19.10.2007 | 12:56
Sjúkk... gæinn illa heppinn að raka hann ekki líka
Hefði það breytt einhverju ef þetta hefði verið fyrir utan tannlæknastofu...eða bílaverkstæði?
Það er spurningin.
![]() |
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá lögreglumann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2007 | 12:40
Ping pong og sí kei... og tussan blá á kettinum
Jæja þá er það staðfest að David Copperfield er greinilega ekki sjónhverfinga maður því annars hefði hann eflaust veifað töfrasprotanum og sagt, eins og einn fyrrum nágranni minn fyrir norðan sagði gjarnan þegar hann lýsti hlutum sem voru töfrum líkastir... "Ping pong og sí kei... og tussan blá á kettinum"
Annars eru þessar $2 millur eru nú ekki nema 3,5% af árstekjum kappans svo þetta er sambærilegt við það að manneskja með árstekjur uppá 1800 þúsund lægi með 63þúsund kall í reiðufé heima hjá sér.
Væri ekki ráð fyrir Glitni að bjóða kappanum bara debetkort?
![]() |
FBI gerði húsleit hjá heimsþekktum sjónhverfingamanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 12:26
Vissi ekki að Reese ætti blinda og heyrnarlausa dóttur...
en auðvitað hrjá sömu raunir þá frægu og ríku eins og okkur hin.
Og við Reese eigum það þá sameiginlegt... að hafa hvorugt sagt dætrum okkar að við séum frægir leikarar og handhafar óskarsverðlauna... þó ástæðan sé sín hvor
![]() |
Heldur frægðinni leyndri fyrir dótturinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.10.2007 | 12:14
Myndi hún heita Áma Vínhús...
... ef einhverjum blaðamanninum dytti nú í hug að "snara" henni... eins og svo oft virðst gert með nöfn annarra Landrovera? Eða heitir hún kannski bara alls ekkert Amy Winehouse?
Væri ekki rétt að benda prinsinum af Wales á þá staðreynd að hann heitir alls ekkert William.... heldur Vilhjálmur? Það er sko ekki eins og það sé ekki nóg fyrir hann að hafa horft uppá hvernig Karl faðir hans hefur verið uppnefndur Charles í erlendum fjölmiðlum, heldur er eineltinu á drenginn haldið áfram af erlendu pressunni og virðist því hafa erfst.
- Eða er það kannski bara gömul bábylja að "ekki ljúgi Mogginn"?
![]() |
Amy Winehouse handtekin í Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 03:38
Samskot á fundinum
Fundur settur, fáir mættir,
Fæstir þeirra stigu í vitið
Fundi slitið
ps. heyrst hefur þó að samskot hafi farið fram á fundinum og skyldu krónurnar nýttar til kaupa á heyrnartæki og nýjum gleraugum handa Villa svo hann verði ekki eins illa áttaður í "Ensku fyrir byrjendur" hjá Námsflokkunum, en þangað hefur hann víst þegar verið skráður.
![]() |
Samstarfsslitin útrætt mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.10.2007 | 21:45
ÁSKORUN - ÁSKORUN - ÁSKORUN
Hér neðan við er áskorun til yfirvalda og er þetta framtak Ásdísar Sigurðardóttur og Heiðu Bjarkar. Tók mér bessa leyfi að setja þetta inn ef það mætti vera til þess að fleiri sæju sér fært að styðja þetta.
Opið bréf til þingmanna og ráðherra....... og minni á undirskriftalistann.....
Hér er bréf þeirra Ásdísar Sig og Heiðu Bjarkar, en Ásdís er höfundur þess og ég fékk ekki leyfi til að birta það hér en geri það samt
OPIÐ BRÉF SEM ÉG HEF SKRIFAÐ TIL ÞINGMANNA OG RÁÐHERRA, ER AÐ SENDA ÞEIM ÞAÐ Í PÓSTI ( RAFRÆNT)
Hlekkurinn okkar er UNDIRSKRIFTARLISINN Á SÍNUM STAÐTIL ÞEIRRA ER MÁLIÐ VARÐAR.
Selfossi 18. október 2007.
Kæri viðtakandi.
Eftir að hafa móttekið bréf frá Tryggingastofnun ríkisins í síðust viku, þar sem ég og eiginmaður minn vorum krafin um endurgreiðslu v/ofgreiddra bóta til okkar, var mér allri lokið.
Ástæðan fyrir endurgreiðslukröfunni var sú að ég hafði fengið greiðslu vegna sölu á gömluhlutafélagi sem ég hafði átt bréf í síðan ég var unglingur.
Skatturinn tók ekkert því þetta var það gamalt hlutafélag svo í huga mínum ríkti sú fullvissa að nú hefði ég aldeilis verið heppin, fékk heilar 364 þús svona upp í hendurnar.
Aldeilis ekki. Þetta var að sjálfsögðu beintengt við bætur okkar hjóna af frá Trst. Og við endurkrafin um tæp 160 þús. Af þessar fjárhæð. Ég er svo reið að ég á ekki til orð. Hefði ég vitað af þessu hefði ég átt að vera búin að gefa dóttur minni bréfin og þá hefði enginn tapað neitt.
Enn og aftur kemur í ljós hversu fáránlegt það er að vera heiðarlegur gagnvart hinu opinbera. Að vera gift manninum mínum er líka fáránlega vitleysa. Við værum betur sett skilin og helst með sitthvort heimilisfangið. Hvenær ætlar hinn háæruverðugi þingheimur að gera eitthvað af viti í þessu máli???
Hversu lengi á að hafa okkur á fátækramörkum? Er það einhver dulin þörf að hafa okkur svona sér á báti í öllum mannréttindum.?
Ég bið ykkur, gerið eitthvað af viti í málunum. Hvernig er ef öryrki fær arf? Þarf hann þá að búa við það að fá ekki launin sín frá Trst? Þetta eru kölluð laun og við borgum skatt, en þegar kemur að hagnaði til okkar, vöxtum, arði eða öðru þá er það reiknað sem laun og fáum við sem ekkert getum unnið ekki einu sinni að nota launakvótann okkar upp í þetta. Hvaða réttlætir þennan gjörning.??
Nú hef ég ásamt fleiri "fjöryrkjum" eins og við kjósum að kalla okkur, hrundið af stað einni undirskriftarsöfnuninni enn og vonum við að eitthvað komi út úr því. Við erum kannski ekki rosa bjartsýn en treystum þó á að í hópi ykkar sé að finna réttlátt fólk sem væri til í að taka mál okkar upp og reyna að skapa jöfnuð milli okkar sem kveljumst fyrir launum okkar og hinna sem eru svo heppnir að geta farið að heiman að morgni og unnið og svo heim að kvöldi, án vinnunnar.
Virðingarfyllst og með von um góða fyrirgreiðslu
Ásdís Sigurðardóttir (sign)
Heiða Björk Jónsdóttir (sign)
http://www.petitiononline.com/lidsauki/ hér er hlekkur inn á síðuna þeirra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 18:30
Það má nú heldur ekkert lengur....
Það er nú kannski fátt við að vera í meðferðinni þarna fyrir hana nema rétt að láta hina sjúklingana sleikja á sér rassgatið svo er það von nema henni leiðist? Og svo eru þessir vitleysingar að agnúast útí það þá hún fái sér nokkrar línur. Og öll vitum við nú hvernig vatnið er þarna út í ameríkuhreppi... algerlega ódrekkandi óblandað.
Það eina sem ég skil ekki er það að nenna þessu svona ein... en kannski tekst henni að koma pabba sínum á fyllerí með sér - Enda vanur maður.
Já það er óskandi að hún finni sér drykkjufélaga sem allra fyrst.. það er svo leiðinlegt að vera að sukka með edrú AA liði.
Annars sýnist mér á myndinni að hún hafi komist yfir steratöflur
![]() |
Lindsay Lohan féll á lyfjaprófi í meðferðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.10.2007 | 18:12
Að sækja vatnið yfir lækinn
![]() |
Leiðinlegasti sjónvarpsþáttur í heimi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2007 | 20:13
Sá vægði sem vitið hafði minna...
Var hálfpartinn að vona að hundurinn hefði gefið sig fram og látið vita af því að hann hefði lógað...
Nei kannski ekki.
![]() |
Grimmum hundi lógað á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.10.2007 | 17:23
Kannski verið stereo útvarp og krimminn lesblindur...
Eflaust hefur fanginn bara beðið ættingja um að senda sér stereo-útvarp en verið svo þvoglumæltur að ættingjanum hefur heyrst hann segja Stera-útvarp.
Alveg dáist maður samt að þessum föngum að nenna að að stunda líkamsrækt. Enda svo sem ber maður með sér letina í þeim efnum....
![]() |
Reyndu að smygla sterum og lyfjum í útvarpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- Helga Auðunsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Páll Jóhannesson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Kári Harðarson
- Heiða Þórðar
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Huld S. Ringsted
- Vilborg Auðuns
- Þorleifur Ágústsson
- Þórunn Óttarsdóttir
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Helga skjol
- Jens Guð
- Tómas Þóroddsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lýður Árnason
- Hin fréttastofan
- Pálmi Gunnarsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Grétar Ómarsson
- Gaukur Úlfarsson
- Óttarr Makuch
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Þór Bjarnason
- Birna Mjöll Atladóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Bleika Eldingin
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- gudni.is
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Haraldur Bjarnason
- Fanney Unnur Sigurðardóttir
- Perla
- Bwahahaha...
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Tenglar
Áhugavert
testing
- Töfraljós - Ilmkertagerð - Vefverslun Töfraljós - handgerð Íslensk verðlauna-ilmkerti
- Versla.com Vefversun gervihnattamannsins
- Skykort.Com Síða um allt sem lýtur að móttöku á Sky Digital
- Skrifa.Com Allt um móttöku á gervihnattasjónvarpi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Nýjustu færslurnar
- ERU "YFIRSKESSURNAR" Á ÍSLANDI KOMNAR Í "KASTLJÓSIÐ" HJÁ BANDARÍKJAMÖNNUM???
- Eru engin mörk á áróðri Hamas deildar Morgunblaðsins??
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en eyðileggingu -- meginbyrgið undir Fordow fjalli, sennilegast enn heilt - skilvindurnar gætu hafa skemmst af titringnum af stóru sprengjunum Ameríkanar vörpuðu!
- Tíska : Hliðartaska fyrir karlmenn frá PRADA
- Er ekki allt í lagi eða hvað?