Leita í fréttum mbl.is

Að færa sig uppá skaftið

Páll Winkel aðstoðarríkislögreglustjóri segir að ekki verði tekin ákvörðun um notkun rafbyssanna fyrr en að fengnu áliti lækna.

Skítt með það hvort þeir samþykkja þær... það er þá ekki eins og megi ekki dúndra á bráðabirgðalögum

 


mbl.is Rafbyssur til reynslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfuls della er þetta að verða

Það er mikið að menn ætluðust ekki bara til að þessir tónleikar færu fram órafmagnaðir og menn rauluðu bara vísur Vatnsenda Rósu við undirspil luft gítars. Þessar helvítis "grænu öfgar" er orðnar slíkar að mann langar mest til að fara út og láta bara 8 gata Econolænin ganga daginn út og inn til að "litjafna" þessa þvælu.


mbl.is Madonna gagnrýnd fyrir fjárfestingar sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Visual Effects

Man eftir súrri hugmynd sem einhverjir höfðu, fyrir þó nokkrum árum síðan, um aðgöngumiða kvikmynda sem átti að nudda á ákveðnum tímapunktum myndarinnar og þar með gysi upp ákveðin lykt sem hæfði því sem fram fór á hvíta tjaldinu.

Datt þetta bara í hug þagar ég las hausinn.


mbl.is Smáralind rýmd vegna reyks í sal Smárabíós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega að gerast í heiminum?

Þeir í Argentínu og Chile syngja "Ég held ég gangi heim" í allt að 22 stiga frosti og snjókomu - Og liðið þarf orðið að vökva á Suðurlandi.

Svo halda menn að heimsendir sé ekki í nándGrin


mbl.is Fimbulkuldi í Suður-Ameríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiðiveður

Manni fannst kannski ekki alveg að það væri topp-veiðiveður hér á Selfossi í gær... en kannski hefur laxinn bara verið í sama ástandi og ég... með óráði vegna hita.
mbl.is 13 laxar á land á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég verð fimmtugur á næsta ári...

channel_swimmer_and_ferry_2og þó ég hafi nú ekki séð sérstaka ástæðu til halda uppá afmælið mitt í gegnum tíðina mætti segja mér að sund yfir Ermasund yrði svona ca. í neðsta sæti af öllum möguleikum. Ég bara skil ekki hvað fær menn til að svamla þetta í 6° heitum(köldum) sjó í tæpan sólarhring hálfveikir af allskonar krömpum og öðrum fylgisfiskum þessara þrekrauna. En þetta eru greinilega jaxlar.

Stóð mig að því um daginn er famelían var í sundi að humma það fram af mér að fara í útilauginaFootinMouth


mbl.is Benedikt Hjartarson lagður af stað yfir Ermarsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ekki flytja inn vatn frá Hróarskeldu

Yrði kannski nett gruggug Norðuráin.... en það væri þá hægt að taka upp gömlu húkkaraaðferðina sem notuð var í Blöndu fyrir stíflu.
mbl.is „Það vantar vatn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langflottastur...

Ég elska opna bílgluggaVið hjúin skruppum með "soninn" sem heitir reyndar Ýmir, í bíltúr í dag og hér á myndinni er þessi elska að fá sér smá súrefni í skoltana.

Bara svona að lofa ykkur að njóta fegurðarinnar með okkur!


Er þá ekki bara ráð að slökkva á rafmagninu 4 tíma á dag.

Þetta var gert með rafhitunina í gamla daga og þarna er kannski komin leið til að "spara" eins og eina virkjun.Wink
mbl.is Ekkert tjón í álverinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No terrorists please - We're British!

Robert Noble, æðsti yfirmaður Interpol, sakaði bresku ríkisstjórnina um að stefna íbúum Bretlands í hættu með því að vinna ekki með Interpol. Hann sagði Bretland vera eitt þeirra landa sem athugar ekki hvort innflytjendur eru á lista Interpol yfir fólk sem grunað eru um að vera hryðjuverkamenn.

Dálítið spes í ljósi sögunnar


mbl.is Bretland með lélega landamæravörslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband