarekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó það nú væri...

antique_MarkVÆtli menn væru nokkuð að víla fyrir sér að reka leikskólakennara ef hann einn daginn, sakir nýtekinnar trúar sinnar, mætti í kafarabúning af gömlu gerðinni og reiknaði svo bara með því að allt gengi sinn vanagang. 
mbl.is Má reka konur í búrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfs árs afvötnun?

Þetta hljómar ekki sannfærandi. Að ætla að framfylgja með hörku banni á notkun áfengis og það í hálft ár. En hvað svo?

Væri ekki nær að styrkja innviðina á frumbyggjasvæðunum með aukinni menntun og þjónustu. AUðvitað er sjálfsagt og eðlilegt að bregðast við þessari misnotkun á börnum, en er þetta leiðin. Næst ætla þeir sér kannski að taka upp algjöra Apartheid stefnu þar sem talsverður fjöldi frumbyggja býr í 'hvítum' borgum. Þetta minnir mann á meðferð ameríikananna á indjánunum.

Kannski verður komið spilavíti handa frumbyggjunum innan tíðar.


mbl.is Áfengi og klám bannað á svæðum ástralskra frumbyggja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar endar þetta

Las einhversstaðar að einnig skyldi helst útiloka feitt fólk. Annars hélt ég að ef dómgreind verðandi fósturforeldra væri ekki treystandi ... þá væri þeim ekki veitt leyfi hvort sem er? Silly me!

Málsháttur dagsins: Á misjöfnu þrífast börnin best.


mbl.is Breskir reykingamenn fá ekki að verða fósturforeldrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynlífsleikfönginn gerð upptæk?

Nú er svo komið í þessum dóp-, klám-, líkamsræktar- og ofbeldisheimi nútímans að það sést aldrei skeiðarhnífur utan á nokkrum heiðvirðum manni og menn fara með kaup á vasahníf eins og mannsmorð.

Feður þora vart að láta vel að börnum sínum lengur af ótta við ásakanir um duldar kvatir.  Menn kaupa sér helst franskbrauð í skjóli myrkurs.

Ekki má fara með naglaklippur í flugvél, ekki hálfa dietkók eða sólolíu í gegnum flugtékk, ekki reykja á barnum og svo mega dóphausarnir hvorki dópa né rúnta um að viðra kynlíkfsáhöldin sín.

Já heimur versnandi fer.


mbl.is Dæmd í sekt fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beckham í Vísindakirkjuna

Ja ef satt reynist þá leggur Tom Cruise ýmislegt á sig til að fanga þau bresku í söfnuðinn. Maður sér þetta alveg fyrir sér þegar Tom verður kominn með tjald á hliðarlínuna og messar yfir liðinu þar í hálfleik. 
mbl.is Tom Cruise vill kaupa Galaxy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt klúður frá a-ö

áður en fallið var frá áformum um byggingu tveggja hæða turna þar.

Ja sennilega hefði aldrei orðið þessi úlfúð ef turnarnir sálugu hefðu aðeins átt að verða 2ja hæða en ekki 16 hæða eins og minnir að þeir hafi nú reyndar átt að verða.

 


mbl.is Deilt um skipulag miðbæjar Selfoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég og Straumur

StopSvona hefur þetta líka verið þegar ég hef selt verðbréf... alltaf hafa þau hækkað áfram þó ég hafi álitið toppi vera náð. En skárri er einn í hendi en tveir í skógi og allt það:-)

Hinsvegar hef ég svo sem ekkert verið að missa af einhverjum 700 kúlum... frekar nær sjöhundruð krónunum svo ég get þó alltént huggað mig við það að hafa ekki misst af jafn miklu og Staumur Burðarás.


mbl.is Varð af nær 700 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband