Leita í fréttum mbl.is

Lýsing á siðferði Samtaka atvinnulífsins frá fyrstu hendi?

Það er ekki geðsleg myndin sem Vilhjálmur dregur upp og er greinilegt að aðilar innan þessara samtaka ætla sér ekki þáttöku í uppbyggingu nýs Íslands. 


mbl.is Mun stórskaða viðskiptalífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: haraldurhar

   Við eigum reynslu af svona gjaldeyrishöftum, og henni er Vilhjálmur að lýsa.  Það að setja á gjaldeyrishöft er afturför í fjármálum okkar um áratugi.  Ótrúlegt að nokkrum manni detti í hug að embættismannaklíka sé hæfari til að stjórna gengi gjaldmiðilsins, en markaðnum

haraldurhar, 27.11.2008 kl. 23:50

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Já segðu... markaðurinn leysir þetta flott... nei bíddu ...

Það var markaðurinn sem klúðraði málunum var það ekki og falsaði gengið og feldi það eftir atvikum. Ekki það að ég sjái það í hendi að þetta virki og/eða komi ekki í bakið á okkur að einhverju leyti...en svo mikið er víst að það að ætla "markaðnum" að sjá um einhver mál af ábyrgð er álíka gáfulegt að biðja Lalla Johns að geyma veskið sitt.

Þorsteinn Gunnarsson, 27.11.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: haraldurhar

  Það var ekki markaðurinn er falsaði gengið það var arfavitlaus peningamálastefna Seðlabankans er stýrði genginu með okur stýrivöxtum.   Það er löngu vitað að markaðurinn setur rétt verð á hlutina.   Svo má fara út í handsýring á verðlagning á öllum hlutum, og fela ´Ríkinu alla atvinnustarfsemi, og setja á stofn samyrkjubú, og má vera það sé besta stjórfyrirkomulagið og réttlátast.  En það versta er að vera seta höft á suma hluti og frelsi á aðra, þá ma fara biðja Guð að hjálpa sér undan misvitrum embættismönnum.

haraldurhar, 28.11.2008 kl. 00:19

4 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Mikið er falleg trúin þín á markaðinn "haraldurhar". Það sorglega við þessa trú er að hún hefur hvergi í veröldinni orðið að veruleika, en því miður kostað þá sem fyrir henni hafa orðið ótrúlegar þjáningar, tap og fórnir.

Ég held að Guð hjálpi okkur betur með misvitra embættismenn en óvitaherinn sem hingað til hefur stýrt fjármálamarkaðnum.

Guðbjörn Jónsson, 28.11.2008 kl. 01:15

5 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Já "markaðurinn" fékk sitt tækifæri með öllu sínu frelsi og eins og margir spáðu...þá kunni hann ekki með frelsið að fara. Og reyndar sýnist manni í fljótu bragði að hann hafi með fæst kunnað að fara með...enda líkastur óvita með yfirdrátt.

En auðvitað eru einhverjir sem vilja að "bolurinn" borgi bara þau mistök... og síðan fái "markaðurinn" annan séns.

Það er sko hól að kalla slíkan hugsunarhátt heimsku.

Þorsteinn Gunnarsson, 28.11.2008 kl. 01:57

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jahá

Jónína Dúadóttir, 28.11.2008 kl. 07:15

7 identicon

"Það var ekki markaðurinn er falsaði gengið það var arfavitlaus peningamálastefna Seðlabankans er stýrði genginu með okur stýrivöxtum.  Það er löngu vitað að markaðurinn setur rétt verð á hlutina. "

Hvernig getur markaðurinn sett rétt verð á hlutina, þegar aðilar þessa sama markaðar, kaupa og selja sínar  eignir  og falsa þar með verðmæti viðkomandi eignar, og  svíkur um leið  út lán á eigin eign til að kaupa hana af sjálfum sér.

Hvar myndast raungildið í þessu ferli  Haraldur???????

(IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 13:28

8 Smámynd: Tiger

  Alveg magnað að fylgjast með þeim sem sitja fastast í stúkusætum - stjórna öllu spillta ferlinu - en taka enga ábyrgð og ætla sér að taka svo á málunum "fyrir okkur" og bjarga okkur úr því sem þeir komu okkur í ... Ísland í dag!

Knús og kram á þig kappi og þakka þér kíking á mig af og til - borga með sama að sjálfsögðu og hef alltaf gert. Hafðu ljúfa aðventuna!

Tiger, 8.12.2008 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband