Leita í fréttum mbl.is

Sleppur einn enn?

Skyldi saksóknari vera jafn áfjáður í að áfrýja þessari niðurstöðu til hæstaréttar og ef um væri að ræða plastsandala-, eða sláttuvélakaup útí Ameríkuhreppi?


mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

"..það að maðurinn ýtti konunni inn í klefann, læsti klefanum innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi.."

Það er nefnilega það.   Púkinn rétt vonar að þessu verði áfrýjað til Hæstaréttar og þessu kjaftæði snúið við þar.

Ef ekki, þá er íslenskt þjóðfélag orðið þannig að maður ætti kannski að forða sér héðan til einhvers siðmenntaðs lands.

Púkinn, 5.7.2007 kl. 17:18

2 Smámynd: krossgata

Kynlífsparadísin Ísland í hnotskurn.  Endilega geriði bara það sem ykkur dettur í hug, það skiptir engu máli hvað fórnarlambið segir eða gerir við tökum aldrei mark á því enda er það allt saman óttaleg þvæla og væl í þessum kellingum og ber ávallt að taka með varúð og gera lítið úr.  Við gerum það samviskusamlega.

Uss.

krossgata, 5.7.2007 kl. 17:35

3 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Við fyrstu sýn virkar þetta sérkennilega.  Ég ætla að lesa dóminn vandlega áður en ég tjái mig um hann.

Hreiðar Eiríksson, 5.7.2007 kl. 22:55

4 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Ég hef nú lesið dóminn.  Mér finnst að svo að almenningur geti áttað sig á niðurstöðunni væri skýrara að vísa til nýjustu dómanna sem eru fordæmisgefandi varðandi niðurstöðuna í stað þess að vísa til "langrar dómaframkvæmdar".  Hitt er annað að "löng dómaframkvæmd" hefur ekki alltaf verið látin ráða niðurstöðu máls.  Þjóðfélagið er breytilegt og af og til hafa dómstólar vikið frá fordæmum og dómaframkvæmd þegar mikill munur hefur verið orðinn á dómaframkvæmd og almennri réttarvitund.

Ég er ekki alveg viss um þetta atriði en ég held að í opinberum málum hafi dómstólar heimild til að færa hátterni undir annað vægara refsilagabrot ef atvikalýsing stenst það einnig.  Þessu var bara rétt í þessu að skjóta upp í kollinn á mér þannig að ég hef ekki skoðað það.

Ljóst er að ef sýknudómur þessi telst eiga að standa, er hér um að ræða hátterni sem er svo nálægt því að falla undir 194. grein að eðlilegt er að sýknan valdi ákveðinni ólgu. 

Ég ætla aðeins að leggjast yfir málið og skoða þessa dómaframkvæmd sem vísað er til og hvort hægt sé að segja að þar sé vísað til sambærilegra mála.  Fordæmi eru torskilin og vandasöm úrlausnar og reyna mikið á dómara.  Þar er auðvelt að misstíga sig ekki síst í réttarkerfi sem leggur ekki upp úr fordæmum sem bindandi réttarheimild.

Hreiðar Eiríksson, 6.7.2007 kl. 13:49

5 Smámynd: Þarfagreinir

Eitt sem er merkilegt varðandi fordæmin; þegar refsingaramminn í fíkniefnabrotum er hækkaður, þá er venjan að fara strax að dæma eftir nýja rammanum. Þar eru engin fordæmis- og hefðarrök notuð. Þegar kemur að nauðgunum er hins vegar iðulega vísað til þess að venjan hafi verið sú hingað til að dæma menn X lengi, og þá dugi nú ekki að fara allt í einu að dæma menn til lengri tíma, þó að refsiramminn hafi verið víkkaður ...

Þarfagreinir, 11.7.2007 kl. 15:55

6 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Púkinn, Krossgáta, Baldur - Sammála

@ Hreiðar  - Já maður vonar allavega að svona miða við lýsinguna að þessu verði áfríað og snúið og ef lögin covera ekki þann viðsnúning að því verði þá kippt í liðinn hið fyrsta.

@ Þarfagreinir - Já manni virðist ákveðin "tíska" stiuindum í gangi hjá þeim blessuðum

Þorsteinn Gunnarsson, 12.7.2007 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Gunnarsson
er áhugamaður um réttláta refsingu borgaranna  fyrir þá sök eina að vera til...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband