Leita í fréttum mbl.is

En var hann spurður?

Allalvega kemur ekkert fram um það í fréttinni? Eingöngu yfirlýsing um að hann hyggist vera til langframa hjá McLaren.
mbl.is Alonso neitar því að vera á förum frá McLaren
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er von...

Miðað við allan þann áhuga fjölmiðla á þessu máli finnst manni hreint ótrúlegt hversu litlar vísbendingar virðast hafa komið fram um hvarf þessarar stúlku. Alheimur veit hvernig hún lítur út og mynd hennar er greypt í huga manns. Það væri óskandi að hún fari að finnast svo einhver 'niðurstaða' fáist í málið fyrir fjölskyldu hennar og ættingja. 
mbl.is Maður handtekinn í tengslum við rannsókn á hvarfi breskrar stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En 4 dómaranna vildu framkvæma aftökuna

LadyJusticeMikið er gott að skilja ekki hugarfar þessara dómara sem vilja drepa fársjúkt fólk og andlega vanheilt á geði eins og svo oft hefur gert hjá þessu liði þarna í Ameríkuhreppi. Það að vera samþykkur dauðadómum er eitt en aftaka á vanheilu fólk er bara mannvonska.

Skyldi 44,44% bandarísku þjóðarinnar vera sama sinnis og dómararnir 4?


mbl.is Hæstiréttur Bandaríkjanna stöðvar aftöku geðsjúks manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt hvað menn níðast á þessu fyrirtæki.

Auðvitað vitum við að þetta fyrirtæki er strangheiðarlegt og hafið yfir allan vafa. Annars hefðu stjórnvöld vart samið við fyritækið um Kárahnjúkavirkjum og eins hlyti að vera komnar fram einhverjar athugasemdir um starfsemina hér ef þetta væri ekki allt skothelt.

Ma.. ma.. ma.. maður bara spyr sig hvað þessir saksóknarar eru eiginlega að hugsa? 


mbl.is Gengi hlutabréfa Impregilo hrundi á markaði á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhittin eiginkona..

Hélt reynar að oftar væri sagt um karlana að þeir væri með hlaðna byssuna í rúminu?

En auðvitað er allt breytt með auknu jafnrétti kynjanna!


mbl.is Höfuðverkurinn stafaði af byssukúlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máttur SMS er sannarlega mikill...

tunga...vona hinsvegar að mínir menn á Selfossi séu með óþarflega mikinn viðbúnað.

En þú tryggir svo sem ekki eftirá.


mbl.is Lögreglan segir „SMS" hátíðina framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er kannski femínisti...

Pink-PantherEn kannski hefur honum bara fundist  vinkonan sæt í bleiku.

Veit ekki af hverju mér datt í hug, við lestur þessarar fréttar, gamall kunningi úr bænum sem ég einhverntímann þurfti að ná tali af. Sá stundaði Múlakaffi og einn daginn beið ég þar til rúmlega klukkan 4 eftir kappanum, sem þá mætti svefndrukkinn með stýrurnar í augunum á staðinn.  Þessi var í bílaviðgerðum og uppgerðum á gömlum bílum og þegar ég spurði hann afhverju í ósköpunum hann ynni á nóttunni en svæfi á dagisnn svaraði hann..

"Ja Steini minn... það er bara svo miklu auðveldara með öll aðföng á nóttunni"


mbl.is Dæmdur í fangelsi fyrir að stela bleikum múl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað um Keflavík - Reykjavík

Mér hefur nú sínst að menn fari frjálslega með landafræðina þegar verið er að selja fólki fargjöld til landsins og segjast fljúga því á Reykjavík? 
mbl.is Markaðssetja flugvöllinn í Malmö sem Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já það er ekki sama á hvern er hrækt...

Í dag(sjá næsta blogg hér neðan við) er frétt hér á mbl sem ber yfirskriftina: Fimm mánaða fangelsi fyrir að hrækja á lögreglumann

Hefði ekki verið nær að sýkna konuna og senda þann munnvatnsríka á námskeið?

 


mbl.is Slapp við refsingu en þarf að greiða bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband